Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 ✝ Steinunn ÞóraSigurðardóttir fæddist 9. júní 1945 í Reykjavík. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 26. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Dýrleif Ármann kjóla- meistari, f. 19. desember 1915, d. 19. júní 2001, og Sigurður Magnússon, kennari og blaða- fulltrúi, f. 6. júlí 1911, d. 29. mars 1989. Systur Steinunnar eru Ásdís Sigríður, f. 13. maí 1936, Þor- vík, stundaði hefðbundna skólagöngu og varð síðan þjónustustúlka hjá Ágústu og Thor Thors, sendiherra í Washington. Fór síðan til náms í hótelskóla í Bandaríkjunum. Árið 1964 gerðist hún flug- freyja hjá Loftleiðum, síðar Icelandair, og lauk þar farsæl- um starfsferli eftir 47 ár. Hún var félagi í Soroptimistaklúbbi Reykjavík- ur og var þar öflug í fjáröflun fyrir félagið. Einnig starfaði hún alla tíð ötullega fyrir Svölurnar, góðgerðarfélag flugfreyja og flugþjóna. Steinunn stundaði spjótkast og langhlaup hjá ÍR á ung- lingsárum sínum. Hún stund- aði golf til margra ára, var mikil sundkona og naut leik- húss og tónleika. Útför Steinunnar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 8. febrúar 2019, klukkan 13. gerður Guðrún, f. 10. júlí 1938, og Kristín Anna, f. 25. febrúar 1942. Eiginmaður Steinunnar var Sigþór Koch Jó- hannsson, löggilt- ur endurskoðandi, f. 7. febrúar 1941. Sonur Stein- unnar og Sigþórs er Gunnar Þór, matreiðslumaður, f. 16. febr- úar 1979. Sambýliskona Gunn- ars Þórs er Ingibjörg Högna Jónasdóttir, f. 20. september 1981. Steinunn ólst upp í Reykja- Jæja mamma mín, það er 26. janúar 2019. Klukkan er að verða fjögur, það er korter í pick-up, þú ert komin í júníformið og hárið er tilbúið. Kabínuskórnir eru komn- ir á sinn stað og naglalakkið er að þorna á meðan þú drekkur síð- asta kaffibollann, sem er orðinn vel merktur með rauða varalitn- um. Allt þetta gerðir þú svo hljóðlega til að vekja okkur ekki, en inn í herbergið mitt barst fyrst hljóðið í hárþurrkunni og svo ilmurinn af nýlöguðu kaffi og sígarettureyk. Ég stökk fram úr og rétt náði þér í anddyrinu bara til að fá tvær spurningar. Hvað viltu í matinn þegar ég kem heim? Og, vantar þig eitthvað frá Ameríku? Það má ekki vera mik- ið, sagði hún, því það væru svo margir aðrir sem hún ætlaði að taka pakka fyrir heim. Þetta lýsir mömmu svo vel, einstaklega góð, greiðvikin og gefandi kona. Já takk sagði ég, þú mátt endilega kaupa english muffins, og svo pantaði ég plokkfisk eða kjötboll- ur í matinn við heimkomuna. Þú snerir þér við í dyrunum og minntir mig á að ég væri búinn að lofa því að taka með þér níu holur á vellinum þegar þú kæmir heim. Já auðvitað sagði ég, en þá vissum við ekki að þetta flug væri bara aðra leiðina. Ég gæti sagt endalaust af sög- um af þér og talið upp alla þá mannkosti sem þú ólst upp í mér; bursta skóna og tennurnar, þvo á mér hárið og greiða það (á meðan ég var ennþá með hár), standa beinn í baki og tala hátt og skýrt. Bera virðingu fyrir konum og vera herramaður, svo ekki sé tal- að um öll vinnuvísindin. Þú varst sterkasta kona sem ég þekkti og fyrir mér varst þú femínisti á borði en ekki í orði. Því miður klárum við aldrei golfleikinn, en hann skal ég spila þér til heiðurs, þó aðeins níu holur. Aðeins einn hlut get ég ekki gert fyrir þig núna, en það er að tala hátt og skýrt því orðin koma ekki rétt út úr mér og tárin streyma niður kinnarnar svo ég ætla að fá að kveðja þig með þessu ljóði, Móðir mín, eftir Árna Helgason. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. – Allt sem gott ég hefi hlotið hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. – Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. – Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá Guði skín. Gunnar Þór Sigþórsson. Það er svo undarlegt að hugsa til þess hvernig fólk hefur mis- munandi áhrif á líf annarra. Sum- ir hafa góð áhrif, aðrir hafa ekki svo góð áhrif. Steina móðursystir hefur haft mikið að segja um það hvernig manneskja ég er. Það geislaði af henni góðmennskan og krafturinn. Það voru aldrei vandamál hjá Steinu frænku, hún bara leysti þau. Ég leit alltaf upp til Steinu. Hún var auðvitað flottust í flug- freyjubúningnum sínum. Hún gerði mér og frænkum mínum, Dísu og Önnu Maríu, þann heiður að hafa okkur sem brúðarmeyjar í brúðkaupi sínu og Sigþórs og fengum við þá að vera prinsessur í heilan dag. Þegar ég varð eldri leit ég upp til hennar fyrir góð- mennskuna og ástina sem hún sýndi mér og fjölskyldu minni. Steina frænka var ein af fáum sem vissu að síminn virkar í báð- ar áttir, bæði til og frá Íslandi. Hún gat hringt og spjallað þótt ekki væru afmæli eða hátíðir. Við vorum svo heppin að Steina kom til okkar til Noregs, með mömmu og pabba, síðasta sumar. Hún ætlaði bara að vera hjá okkur í tíu daga en hún og við nutum svo vel samverunnar að hún var með okkur í heilan mánuð. Þann tíma þökkum við núna, öll fjölskyldan. Steina var heimsborgari. Ég þekki enga manneskju sem hefur ferðast og upplifað jafn mikið og Steina frænka. Hún náði að njóta lífsins og fá mikið út úr því. Steina var sú gestrisnasta manneskja sem ég hef hitt á æv- inni. Hún útbjó frábærar veislur með dásamlegum mat og þvílíku punti á veisluborðunum. Hún kenndi mér að það skiptir litlu máli hvort maður býður fimm manns eða tuttugu, það eru allir hjartanlega velkomnir. Já, þær voru glæsilegar veislurnar henn- ar Steinu Sig. Það að vinna með Steinu minni í eldhúsinu hefur kennt mér mikið. En það hefur ekki alltaf verið auðvelt. Nei, ég man eftir því, á unglingsárunum, hvernig var að þvo upp með henni. Ef ég þvoði upp, þá beið hún og ef hún þvoði upp þá var staflinn svo stór fyrir framan mig að hún varð að hjálpa til við að þurrka. Já, það var engin logn- molla í kringum hana Steinu. Það var alltaf mikil ást og vin- átta á milli Steinu og foreldra minna. Þegar Steina og Sigþór slitu samvistum fékk pabbi auka- konu. Mamma, pabbi og Steina hafa verið þríeyki sem hefur gert ýmislegt skemmtilegt saman. Þau fóru saman til útlanda, í leik- hús og á tónleika og borðuðu saman oft í viku. Ég sé pabba fyrir mér á milli þeirra systra, alltaf með tvær upp á arminn. Missir mömmu og pabba er mik- ill, og það er missir okkar líka. Barnabörnin mín kölluðu Steinu ömmu og þegar þau fengu að vita andlát hennar varð mikil sorg. Litla Ísabella Lára, sem varð sjö ára daginn sem Steina kvaddi þennan heim, setti hend- urnar saman í bæn og sagði: „Elsku góði Guð, skilaðu henni aftur, núna!“ Þessi orð held ég að lýsi líðan okkar allra. Nú er veisla á himnum og Steina er hrókur alls fagnaðar. Ég er viss um að hún kemur til með að taka á móti okkur opnum örmum með tilbúna hátíð þegar þar að kemur. Ég kveð yndislega konu með þakklæti og sárum söknuði. Guð blessi fallegan engil. Guðrún Kjartansdóttir. Steina frænka var systir mömmu, dóttir Dýrleifar Ár- mann og Sigurðar Magnússonar. Hún átti langan og farsælan starfsferil sem flugfreyja hjá Loftleiðum og Icelandair. Það er varla hægt að minnast hennar öðruvísi en að hugsa um fallega brosið hennar. Hún var alltaf brosandi, alla- vega til mín, nema einu sinni. Ég var næstum búinn að klifra yfir handriðið og fram af svölunum á Meistaravöllum, þar sem þau Sigþór bjuggu. Ég var þá fjög- urra ára og mér var sagt að hún hafi ekki brosað í það skipti. Ég trúi því að það sé satt. Það var alltaf svo spennandi að koma til þeirra í Heiðargerði og fá að skoða litlu köldu geymsl- una í kjallaranum. Þar kenndi ýmissa grasa og margt sem var lítt þekkt hér á landi. Hún var alltaf boðin og búin að kaupa eitthvað sem mig bráðvantaði frá Ameríku því hún var bóngóð með eindæmum og handlagin. Fyrir mörgum árum reið yfir heimsbyggðina tískubylgja þar sem slaufur og lindar þurftu að vera í stíl, blásið hár og sítt að aftan. Ég nefndi þetta við Steinu að það gæti nú komið sér vel að eiga svona sett með það að mark- miði að kannski væri hægt að kaupa svona úti í hinum stóra heimi. Það stóð ekki á Steinu og hún saumaði þá handa mér marga linda og slaufur í öllum regnbogans litum. Komi þessi bylgja aftur er ég klárlega tilbú- inn. Steina var alltaf boðin og búin að hjálpa til og gera okkur greiða. Hún bað þó sjaldan um aðstoð og aldrei greiða á móti en í þau fáu skipti sem það gerðist var það sett í algjöran forgang. Sælla er að gefa en þiggja er vart hægt að hugsa frá upphafi til enda án þess að upp komi minningin um Steinu. Það var alltaf gaman að fá Steinu í heimsókn þegar við fjöl- skyldan bjuggum í Þýskalandi. Margar ferðir hingað og þangað innanlands sem utan og það gustaði af Steinu í hvert skipti sem hún kom. Sennilega vegna þess að ferðalög voru henni í blóð borin en að skreppa til okk- ar var aldrei neitt mál og hún auðvitað alltaf velkomin. Steina var heiðarleg, einlæg og sagði nákvæmlega það sem henni fannst. Það eru kostir sem telja má til tekna. Þegar ég leit- aði ráða hjá henni fékk ég ekki alltaf svarið sem ég vonaðist til að heyra en ég fékk það svar sem henni fannst án þess að flækja málið mikið. Hún var alltaf höfðingi heim að sækja og gat hrist fram úr erminni veislu á mjög skömmum tíma án þess að maður hefði nokkuð um það að segja. Mat- urinn hennar Steinu var alltaf svo góður en hvernig hún gat borið hann fram og dekkað upp borð verður mér minnisstætt um aldur og ævi. Það var allt svo smekklegt og grand sem Steina gerði. Ég veit að flugið hennar Steinu frænku heldur áfram „non stop“ en að þessu sinni sem engill um bláfjallageim. Hinsta kveðja, Ólafur Kjartansson. Látin er í Reykjavík góð vin- kona okkar og ferðafélagi, Stein- unn Sigurðardóttir, eftir stutt veikindi. Steina, eins og hún var jafnan kölluð, valdi sér ung flug- freyjustarfið enda gaf það henni tækifæri til að svala ævintýraþrá og fróðleiksþorsta og kynnast heiminum af eigin raun. Hópur vina og nokkrir starfsfélagar úr fluginu tóku sig síðan saman þeg- ar fram liðu stundir og fóru að fara saman í vel skipulögð ferða- lög um Ísland á hverju sumri. Hópurinn víkkaði með árunum og tók sér hið metnaðarfulla nafn Félag framfarasinna. Valinn er áfangastaður þar sem gist er í nokkrar nætur og nágrennið kannað nokkuð ýtarlega. Förum saman í gönguferðir um marg- víslegar náttúruperlur landsins auk þess sem við heimsækjum söfn og kynnum okkur atvinnulíf og vinnustaði á svæðinu. Á fjór- um áratugum hefur hópurinn víða farið og orðið margs vísari um land og þjóð. Steina var með- al kjölfestuþátttakenda og ætíð virkur og skemmtilegur ferða- félagi enda þótti henni vænt um landið og var fróð um sögu þess og staðhætti víða auk þess að vera mjög minnug og gædd góð- um frásagnarhæfileikum. Hún hafði sterkar skoðanir á mörgum málefnum, stóð fast á sínu en var alltaf sanngjörn, raungóð og traust og umfram allt vinur vina sinna og fyrst til að bjóða fram aðstoð þegar svo bar undir. Félag framfarasinna hefur mátt sjá á bak nokkrum góðum félögum, eins og búast má við í fjörutíu ára gömlu félagi, þar á meðal ótvíræðum leiðtoga þess Erlendi Guðmundssyni flug- stjóra fyrir rúmu ári. Nú er aftur höggvið stórt skarð í raðir hóps- ins við fráfall Steinunnar Sigurð- ardóttur. Við þökkum henni fyrir dygga vináttu og farsæla samleið og vottum ástvinum hennar inni- lega samúð. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd Félags framfara- sinna, Ingunn Erna Stefánsdóttir, formaður, Sigurður Björnsson, varaformaður. Elsku Steina mín. Á þessum tímamótum hrannast upp minn- ingar frá nánast daglegum sam- skiptum í rúmlega fimmtíu ár. Öll skiptin sem við flugum saman, hvort heldur það var venjulegt áætlunarflug, jólaflug eða pílagrímaflug Loftleiða. Öll notalegu kvöldverðarboðin þín í hópi góðra vina, ánægju- stundir á golfvellinum, ekki síst golfferðirnar í Stykkishólm með vinahópnum. Ekki má gleyma bíó- og leikhúsferðunum og öllu skutlinu og búðarferðunum eða þegar þú hringdir og ég var staddur úti við, þá var alltaf fyrsta spurningin þín „á ég ekki að sækja þig“ sem alltaf var vel þegið. Okkur leið alltaf vel saman og gátum hlegið og ærslast, gátum orðið öskuill hvort út í annað, sem aldrei stóð þó lengi. Þú varst yndislegur vinur, Steina mín, alltaf tilbúin að hjálpa og verða að liði þar sem liðsinnis var þörf og munu marg- ir minnast þín fyrir það. Nú þegar kveðjustundin er komin þakka ég þér samfylgdina sem aldrei bar skugga á. Ég sendi Gunnari Þór, systr- um þínum og öðrum ættingjum og vinum innilegar samúðar- kveðjur. … Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er (Valdimar Hólm Hallstað) Guð blessi þig. Friðleifur Helgason (Diddi). „Þakka fyrir vinskap í hálfa öld.“ Þannig endaði Steinunn jólakveðju til mín í lok síðasta árs. Aðeins um mánuði síðar hafði hún kvatt þennan heim. Við Steina, eins og hún var alltaf köll- uð, hittumst fyrst þegar við vor- um báðar flugfreyjur hjá Loft- leiðum. Ég staldraði þar við í sjö ár en Steina starfaði í háloftunum í nær hálfa öld. Hún var flugfreyja af lífi og sál, elskaði starf sitt og stjanaði endalaust við farþegana með sinni miklu þjónustulund, brosi og hlýja viðmóti. Þótt margir hlakki til ævi- kvöldsins og að geta hætt að vinna átti það ekki við um Steinu. Hún hefði gjarnan viljað fljúga áfram, enda var hún alltaf jafn rösk og flott flugfreyja þótt ald- urinn færðist yfir. En ég fékk oft að njóta þjónustu hennar um borð eftir að ég hætti sem flug- freyja 1971. Það var mjög dýrmætt að eiga Steinu sem vinkonu en við bröll- uðum ýmislegt saman þegar við áttum stund frá fluginu og fórum í eftirminnileg frí saman, innan- og utanlands. Það var spennandi að ferðast með Steinu því hún var alltaf létt og skemmtileg, ævin- lega brosandi og elskaði að lenda í ævintýrum. Við fórum einu sinni á bíldruslu, fyrsta bílnum mínum árgerð 1955, í ferðalag norður í land og lentum í ótrú- legu basli við að reyna sjálfar að gera við bílinn. Steina rifjaði oft upp söguna þegar ég blés burt ol- íu og óhreinindum úr nálunum í blöndungnum með hóp stráka í kringum okkur, tilbúna að gera gys að stelpum sem gætu ekki komið bíl í gang. Þegar ég hafði hreinsað blöndunginn rann bíll- inn af stað og Steina hló sig mátt- lausa þegar við skildum strákana eftir, gapandi af undrun. Það var alltaf gaman að heim- sækja Steinu því hún var höfð- ingi heim að sækja, gat galdrað fram heilt veisluborð á stuttum tíma og hafði alltaf svo góða nær- veru. Þótt samverustundir okkar yrðu stopular eftir að ég fór á kaf í stjórnmálin urðu alltaf fagnað- arfundir þá sjaldan við hittumst. Jólakortin komu líka reglulega þessi 50 ár, alltaf full af gleði, hlýju og léttleika. Nú er síðasta jólakortið komið í hús og komið að skilnaðar- stundu. Ég sendi syni hennar, Gunnari Þór, og öðrum aðstand- endum innilegar samúðar- kveðjur. Hjartans þakkir, Steina mín, fyrir þinn trausta vinskap í hálfa öld. Jóhanna Sigurðardóttir. Fyrstu minningar mínar um Steinu Sig., eins og hún var alltaf kölluð í fluginu, eru frá Miðstræti í Reykjavík, þar ólumst við upp, Steina í nr. 7 og ég í nr. 10. Í Þingholtunum voru margir krakkar og lékum við okkur sam- an allan daginn og langt fram á kvöld. Í eltingaleikjum náðist Steina alltaf fyrst þar sem hún var ekki fljót að hlaupa sem barn. En hún óx svo sannarlega upp úr því og hefur síðan verið þekkt fyrir að vera rösk kona. Móðir mín dáðist alltaf að henni fyrir hversu kurteis og hugulsöm hún var þegar þær hittust í Miðstræt- inu og spurði frétta af fjölskyld- unni. Steina byrjaði í flugfreyju- starfinu hjá Loftleiðum hf. um tvítugt og varð það ævistarf hennar. Hún hefði getað flogið lengur en varð að hætta vegna aldurs 67 ára og var hún frekar ósátt við það. Hún var góð flug- freyja, einstaklega samviskusöm, var annt um farþegana sína og bar hag fyrirtækisins mjög fyrir brjósti. Þegar ég byrjaði í fluginu tók hún mjög vel á móti mér og kall- aði mig Önnu Dísu eins og í æsku. Hún var sjarmerandi, með einstaklega fallegt bros og sterk- ur persónuleiki sem gerði miklar kröfur til sjálfrar sín og annarra sem unnu með henni. Ég varð undrandi að heyra stundum að sumar flugfreyjurnar væru hræddar við hana, en hræðslan hvarf þegar þær kynntust henni betur því hún var gull af manni. Við störfuðum saman í fluginu í 30 ár, minnist ég allra skemmti- legu ferðanna og stoppanna með henni. Eitt sinn þegar við fórum saman í búðir í Lúxemborg ætl- aði ég að kaupa mér pils sem henni fannst alltof dýrt og sagð- ist geta hjálpað mér að sauma svona pils fyrir helmingi minna verð. Henni fannst nefnilega só- un og bruðl algjört rugl. Við vor- um saman í áhöfn tvö síðustu ár Flugleiða í pílagrímafluginu og hefði ég ekki viljað fara með neinni annarri fyrstu freyju en henni. Eins og hún sagði sjálf þá tók hún allt með nema „the kitchen sink“ og var það ótrúlegt hvað leyndist hjá henni þegar leitað var til hennar með hjálp. Hún hugsaði um okkur áhöfnina eins og við værum börnin henn- ar, gaf okkur rúgbrauð með ís- lenskri kæfu og gúrku, straujaði skyrtur, var alltaf jákvæð, upp- örvandi og í góðu skapi. Steina var úrræðagóð og vakandi fyrir öryggi um borð, minnist ég þess að eitt sinn þegar erlendir flug- menn flugu hjá félaginu fór Steina fram í flugstjórnarklefann fyrir flugtak og sagði að það heyrðist sérkennilegt hljóð í vél- inni þar sem hún keyrði eftir brautinni og ekki væri gott að fara í loftið án þess að athuga þetta. Erlendi flugstjórinn sneri sér við og sagði henni að setjast það styttist í flugtak, seinna þeg- ar þessi flugstjóri ræddi þetta við einn íslenska flugstjórann svar- aði hann: „Ef Steina Sig. segir þér að fara ekki í loftið, þá ferðu ekki í loftið,“ en vélin var biluð og þurfti að lenda aftur fljótlega eft- ir flugtak. Já, það borgaði sig að hlusta á Steinunni Sigurðardótt- ur. Anna Dísa kveður hér með Steinu Sig. með söknuði og þakk- læti fyrir 70 ára ánægjuleg kynni og sendir fjölskyldu hennar og vinum innilegar samúðarkveðjur. Anna Bjarna. Það er mjög erfitt að trúa þessu, að hún Steina sé horfin frá okkur svo snöggt og allt allt of fljótt. Steinunn Þóra Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA Fósturlandsins Freyja, fagra Vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís! Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár; þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár. (Matthías Jochumsson) F.h. Flugfreyjufélags Ís- lands, Berglind Hafsteinsdóttir, formaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.