Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 38

Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Andsetning nefnist sýning myndlist- ar- og samstarfskvennanna Önnu Hallin og Olgu Bergmann sem opnuð verður kl. 18 í kvöld, á Safnanótt, í Listasafni Einars Jónssonar og er sýningin samstarfsverkefni lista- kvennanna og safnsins í tilefni af Vetrarhátíð í Reykjavík. Olga og Anna sýna vídeóverk og hljóðmynd sem þær unnu í samein- ingu og eru verkin í tilkynningu sögð samleikur við höggmyndir Einars og bygginguna og takast á sinn hátt við anda verka hans og andrúmsloft safnsins í samtali á milli ólíkra tíma. Anna og Olga hafi áhuga á hugmynd- um Einars sem hafi verið innblásnar af kenningum 17. aldar heims- og dul- spekingsins Emanuels Swedenborg um andleg málefni og því hvernig hugmyndir Einars um listsköpun þróuðust frá jarðbundinni og symból- ískri sýn til andlegri nálgunar, dul- speki og þeirrar sannfæringar að list- in ætti að vekja til vitundar hin andlegu svið innra með manneskj- unni. Vísun í andlegan heim En hvers vegna varð þessi titill, Andsetning, fyrir valinu? „Þetta er ákveðin vísun í þennan heim sem er hérna inni á safninu sem er mjög upphafinn og andlegs eðlis,“ svarar Olga. „Það má segja að við séum að andsetja þessa veröld sem býr innan veggja safnsins með okkar eigin samtímalegu hugrenningum og tengingum, bæði með vísunum í verk- in og bygginguna og líka innblást- urinn sem við höfum sótt í þau.“ Vídeóverkunum, sjö talsins, er varpað með myndvörðum víða um safnið, bæði milli verka Einars og á þau og er sýningin því ákveðið sam- spil milli hinna nýju verka og verka Einars og einnig milli samtímans og þeirra gjörólíku tíma sem Einar vann sín verk á en hann var einn þeirra myndlistarmanna sem lögðu grunn að nútímamyndlist í upphafi 20. aldar, eins og fram kemur á vef safnsins. Musteri undir lífsverkið Anna og Olga sýna verkum Einars mikla virðingu og segja afar spenn- andi að sýna í þessu merka safni. „Þetta er mjög sérstakt safn og óvenjulegt, eiginlega musteri undir lífsverk eins listamanns,“ segir Olga og Anna tekur undir með henni og segir þær Olgu hafa áður unnið í sam- einingu myndlistarsýningar í sam- hengi við söfn og sýningar í þeim. „Okkur finnst spennandi að vinna svona,“ segir Anna en þær Olga hafa unnið saman frá árinu 2005 og m.a. sýnt í Listasafni Íslands, Safnasafn- inu og á norræna tvíæringnum Mo- mentum í Moss í Noregi. Þá hafa þær líka unnið verk fyrir opinber rými, bæði tímabundin í formi innsetninga og verk fyrir almenningsrými og op- inberar byggingar. helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/RAX Upphafinn heimur  Anna Hallin og Olga Bergmann opna Andsetningu í Listasafni Einars Jónssonar  Sérstakt safn og óvenjulegt Samvinna Anna og Olga með eitt verka sinna í bakgrunni. Sýning á verkum eftir myndlistar- konuna Eyborgu Guðmundsdóttur (1924-1977) verður opnuð á Kjar- valsstöðum í dag, föstudag, klukk- an 17 og er opnun sýningarinnar á dagskrá Safnanætur. Sýningin nefnist „Hringur, ferhyrningur og lína“ og er tilvitnun í Eyborgu þegar hún lýsir frumformi geó- metrískrar listar. Sýningarstjórar eru Heba Helgadóttir listfræðinemi og Ingi- björg Sigurjónsdóttir myndlist- armaður. Eyborg Guðmundsdóttir var af- kastamikill myndlistarmaður þrátt fyrir stuttan feril. Hún vann að myndlist í um 16 ár og eftir hana liggja um eitt hundrað listaverk. Hún markaði sér stöðu sem helsti fulltrúi geómetríska málverksins á Íslandi, umgekkst listamenn í Reykjavík og París og lærði af þeim. Helstu leiðbeinendur hennar voru Dieter Roth, sem hún fundaði reglulega með á Íslandi, og í París naut hún leiðsagnar listamanna eins og Georges Fol- mers og Victors Vasarelys – sem nefndur er „afi“ op-listarinnar eða „optical art“. Í op-listinni er áhersla lögð á samband áhorfand- ans og listaverksins og gerð til- raun til að breyta skynjun með framsetningu lita, forma og ljóss. Á árunum 1963-67 tók Eyborg þátt í samsýningum í París og hún hélt þrjár einkasýningar á Íslandi, í Þjóðminjasafninu 1965, á Mokka 1966 og í Norræna húsinu árið 1975 en það var hennar síðasta sýning. Auk þess að mála hannaði Eyborg bókarkápur, sýning- arskrár, blaðaforsíður og fagurt handrið á Hallveigarstöðum við Túngötu. Hringur, fer- hyrningur, lína  Verk Eyborgar á Kjarvalsstöðum Op-art Partition I, Verk eftir Eyborgu Guðmundsdóttur frá 1966. Beirút, Beyrut, Beyrouth, Beyrout er yfirskrift sýningar sem verður opnuð í Listasafni Íslands í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20 og er opnunin á dagskrá Safnanætur. Á sýningunni eru verk eftir 15 listamenn frá Beirút sem allir hafa vakið athygli í alþjóðlegum mynd- listarheimi. Sýningarstjórar eru Marianne Hultman, Ýrr Jónasdóttir og Birta Guðjónsdóttir og var sýn- ingin áður sett upp í Oslo Kunst- forening í Noregi og í Ystads konst- museum í Svíþjóð. Á undanförnum árum hefur lista- lífið í Beirút fangað athygli um- heimsins. Skýringuna, samkvæmt tilkynningu, er ekki aðeins að finna í einskærum hæfileikum listamann- anna, heldur einnig í myndlistar- senu sem sameinar ólíkar kyn- slóðir, skapar samhug, er full eldmóðs, örlát og er að sönnu al- þjóðleg. Hún virðist – a.m.k séð ut- an frá – bjóða alla velkomna til þátttöku. Sýningin dregur fram og rýnir í sögu, samfélag og stjórnmál í flóknu þjóðfélagi. Heiti sýningar- innar vísar til þess menningarlega fjölbreytileika sem Líbanon og Austurlönd nær búa yfir en þau eiga sér langa sögu sem fjöltyngt fjölmenningarsvæði. Málverk Raed Yassin: Ásamt Imad Hamdi og tvíburabróður hans, 2013. Verk frá Beirút Opið: virka daga frá 10 - 18 laugardaga frá 11 - 17 sunnudaga frá 12 - 16 skoðið úrvalið á facebook Fyrsta sending ársins frá HUMMEL fyrir krakkana er komin Uno Pants 4595 kr. Charlotta peysa 7995 kr. Felicia leggings 5995 kr. Limar hettupeysa 7995 kr Limar peysa 5995 kr Kamma T-shirt 4595 kr. Kamma T-shirt 4595 kr. Margret buxur 5495 kr. Lindy bolur 3495 kr.Hattie kjóll 5995 kr. Hattie buxur 5495 kr. Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar og fengið sent hvert á land sem er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.