Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 17

Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 NÁTTÚRULEG HRÁEFNI • ENGIN AUKAEFNI ENGINN VIÐBÆTTUR SYKUR • TREFJARÍKT olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn. 8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu. Einnig mikið úrval aukabúnaða. Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is maxipodium 500 Hestakerrur frá Fautras maxipodium 500 Ísraelar hugðust skjóta fyrsta tunglfari sínu á loft í nótt og í því eru m.a. segulsviðsmælar til rannsókna sem vís- indamenn vona að varpi ljósi á myndun tunglsins. Hing- að til hafa aðeins Bandaríkin, Rússland og Kína sent geimför til tunglsins. „Við erum að komast á spjöld sög- unnar og stolt af því að tilheyra hópnum sem hefur látið þennan draum rætast, því að þótt mörg ríki hafi átt sér þennan draum hefur aðeins þremur tekist þetta,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Morris Kahn, formanni SpacelL, félags sem stofnað var í Ísrael árið 2011 með það að markmiði að senda geimfar til tunglsins. Geimfarið er ómannað, nefnist Beresheet (Upphafið á hebresku) og á að lenda á tunglinu í apríl. Gert er ráð fyrir að hámarkshraði tunglfarsins verði um 10 kíló- metrar á sekúndu. Meginmarkmiðið er að mæla segul- sviðið til að varpa ljósi á myndun tunglsins en í geim- farinu er einnig „tímahylki“ með rafræn skjöl sem innhalda m.a. Biblíuna, teikningar barna, ísraelska söngva og frásagnir manna sem lifðu af útrýmingar- herferð nasista gegn gyðingum. Geimfarið kostaði jafn- virði 12 milljarða króna. „Þetta er ódýrasta geimfar sem hefur farið í slíka ferð,“ hefur AFP eftir skipuleggj- endum ferðarinnar. „Beresheet verður fyrsta geimfarið sem lendir á tunglinu fyrir tilstilli einkafyrirtækis.“ Fyrsta tunglferð Ísraela Heimildir: Geimrannsóknastofnun Ísraels/IAI/SpaceIL/ Nasa/SpaceX/spacecoastlaunches/Fjölmiðlar í Ísrael/ AFP Photo/Jack Guez Geimfarið Beresheet (Upphafið) Kl. 01.45 í nótt að ísl. tíma frá Cape Canaveral í Flórída Stjórnstöð: Yehud í Ísrael Mare Serenitatis (Kyrrðarhafið) Markmið: Segulsviðið verður mælt til að varpa ljósi á myndun tunglsins „Tímahylki“ Rafræn skjöl sem innihalda m.a. Biblíuna og ýmis gögn Þyngd: 585 kg Hæð: 1,5 m Þvermál: 2 m Kostnaður: 100 milljónir $, jafnvirði 12 milljarða króna Lengd ferðar: 2,5 mánuðir Geimfarið á að lenda á tunglinu 11. apríl Sólarrafhlöður Thrusters Lendingar- búnaður Eldflaug af gerðinni Falcon 9 Knúningskerfi Fáni Ísraels Segulsviðsmælir, myndavélar, leysigeisla- og ljósspeglabúnaður frá NASA Farmur: Skotið á loft Geimfarið á að rannsaka hvernig tunglið myndaðist Frans páfi setti í gær fjögurra daga ráðstefnu í Páfagarði um baráttuna gegn kynferðislegu ofbeldi presta gagnvart börnum og hvatti til „raun- verulegra aðgerða“ til að koma í veg fyrir það. Þetta er í fyrsta skipti sem kaþólska kirkjan efnir til slíkrar ráð- stefnu um barnaníð eftir hvert hneykslismálið á fætur öðru vegna kynferðislegs ofbeldis presta gegn börnum víða um heim, síðast í Síle, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Frans páfi sagði að kaþólskir söfn- uðir biðu ekki aðeins „eftir einföldum og fyrirsjáanlegum fordæmingum heldur raunverulegum og árangurs- ríkum aðgerðum“. „Hlustum á hróp smáfólksins sem sárbænir okkur um réttlæti.“ 114 biskupar taka þátt í ráðstefn- unni og markmiðið með henni er að fræða þá um hvernig taka eigi á barnaníði presta. Biskuparnir hlýða á ræður, taka þátt í umræðum vinnu- hópa og hlýða á frásagnir fólks sem sætt hefur kynferðislegu ofbeldi presta. Páfi lagði fram leiðbeiningar um hvernig taka ætti á slíkum málum, en sumum tilmælanna hefur nú þegar verið komið í framkvæmd innan kirkjunnar í nokkrum löndum. M.a. er mælst til þess að settar verði siða- reglur sem prestum beri að virða, fólk innan kirkjunnar verði þjálfað í því að afhjúpa barnaníð og kæra kyn- ferðislegt ofbeldi gegn börnum til lögreglunnar og fórnarlömbum slíks ofbeldis verði gert kleift að kæra það til sérstakra fulltrúa kirkjunnar. Deilt um refsingar Ágreiningur hefur verið innan kaþólsku kirkjunnar um hversu langt eigi að ganga í því að refsa prestum sem gerast sekir um barnaníð og biskupum sem reyna að hylma yfir með þeim. Biskupar frá Bandaríkj- unum og nokkrum fleiri löndum hafa beitt sér fyrir því að allir prestar sem fundnir eru sekir um barnaníð verði sviptir prestsembætti til frambúðar, óháð því hversu mörg kynferðisbrot þeirra eru. Biskupar í mörgum öðr- um löndum eru andvígir þessu og vilja að refsingarnar verði misþungar eftir því hversu mörg kynferðisbrot prestanna eru. bogi@mbl.is AFP Barnaníð rætt Frans páfi á bæn í gær þegar hann setti biskuparáðstefnu í Páfagarði um kynferðislegt ofbeldi kaþólskra presta gegn börnum. Tekið verði á barnaníði  Páfi vill „raunverulegar aðgerðir“ Bandaríski leikarinn Jussie Smollett hefur verið ákærð- ur fyrir að hafa fengið tvo menn til að setja á svið árás á hann, að sögn lögreglunnar í Chicago. Hún segir að leik- arinn hafi gert þetta vegna þess að hann hafi verið „óánægður með laun sín“. Smollett kærði árásina sem hatursglæp og sagði að ráðist hefði verið á hann vegna þess að hann væri samkynhneigður blökkumaður. Lög- reglustjóri borgarinnar sagði að með blekkingunni kynni leikarinn að fæla raunveruleg fórnarlömb haturs- glæpa frá því að kæra árásir þar sem þau gætu óttast að kæran yrði dregin í efa. Sagður hafa látið setja árás á svið Jussie Smollett

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.