Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 ✝ Agnar Einars-son fæddist 21. október 1931 í Reykjavík. Hann lést 13. febrúar 2019 á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð. Foreldrar hans voru Þóra Ingibjörg Gísladóttir, f. 19.6. 1906 á Eskifirði, d. 27.1. 1967, og Einar Vídalín Einarsson, f. 28.4. 1907 í Vestmannaeyjum, d. 4.10. 1990. Agnar var næstelstur fjög- urra systkina, þau eru: Sig- urborg, f. 1930, d. 2015, Eiríkur, f. 1935, d. 1989, og María, f. 1941. Agnar kvæntist 4. janúar 1958 Guðrúnu Hall, f. 1935 í Reykjavík, d. 2014. Foreldrar hennar voru Brynhildur Jón- atansdóttir Hall, f. 1910 í Reykjavík, d. 1973, og Garðar Hall, f. 1907 á Þingeyri, d. 1997. Eignuðust þau þrjú börn, 1) Sigríður Pétursdóttir, f. 1961. Synir Garðars með fyrrv. maka eru a) Geir, f. 1993, í sambúð með Rögnu Ólafsdóttur, f. 1992, b) Hugi, f. 1997. Sonur Sigríðar og stjúpsonur Garðars er Alex- ander, f. 1990. Agnar ólst upp fyrstu árin á Seltjarnarnesi og í Reykjavík. Árið 1946 fluttist hann að Vatnsenda þar sem faðir hans var stöðvarstjóri. Lengst af bjó hann í Fögrubrekku í Kópavogi, þar sem hann byggði heimili fyrir fjölskylduna. Agnar lærði útvarps- og símvirkjun og síðan til sýningarmanns sem hann starfaði við frá 1949-1972. Vann hann í Tjarnarbíói, Stjörnubíói og Tónabíói. Árið 1972 hóf hann störf hjá Sjónvarpinu, lengst af sem hljóðmeistari þar til hann lét af störfum 1998. Eftir það starfaði hann að hluta til í Kvik- myndasafni Íslands og Bæj- arbíói í Hafnarfirði. Músík var líf hans og yndi frá barnsaldri og spilaði hann á píanó, harmonikku og gítar. Útför Agnars fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 22. febr- úar 2019, klukkan 13. Brynhildur, f. 1955, maki hennar er Sveinn Þor- steinsson, f. 1953. Eiga þau tvo syni, a) Agnar, f. 1972, maki hans er Elín Freyja Eggerts- dóttir, f. 1975. Eiga þau saman Svein Brynjar, f. 1999, unnusta hans er Anita Ósk, f. 1999, sonur Elínar og stjúpsonur Agn- ars er Eggert Sveinn, f. 1992, sem er í sambúð með Karenu Ösp, f. 1992. b) Arnar, f. 1984, í sambúð með Sif Maríudóttur, f. 1991. Eiga þau soninn Elmar, f. 2017. 2) Erna Guðrún, f. 1959, maki hennar er Þorlákur Björnsson, f. 1955. Eiga þau þrjú börn, a) Björn, f. 1995, í sambúð með Lilju Dögg Diðriks- dóttur, f. 1995. b) Guðrún, f. 1998. c) Agnar, f. 1998, unnusta hans er Lýdía Hrönn, f. 1998. 3) Garðar, f. 1965, maki hans er Í Biblíunni er ritað: „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlut- ur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma, að gráta hefur sinn tíma og að hlæja hefur sinn tíma.“ Nú kveðjum við með söknuði elskulegan föður okkar og mun ljós góðra minninga lýsa okkur um ókominn veg. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd, í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir) Brynhildur, Erna og Garðar. Nú hafa heiðbláu augun lokast í hinsta sinn og glettið brosið mun aðeins lifa í minningunni. Þétt faðmlag og léttur koss á kinn. Í banka minn- inganna má líka finna ótal gleði- stundir þar sem Aggi var hrókur alls fagnaðar og lék á píanó, harmonikku eða gítar. Ég varð þeirrar ánægju að- njótandi að kynnast tengda- pabba 14 árum áður en ég kynntist syni hans. Við unnum saman hjá Sjónvarpi allra lands- manna, og á löngum þuluvöktum gladdi það mig þegar ég sá að hann var að vinna. Þá var nokk- uð víst að milli atriða yrði spjall- að af mikilli ástríðu um kvik- myndir. Í mestu uppáhaldi hjá honum var Brúin yfir Kwaifljótið eftir David Lean. Ég var ekki ein um að kunna að meta hann sem samstarfsmann, því hann var bæði fagmaður fram í fingur- góma og með einstaklega ljúft geðslag. Auk þess að vinna hjá Ríkis- sjónvarpinu sem hljóðmaður, og á Ampex, var hann sýningar- maður bæði í Tónabíói og Stjörnubíói. Þegar hann var kominn á eftirlaun fékk hann svo vinnu á Kvikmyndasafninu og var sýn- ingarmaður í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Þar lágu leiðir okk- ar aftur saman þegar hann að- stoðaði mig við að gera innslag um safnið. Ekki datt mér í hug þegar ég kvaddi hann þá að næst myndi ég hitta þennan ljúfling sem kærasta sonar hans. Ég get viðurkennt að ég vonaðist til að eplið félli ekki langt frá eikinni, og mér varð að ósk minni. Aggi og Gunna tóku mér og ungum syni með opnum örmum. Við nutum þess að hlusta á hann tala um reynslu sína af því að vera sýningarmaður á fyrri hluta síðustu aldar, og segja sögur af ævintýralegum ferðum með dag- skrárgerðarfólki og hljóðupptök- um við mismunandi aðstæður. Það voru forréttindi að heyra hann tala um ferðir með Ómari Ragnarssyni á Frúnni, upptökur á Skralli í Skötuvík með Hljóm- sveit Ólafs Gauks, og sjónvarps- myndinni Draugasögu eftir Við- ar Víkingsson, svo fátt eitt sé nefnt. Hann ljómaði þegar hann útskýrði fyrir okkur hvernig hann tók upp dropahljóðið fyrir Draugasögu í baðherberginu í Fögrubrekku. Ýmislegt brölluðum við líka saman, og til að mynda var hljóðið sem spilað var í upphafi og lok útvarpsþáttarins Kviku tekið upp í Bæjarbíói. Þar keyrði Aggi upp gömlu sýningarvélina, og lét filmuna rúlla. Eins og í öllu sem hann tók sér fyrir hend- ur var vandvirknin í fyrirrúmi, og hann endurtók leikinn þar til hljóðupptakan var óaðfinnanleg. Einnig má ekki gleyma að Aggi var með óborganlegan húmor og eitt af því fyndnasta sem hann vissi voru óheppilega orðaðar setningar í minningar- greinum. Hann klippti þær út og laum- aði að okkur gullkornum sem fengu okkur til að veltast um af hlátri. Með söknuð í hjarta er gott að ylja sér við minningar um skemmtilegan og góðhjartaðan mann, og dásamlegar stundir í faðmi fjölskyldunnar í Fögru- brekku. Guð gefi ástvinum Agnars Einarssonar styrk í sorginni. Blessuð sé minning hans. Sigríður Pétursdóttir. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta, söknuðurinn laugar tár á kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta, dökkur skuggi fyllir huga minn (Hákon Aðalsteinsson) Það er sorg í huga mínum þegar ég kveð móðurbróðir minn Guðna Agnar Einarsson eins og hann hét fullu nafni. Hann er sá þriðji af fjórum systkinum sem kveður og nú er aðeins Maja móðursystir eftir, sem því miður er stödd erlendis og getur ekki verið með okkur í dag. Aggi, eins og hann var alltaf kallaður, hefur verið samofinn fjölskyldu minni alla mína tíð. Hann var ljúfmenni, skemmti- legur og kunni óteljandi brand- ara. Margs er að minnast, bíóferð- ir með ömmu í Stjörnubíó á ár- um áður þar sem hann var sýn- ingarmaður, öll afmælin, veislurnar og þorrablótin þar sem fjölskyldan átti góðar stund- ir við söng og spil. Já, Aggi var mikill hæfileika- maður á tónlistarsviðinu og hann og móður mín sungu saman inn á plötu árið 1943 þá 12 og 13 ára gömul. Þau voru saman í barnakór, Sólskinsdeildinni, og sá kór hélt söngskemmtanir víða um land, með þau systkinin sem einsöngv- ara. Alltaf þegar fjölskyldan kom saman var spilað og sungið og ógleymanlegt er þegar þau systkinin sungu saman „Toa toggí“. Aggi vann sem hljóðmeistari hjá sjónvarpinu í mörg ár og ferðaðist víða um land með þáttagerðarmönnum. Oft heyrði maður skemmtilegar sögur úr þessum ferðum og greinilegt að hann hafði notið þeirra mikið. Hann var sjálfur liðtækur myndasmiður og það eru til margar skemmtilegar kvik- myndir, sem hann tók. Aggi var giftur Guðrúnu Hall og þau byggðu sér hús með fal- legum garði í Fögrubrekkunni. Þangað var gaman að koma, höfðinglega tekið á móti öllum hvort sem það voru fullorðnir eða börn. Guðrún lést í janúar 2014 og hann saknaði hennar mikið enda voru þau sem eitt. Síðustu árin voru honum erfið, sjúkdómar herjuðu á og líkaminn var orðinn þreyttur. Nú er hann lagður á stað í sumarlandið þar sem Guðrún bíður hans og þau verða sam- einuð á ný. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka samferðina með Agga og Guðrúnu og bið Guð að blessa minningu þeirra. Þóra I. Guðnadóttir. Agnar Einarsson Minn hjartkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ÓLAFUR HÁKON GUÐMUNDSSON, Grashaga 20, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 15. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Selfosskirkju þriðjudaginn 26. febrúar klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð sem stofnaður hefur verið honum til heiðurs og rennur óskertur til skógræktarverkefnis í Hellisskógi. Reikningur 0152-15-010797, kt. 070183-4399. Jónína Magnúsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn, systur hins látna og fjölskyldur Okkar ástkæra, GUÐRÚN BORGHILDUR STEINGRÍMSDÓTTIR, andaðist á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 17. febrúar. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gísli Árnason Unnur Úlfarsdóttir Bogi Guðmundur Árnason Kristín Hlíðberg Rafnsdóttir Sigurður Guðmundsson Gísli Örvar Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SÉRA SIGURÐUR HELGI GUÐMUNDSSON, Norðurbakka 3a, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 4. mars klukkan 13. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Sigurður Þór Sigurðarson Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Örn Hauksson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Jóhannes Rúnar Jóhannsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÚN HARTMANNSDÓTTIR frá Tumabrekku, Skagafirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 19. febrúar. Útförin auglýst síðar. Gunnlaugur Halldórsson Bjarni Halldórsson Kristjana Frímannsdóttir Hartmann Á. Halldórsson Sólveig Pétursdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn ✝ Erla fæddist íReykjavík 22. mars 1928. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. febrúar 2019. Erla flutti ung til Patreksfjarðar , en flutti síðan til Hafnarfjarðar 1963 og átti heima þar til æviloka. Foreldrar henn- ar voru Lára Stefanía Zulima Sigfúsdóttir, f. 7. október 1903, d. 16. febrúar 1972, og Jóhann Jónsson, f. 31. maí 1901, d. 29. janúar 1950. Systkini Erlu; Jóhann Agnar Jóhannsson, Vorm Finnbogi Jóhannsson, Baldur Jóhanns- son, Anna Jóhannsdóttir, Krist- ján Gunnar Jóhannsson, Sigfús Jóhannsson, Guðrún Jóhanns- dóttir og Helga Jóhannsdóttir. Erla giftist Ólafi Alfreð Sig- urðssyni þann 26. febrúar 1952. Ólafur Alfreð lést 22. júlí 1991. Foreldrar hans voru Hallfríður Ólafsdóttir og Sig- urður Sigurðsson. Börn þeirra: 1) Hallfríður Ólafs- dóttir, maki Jón Frímann Ágústs- son. 2) Heimir Ólafsson, maki Kristín Jónsdóttir. Börn þeirra: Erla, maki Heimir Jón- asson, börn þeirra, Eva Lillý og Christian. Jóna Kristín, maki Jón Ólafur Guðjónsson, börn þeirra Ásdís Birta og Kristín Rósa. Ólafur Fannar, maki Unnur Ósk Rúnarsdóttir, barn þeirra Rúrik Fannar. 3) Anna Ólafsdóttir, maki Páll Hermannsson. Börn þeirra: Steinþór, Sonja, Helena, maki Sigurður Ágústsson, Anna Sig- ríður, maki Jón Ari Arason, og Sveinbjörn. Útför Erlu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 22. febrúar 2019, klukkan 13. Mig langar að minnast hennar mömmu með nokkrum orðum. Hún var sú besta mamma sem nokkur gat fengið, það lék allt í höndunum á henni sama hvað hún gerði, baka, handavinna, elda eða garðurinn í bústaðnum. Hún fylgdist vel með hvað var í tísku og vildi alltaf vera vel til fara alveg fram á það síðasta eins að hafa huggulegt í kringum sig. Hún varð ekkja alltof snemma, bara 63 ára, en þá dreif hún sig í að taka bílpróf og keyrði allt sem hana langaði að fara, eins fór hún að ferðast mik- ið bæði með Bíbí systur sinni og Jóhannesi sem voru ofsalega góðir vinir hennar eftir að pabbi dó, eins hún Rósa okkar tengda- móðir Heimis, þær voru miklar vinkonur og ferðuðust mikið saman. Mamma og pabbi voru mjög virk í skátunum, Slysavarna- félaginu og Lions þegar við bjuggum á Patreksfirði. Mamma var virk í kvenfélag- inu Hringurinn í Hafnarfirði, saumaði og bakaði til að gefa til styrktar hinum ýmsu málefnum. Þau höfðu alltaf mjög gaman af að dansa gömlu dansana og kenndu okkur krökkunum að dansa þá. Takk, mamma, fyrir allar okkar góðu stundir og ár saman Blessuð vertu, baugalín. Blíður Jesú gæti þín, elskulega móðir mín; mælir það hún dóttir þín. (Ágústína J. Eyjólfsdóttir) Þín dóttir Hallfríður (Halla). Elsku tengdamamma mín kvaddi þennan heim 12. febrúar síðastliðinn. Erla var mér einstaklega góð og á ég margar ljúfar minningar með henni í gegnum árin enda var ég uppáhalds tengdadóttir þeirra hjóna, gift einkasyni þeirra Heimi. Erla var einstök kona, vildi öllum vel, fylgdist vel með börn- um, barnabörnum og langömmu- börnum og passaði alltaf upp á að allir fengju sínar jóla- og af- mælisgjafir, allt til hinsta dags. Erla var mikil hannyrða- og saumakona enda með afbrigðum handlagin og bar heimili hennar vott um það. Erla var áhugasöm um mál- efni líðandi stundar, hafði ríkar skoðanir og jafnréttiskennd enda gaman að tala um þjóðfélagsmál- in og var jafnan mikið líf í kring- um hana. Minningar sem koma upp í hugann um lífið með henni og tengdapabba í sumarbústaðnum, ferðalögin um landið og Kanarí þegar hún var áttræð, yndisleg ferð. Ferðirnar sem hún og mamma mín fóru og var eftirminnilegust ferðin þeirra saman til Kaliforníu til systur mömmu. Tengdamóðir mín var mjög söngelsk, spilaði á gítar á sínum yngri árum og kunni alla texta og nutu barnabörnin og lang- ömmubörnin sín að syngja með henni. Börnin okkar Heimis hafa fengið að njóta ömmu sinnar, elsku hennar, umhyggju, vænt- umþykju og kímnigáfu. Að fara á hamborgarastað og ís á eftir var hennar uppáhald. Að lokum vil ég þakka tengda- foreldrum mínum fyrir sam- fylgdina, betri tengdaforeldra gat ég ekki fengið. Blessuð sé minning elsku tengdamömmu. Við viljum þakka starfsfólki á 3. hæð á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða ummönnun og ekki síst Halldóru Hinriksdóttur sjúkraliða fyrir umhyggju henn- ar við Erlu fyrst í dagvistun á Hrafnistu og síðan á 3. hæð Hrafnistu. Gráttu ekki yfir góðum liðnum tíma. Njóttu þess heldur að ylja þér við minningarnar, gleðjast yfir þeim og þakka fyrir þær með tár í augum, en hlýju í hjarta og brosi á vör. Því brosið færir birtu bjarta, og minningarnar geyma fegurð og yl þakklætis í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kristín Jónsdóttir. Erla Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.