Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 30

Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 30
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Hrafnhildur Arnardóttir, eða Shop- lifter eins og hún er kölluð í listheim- inum, hefur verið í Mílanó undan- farna daga ásamt Lilju Baldurs- dóttur, sem er listrænn framleiðandi og sú sem hefur skipulagsmál, ráðn- ingar og hvers kyns samninga lista- konunnar á sinni könnu. Og er ekki síst talskona hennar. Tilefnið er tískuvikan þar í borg, sem Hrafn- hildur setur mark sitt á að þessu sinni. „Sandro Mandrino, aðalhönnuður tískuhússins Moncler, var innblásinn af verkum Hrafnhildar og gerði lín- una Moncler Grenoble undir áhrifum lita og áferða sem einkenna verk hennar. Hún var svo í beinu fram- haldi beðin um að búa til stóra inn- setningu fyrir tískusýningu Moncler í braggalaga göngum þar sem tísku- sýningarnar eru haldnar og gestir geta gengið á milli og séð það sem hönnuðirnir hafa fram að færa. Ekk- ert var til sparað í innsetningu Hrafnhildar, sem hlaut nafnið Sant- ropia,“ segir Lilja. Öll helstu tískuhús Ítalíu sýna að vanda á tískuvikunni í Mílanó 19.-25. febrúar. Að sögn Lilju var sýning Moncler, sem hófst klukkan átta í fyrrakvöld, ein sú stærsta sem um getur og vakti mikla athygli. Vogue- .com lýsir innsetningunni sem „cool- est room of the night“, svalasta rými kvöldsins. „Við Hrafnhildur erum himinlifandi með viðbrögðin. Inn- setningin sló í gegn og aðeins nokkr- um klukkustundum eftir opnun voru komnar myndir af henni á Vogue Italia og Vogue Runway, sem eru samtals með tæpar sjö milljónir fylgjenda á Instagram.“ Eftir sýninguna þáðu þær boð eiganda Moncler í glæsilegan „gala“- kvöldverð þar sem öll tískuelíta heimsins var samankomin að því er virtist. „Lykilfólk í tískuheiminum og frægt eftir því,“ segir Lilja. Sjónræn upplifun Mandrino sýndi fatalínu sína í göngum númer ellefu og umvafði innsetning Hrafnhildar fyrirsæt- urnar sem og gesti og gangandi. „Hápunktur kvöldsins,“ segir Lilja og heldur áfram: „Hrafnhildur hefur gert fjölda innsetninga og verka úr gervihári í öllum regnbogans litum líkt og hún vann með í Moncler- innsetningunni, sem hún skapaði al- gjörlega á eigin forsendum. Madrino og teymi hans notuðu sömu liti og gerviefni í flíkurnar.“ Lilja lýsir áhrifunum á áhorfendur sem „sækadelískum“ og yfirnáttúru- legum og segir fatalínuna draga dám af menningu indjána og hippanna, sem sé raunar vel við hæfi á 50 ára afmæli Woodstock-hátíðarinnar. „Sýningin var hressandi og ómót- stæðileg blanda sem kallaði fram súrrealíska senu af hippakúreka á skíðum,“ segir hún. Þótt Mandrino og fatalínur hans séu mestu skrautfjaðrir Moncler og jafnan beðið með hvað mestri eftir- væntingu, var hann ekki eini hönn- uðurinn sem tískuhúsið tefldi fram. „Auk Mandrino sýndu tíu aðrir hönnuðir undir merkjum Moncler, hver í sínum eigin braggalaga göng- um og höfðu öll rýmin sitt þema. Snillingarnir Moncler eru þeir kall- aðir og sýning þeirra Moncler Genius Show. Moncler leggur mikla áherslu á að gera tískusýningarnar að sjón- rænni upplifun fyrir áhorfandann,“ segir Lilja. Tískuvikan í Mílanó fer ábyggilega ekki framhjá mörgum sem drepa  Hárprúð innsetning Hrafnhildar Arnardóttur fyrir tískuhúsið Moncler vakti athygli á tískuvikunni í Mílanó Shoplifter í ítölsku tískuævintýri 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Félagið Íslensk grafík hefur verið í Hafnarhúsi með verkstæði sitt og sýningarsal allt frá árinu 1999 en þarf nú að flytja út fyrir 1. desember á þessu ári. Félagið fékk í lok nóvember í fyrra bréf þess efnis og mun Listasafn Reykjavíkur nýta rýmið sem losnar við flutninginn. Tilkynnt var í fyrra að Reykja- víkurborg myndi fá listaverkasafn Nínu Tryggvadóttur að gjöf frá dótt- ur hennar, Unu Dóru Copley, og sagði Arna Schram, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Morgunblaðið að ráðgert væri að ganga frá kaupum borgarinnar á þeim hluta Hafnarhússins sem hýsa ætti safnið í fyrra eða á þessu ári og að mikið verk væri framundan við að undirbúa húsið, skrá verkin og flytja þau til Íslands. Er því ljóst að hús- næðisþörf Listasafns Reykjavíkur hefur aldrei verið meiri eftir að þetta mikla safn verka bættist við. Hluti af safninu Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir að skrifað hafi verið undir viljayfirlýs- ingu í fyrra þess efnis að Reykja- víkurborg keypti þann hluta Hafnar- húss sem er í eigu Faxaflóahafna og því liggi fyrir endurskipulagning á nýtingu þess húsnæðis til framtíðar. „Þessi hluti hússins er skilgreindur sem hluti af Listasafni Reykjavíkur og mikil þörf fyrir að við fáum afnot af þessu rými,“ segir hún og að í ljósi framtíðaráforma hafi verið ákveðið að fara í þessa uppsögn á leigu fé- lagsins Íslensk grafík á húsnæðinu. Ólöf segir að Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, og þeir sem hafi umsjón með húseignum borgarinnar Íslensk grafík missir húsnæðið  Listasafn Reykjavíkur mun nýta það Ólöf K. Sigurðardóttir Elísabet Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.