Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 36
SÓLARFERÐIR • SIGLINGAR
FÓTBOLTI • BORGIR • SÉRFERÐIR
HREYFI- OG LÍFSTÍLSFERÐIR
TÓNLEIKAR OG HÓPAFERÐIR
GAMANÍ
SUMAR!
Green Garden
Resort & Suites
Tenerife
VERÐ FRÁ
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
VERÐ FRÁ 108.900
á mann m.v. 2 fullorðna
FERÐATÍMABIL 16.–23. MAÍ
Fjölskylduparadís
Innifalið í verði er flug, skattar, 20 kg taska, handfarangur og gisting.
Verðdæmi miðast við börn 2–11 ára.
www.gaman.is / 560 2000 / Bæjarhraun 14, 220 Hafnarfirði / gaman@gaman.is
Best Tenerife
Tenerife
VERÐ FRÁ
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
VERÐ FRÁ 100.900
á mann m.v. 2 fullorðna
FERÐATÍMABIL 9.–16. MAÍ
Morgunverður innifalinn
Frábær hótelgarður
Tigotan
Tenerife
VERÐ FRÁ
á mann m.v. 2 fullorðna
FERÐATÍMABIL 25. APRÍL – 2. MAÍ
Hálft fæði innifalið
Aðeins fyrir fullorðna
H10 Las Palmeras
Tenerife
VERÐ FRÁ
á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn
VERÐ FRÁ 116.900
á mann m.v. 2 fullorðna
FERÐATÍMABIL 14.–21. MAÍ
Morgunverður innifalinn
Frábær staðsetning
Marylanza
Tenerife
VERÐ FRÁ
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
VERÐ FRÁ 119.900
á mann m.v 2 fullorðna
FERÐATÍMABIL 22.–29. ÁGÚST
Gott íbúðahótel
Skoðaðu úrvalið
á gaman.is!Ronja ræningjadóttir, eða Ronja pii-aasup pania á grænlensku, er frum-
sýnd í þjóðleikhúsi Grænlands í
Nuuk í dag í leikstjórn Björns Inga
Hilmarssonar. Uppfærslan er sam-
starfsverkefni milli þjóðleikhúsa Ís-
lands og Grænlands. Samkvæmt
upplýsingum frá Þjóðleikhúsinu
standa vonir til þess að hægt verði
að bjóða sýningunni til Íslands.
Samstarf þjóðleikhúsa
Íslands og Grænlands
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 53. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Syrt hefur í álinn hjá ríkjandi Ís-
landsmeisturum ÍBV í handknatt-
leik karla sem eiga nú í harðri
keppni um að tryggja sér sæti í úr-
slitakeppninni um Íslandsmeistara-
titilinn. Listinn yfir meidda leik-
menn hefur lengst. Grétar Þór
Eyþórsson meiddist í byrjun vik-
unnar og Kári Kristján Kristjánsson
er einnig meiddur. »1
Enn syrtir í álinn
hjá Eyjamönnum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hádegistónar nefnist ný tónleika-
röð sem hefur göngu sína á Kjar-
valsstöðum í dag kl. 12.15 undir
listrænni stjórn Guðnýjar Guð-
mundsdóttur fiðluleikara. Á efnis-
skránni í dag verða þekkt og vin-
sæl íslensk verk og sönglög eftir
m.a. Jón Nordal, Jón Ásgeirsson,
Jórunni Viðar og Atla Heimi
Sveinsson í flutningi
Guðnýjar og Rich-
ard Simm
píanóleikara.
Næstu tónleikar í
röðinni verða 3.
maí og þá kemur
Hildigunnur
Einarsdóttir
messósópran
fram. Aðgang-
ur er ókeypis.
Íslensk rómantík á
Hádegistónum í dag
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hef fyrst og fremst áhuga á fag-
inu og metnað til að gera vel og fram-
leiða góða vöru fyrir viðskiptavinina,“
segir Sigurður Már Guðjónsson, höf-
undur köku ársins 2019.
Sigurður er bakara- og konditor-
meistari og eigandi að Bernhöfts-
bakaríi sem stofnað var 1834 og fagn-
ar því 185 ára afmæli í ár. Að sögn
Sigurðar hefur Bernhöftsbakarí verið
í eigu fjölskyldunnar síðan afi hans,
Sigurður Bergsson, tók við rekstr-
inum 1944.
„Ég hef nú lagt drög að því að
koma upp næstu kynslóð bakara því
ég og kona mín, Katerina Stepám-
ková, eigum von á barni í byrjun
apríl,“ segir Sigurður, sem hefur fjór-
um sinnum áður unnið bakarakeppni.
Árið 2009 vann hann Kahlúa-
keppnina sem var hliðarkeppni við
köku ársins. 2011 átti Sigurður köku
ársins, brauð ársins 2013 og köku árs-
ins 2018 og 2019. Sigurður segir að
kaka ársins 2019 sé með skyrmús líkt
og kaka ársins 2011.
„Neðst í köku ársins er súkkulaði-
botn með heslihnetum og appelsínu-
núggati ofan á. Ofan á það er sett
mulið kex til að fá stökkt inn í kökuna.
Næst er settur appelsínukjarni og
marsípanbotn þar á ofan. Allt er
þetta svo umlukið með vanilluskyr-
mús með ekta Madagaskar-vanillu-
stöngum,“ segir Sigurður og bendir á
að bökurum hafi verið skylt að nota
Odense-marsípan og appelsínu-
núggat, frá Ölgerðinni sem sé styrkt-
araðili keppninnar.
Sigurður segir það hjálpi til að
setja ákveðin skilyrði um hvað eigi að
vera í kökunni. Hún komi út í kring-
um konudaginn og það verði að passa
að kökuna sé hægt að baka í magni og
verðið sé viðráðanlegt.
„Ég er svo hjátrúarfullur að ég
byrja aldrei að þróa köku fyrr en
viku fyrir skilafrest og smakka hana
aldrei fyrr en eftir að hún hefur unn-
ið til verðlauna. Ég smakka allt sem
ég set í hana en fæ mér ekki sneið
fyrr en sigri er fagnað,“ segir Sig-
urður, sem telur að sex til sjö bak-
arameistarar prýði fjölskylduna.
Hann segir móður sína ekki hafa
lært bakaraiðn enda fáar konur í
iðninni á þeim tíma. Nú sé annað
upp á teningnum og konur í meiri-
hluta bakaranema á Íslandi og
konditora erlendis.
„Það er sama grunnnámið hjá
bökurum og konditorum en svo skil-
ur leiðir og bakarar sérhæfa sig í
brauðum en konditorar í kökum,
sætabrauði og konfekti,“ segir Sig-
urður og bætir við að starfið sé
skemmtilegt og gefandi. Hann segir
ekki verra að Katerina kona hans
sem er frá Tékklandi sé konditor.
Morgunblaðið/Eggert
Konditorhjón Sigurður Már Guðjónsson, höfundur köku ársins, með eiginkonu sinn, Katerina Stepámková.
Smakkar ekki kökuna
fyrr en hún hefur unnið
Á köku ársins í þriðja sinn Bernhöftsbakarí 185 ára