Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar í neytendahegðun telja
að WOW air hafi ekki mikinn tíma til
að sannfæra neytendur um að félagið
sé komið á réttan kjöl. Annars geti
traust neytenda á félaginu farið hratt
þverrandi.
Þórhallur Örn Guðlaugsson, dós-
ent í viðskiptafræði við Háskóla Ís-
lands, tekur fram að hann tjái sig al-
mennt um málið. Hann hafi hvorki
upplýsingar um bókanir hjá WOW
air að undanförnu né hvernig þær eru
í sögulegu samhengi.
„Öll skilaboð sem koma núna frá
félaginu miða að því að sannfæra fólk
um að þetta fari vel. Stjórnendur átta
sig á því að ef það myndast óvissa
mun fólk væntanlega ekki bóka hjá
félaginu heldur fara eitthvað annað.
Ef endurskipulagning félagsins
gengur eftir ætti ekki að taka langan
tíma að endurvinna traustið. Þetta er
til dæmis allt annars eðlis en þegar
bankarnir glötuðu trausti sem þeir
eru enn að basla við að endurheimta,“
segir Þórhallur Örn.
Þurfa að leysa málin hratt
Hann telur aðspurður að WOW air
hafi þó aðeins nokkrar vikur til að
endurheimta traust neytenda. Hvað
þá til að endurreisa félagið.
„Það er svo margt sem bankar upp
á hjá félaginu sem gerir þá kröfu að
leysa þurfi málin mjög hratt. Ef fé-
laginu tekst að leggja fram trúverð-
uga áætlun um að það sé rekstrar-
hæft held ég að það verði ekki
vandamál að endurheimta traust
neytenda á félaginu.“
Valdimar Sigurðsson, prófessor í
viðskiptafræði við Háskólann í
Reykjavík, segir WOW air hafa
byggt upp viðskiptatryggð. Skipti-
kostnaður ráði þó trúlega úrslitum.
„Tryggðin þýðir ekki aðeins að
neytendur velja fyrirtækið heldur
líka að þeir eru tilbúnir að gefa því
tíma í erfiðleikum. WOW air hefur
áunnið sér velvilja neytenda í gegn-
um tíðina fyrir að hafa lækkað verð á
flugmiðum til og frá landinu. Þannig
hefur WOW air veitt stóra félaginu,
Icelandair, meiri verðsamkeppni til
hagsbóta fyrir neytendur.“
Umræðan um verðið hjálpar
„Nú ræða sérfræðingar um að verð
á flugmiðum muni líklega hækka. Við
slíkar fréttir er líklegt að neytendur
muni hugsa sem svo að þeir vilji ekki
fá WOW air út af markaðnum. Samt
sem áður held ég að tryggðin eigi sér
takmörk. Að það sé fyrst og fremst
skiptikostnaðurinn sem ráði úrslit-
um,“ segir Valdimar. Með skipti-
kostnaði vísar hann til þess kostnaðar
og þess óhagræðis sem fylgi því að
velja annað flugfélag. Gengið geti
hratt á viðskiptavild WOW air ef það
berast ekki fljótlega fregnir um að
framtíð félagsins hafi verið tryggð,“
segir Valdimar. Neytendur sem
pantað hafi ferðir með WOW air
muni spyrja sig hver réttindastaða
þeirra sé ef flugið fellur niður.
Framlegðin ekki mikil
Valdimar rifjar upp að mörg
stærstu gjaldþrot sögunnar hafi ver-
ið í flugheiminum. Framlegðin hjá
lággjaldafélögum sé ekki mikil.
Þá sé samkeppnin gríðarleg. Því
meira sem kauphegðun stjórnist af
verði þeim mun meiri þrýstingur sé á
verðlækkanir. Með því muni fram-
legðin skerðast enn frekar.
„Verð hafa verið mjög lág á þess-
um markaði. Olíuverð hefur verið að
stíga síðustu ár þótt það hafi lækkað
nokkuð að undanförnu. WOW air
tryggði sig hins vegar ekki gegn olíu-
verðinu. Fyrirtæki sem var fyrir
skömmu lofað fyrir að vera svo
tæknilega á undan keppinautum, og
með einfaldara skipulag, er ekki með
sömu ímynd í dag.“
WOW air hafi ekki
mikinn tíma til stefnu
Sérfræðingar segja enn hægt að endurheimta traust fólks
Morgunblaðið/Eggert
Í Leifsstöð Flugfreyjur WOW air á leið í flug. Félagið rær nú lífróður.
Valdimar
Sigurðsson
Þórhallur
Guðlaugsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íslenska flugmannafélagið, ÍFF, sem
er stéttarfélag flugmanna WOW air,
sendi í gær opið bréf til formanns
Blaðamannafélags Íslands. Gagn-
rýndu flugmenn-
irnir harðlega um-
fjöllun fjölmiðla
um félagið:
„Í ljósi óvæg-
innar umfjöllunar
íslenskra frétta-
miðla um WOW
air undanfarið
óskar Íslenska
flugmannafélagið
ÍFF, stéttarfélag
flugmanna WOW
air, eftir rannsókn á hlunnindum og
sporslum til blaðamanna s.s. frímiða-
hlunnindum frá helsta samkeppnis-
aðila WOW air. Við óskum eftir að
þetta verði kannað m.t.t. gagnsæis
blaðamanna gagnvart lesendum sín-
um. Ennfremur viljum við láta kanna
heimildaöflun íslenskra blaðamanna
um málefni WOW air hverju sinni,
þar sem margir þeirra reiða sig m.a. á
upplýsingar frá bloggara, búsettum í
Svíþjóð, sem er sjálfskipaður helsti
sérfræðingur Íslands í flugmálum og
oftar en ekki vitnað í órökstuddar
hugleiðingar hans,“ sagði í yfirlýsing-
unni.
Má ætla að vísað sé til Kristjáns
Sigurjónssonar, sem rekur turisti.is.
Skuldbinding blaðamanna
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, svaraði tilkynn-
ingunni með annarri yfirlýsingu á vef
félagsins, press.is.
„Það er ábyrgð blaðamanna að
fjalla á gagnrýninn hátt um mikilvæg
fyrirtæki í íslensku efnahagslífi, að
ekki sé talað um flugfélög sem starfa
á viðkvæmum neytendamarkaði. Það
er skuldbinding blaðamanna gagn-
vart íslenskum almenningi,“ sagði
m.a. í yfirlýsingunni.
Hjálmar segir aðspurður slíkar at-
hugasemdir því miður of algengar.
„Því miður vill það bregða við að
menn vilji skjóta sendiboðann. Við
blaðamenn erum vanir því. Þetta er
einn þáttur í því að mínu viti. Þetta er
fráleitt að öllu leyti. Blaðamenn hafa
því miður orðið fyrir aðkasti vegna
starfa sinna ítrekað og iðulega með
þessum hætti. Það er ömurlegt að
upplifa að verið sé að draga heiðar-
leika þeirra í efa,“ sagði Hjálmar.
Hlunnindi blaða-
manna séu könnuð
Flugmenn hjá WOW air ósáttir
Hjálmar
Jónsson
Breska ferðaskrifstofan Super Break
mun halda áfram áætlunarflugi til
Akureyrar næsta vetur og verður
þetta þriðja árið í röð sem flogið
verður á hennar vegum til Akureyr-
ar.
Í tilkynningu frá Flugklasanum
AIR 66N, sem vinnur að markaðs-
setningu á flugferðum til Akureyr-
arflugvallar, segir að breytingar
verði gerðar á skipulaginu, áætl-
unarflugið hefjist í febrúar 2020,
töluvert seinna en veturinn á undan,
og flogið verði fram í apríl.
Haft er eftir Chris Hagan, sem
hefur yfirumsjón með verkefninu hjá
Super Break, að 14 ferðir verði sett-
ar í sölu til að byrja með frá mik-
ilvægustu héraðsflugvöllunum á
Bretlandi. Þá standa vonir til þess
að hægt verði að bæta fleiri ferðum
við, jafnvel frá öðrum flugvöllum.
Þegar Super Break hóf fyrst að
bjóða ferðir til Akureyrar veturinn
2017 gekk vélunum erfiðlega að
lenda á flugvellinum. Flugfélagið
Enter Air sinnti leiguflugi fyrir
Super Break fyrst um sinn en nú er
flugið í höndum breska flugfélagsins
Titan Airways.
Fljúga áfram til Akureyrar
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
BELGINGUR
mokkahanskar
6.200
MÓA
prjónahúfa
11.500
HRÖNN
refaskinnsvesti
79.000
GOLA
Finn raccoonkragi
16.800
Velkomin í hlýjuna
ELÍN
mokkakápa
248.000
EIR úlpa
m/refaskinni
158.000
DRÍFA
skinnkragi
31.900
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Þýska sendiráðið óskar eftir
einbýlis/raðhúsi á
höfuðborgarsvæðinu
frá og með 1. ágúst nk í langtímaleigu.
Tilboð sendist á svanhvit@svanhvit.net