Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 33

Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 33
FRÉTTIR 33Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Gleðilega páska Nýju mini-eggin frá Góu eru fullkomið páskasmakk. Súkkulaðiegg og Hraunegg sem bráðna í munni. Verði þér að Góu! Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Gönguferð Frá kr. 209.995 Cinque Terre Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Gönguferð um Frá kr. 239.995 Hvítu Þorpin leiðakerfi félagsins. Einungis flug- leiðir til Tel Aviv, Lyon og Detroit standa eftir. Tvær hagspár Í erindi Ernu Bjargar í hagspá bankans kom fram að það yrði mikill varnarsigur fyrir íslenskt hagkerfi ef það næði að vaxa í ár en í ljósi hinnar miklu óvissu í flugmálum hérlendis gerði Arion banki tvær hagspár. Önnur þeirra byggist á því að íslensku flugfélögin verði tvö, en hin gerir ráð fyrir því að rekstur WOW air stöðvist. Arion banki gerir ráð fyrir samdrætti í hvoru tilfelli fyrir sig, -0,8% með WOW air, og -1,9% án WOW air, fyrir árið 2019. Gerir bankinn svo ráð fyrir hagvexti strax aftur árið 2020 en það taki lengri tíma fyrir hagkerfið að ná sér á strik án flugfélagsins. „Án WOW air getum við séð fram á 1,9% samdrátt í ár en 1,4% vöxt á því næsta. Þetta er ekki eins og hin- ar hefðbundnu hagvaxtarspár hafa verið, það er að segja að það hægi á hagvexti í ár en svo komi kröftugur vöxtur strax aftur á næsta ári,“ segir Erna. 9% eða 16% fækkun Erna segir fjölda ferðamanna vera helsta áhrifaþáttinn hvað varð- ar aðra undirliði landsframleiðslunn- ar og hvernig samspili á milli þeirra er háttað en bankinn gerir ráð fyrir 9% fækkun ferðamanna með WOW air en 16% fækkun án WOW air. Atvinnuleysi er að aukast að sögn Ernu, sama hvort flugfélagið WOW air stöðvar rekstur eða ekki. „Ferðamönnum er auðvitað byrj- að að fækka. Það gæti bent til þess að störfum í ferðaþjónustu muni fækka á næstu mánuðum ofan í kjaraviðræðurnar í dag,“ segir Erna en sé gert ráð fyrir að WOW air hætti rekstri spáir bankinn 4,4% at- vinnuleysi í ár. Í hinu tilfellinu spáir bankinn 3,6% atvinnuleysi. Nýr veruleiki Hún tekur fram að sú aðlögun sem jafnan hefur átt sér stað í ís- lensku hagkerfi hafi raungerst í gegnum verðbólgu og veikingu ís- lensku krónunnar. Staðan sé hugs- anlega önnur í dag. „Þessi aðlögun í hagkerfinu er að fara í meiri mæli í gegnum vinnu- markaðinn. Það er dálítið nýr veru- leiki fyrir íslenskt hagkerfi. Hin hefðbundna leið væri að hækka laun, velta kostnaðarhækkunum út í verð- lagið og veikja krónuna til þess að viðhalda samkeppnishæfninni,“ seg- ir Erna og heldur áfram. „En ef krónan er ekki að hreyfast mikið og það verður ekki hægt að velta þessum kostnaðarverðshækk- unum út í verðlagið verður náttúr- lega að taka aðlögunina annars stað- ar frá. Þá er það bara atvinnustigið sem er eftir,“ segir Erna. „Ef við til dæmis tækjum upp evru væri þetta tilfellið. Þá hefur þú ekki lengur þennan sveigjanleika í gegnum gjaldmiðilinn í staðinn og þarft því að taka út aðlögunina í gegnum vinnumarkaðinn. Miðað við orðræðu peningastefnunefndar þá virðist hún frekar vera tilbúin að fórna atvinnustigi til þess að við- halda verðstöðuleika. Þetta gæti verið nýr veruleiki í hagkerfinu. Peningastefnunefndin hefur líka tækin til þess að bregðast við en Seðlabankinn hefur 600 milljarða í hreinan gjaldeyrisforða og getur þar af leiðandi varið gengið. Ef krónan veikist ekki til þess að jafna sam- keppnishæfni þjóðarbúsins þurfa út- flutningsfyrirtækin að grípa til ann- arra ráða. Hagræðingaraðgerða, eins og við höfum séð að einhverju leyti núna hjá mjög mörgum fyrir- tækjum. Þroskamerki hagkerfisins? Spurð hvort þetta þýði að íslenskt hagkerfi sé því að þroskast segir Erna: „Það gæti verið. Það er alltaf verið að kalla eftir því að við færum okkur nær þessu norræna vinnu- markaðslíkani þar sem ekki er verið að semja um þessar miklu launa- hækkanir sem skila sér aldrei út í sömu kaupmáttaraukningu,“ segir Erna en Arion banki gerði ráð fyrir að samið yrði í hærra lagi í kjara- viðræðunum og umfram það svig- rúm sem Samtök atvinnulífsins hafa sagt að sé til staðar. Þroskamerki íslensks hagkerfis Morgunblaðið/Hari Hagvöxtur Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur Arion banka, spáir samdrætti í hagkerfinu með eða án WOW.  Erlendir ferðamenn hafa í 9 af hverjum 10 tilfellum aðra valmöguleika en WOW air til þess að fljúga beint til Íslands  Samdráttur í efnahagslífinu mun líklega bitna á atvinnustigi að sögn sérfræðings BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Að sögn Elvars Möller, sérfræðings í greiningardeild Arion banka, hefur ekki verið innistæða fyrir jafn lágum flugfargjöldum til Íslands og raun ber vitni síðustu ár. Að sögn Ernu Bjargar Sverris- dóttir, sérfræð- ings greiningar- deildarinnar, er óvissan í kringum íslensku flug- félögin og kjara- málin þess eðlis að gefa þurfti út tvær hagspár. Þetta er á meðal þess sem fram kom á morgunfundi Arion banka í gær. Fram kom í erindi Elvars að flug- fargjöld hefðu verið 40% lægri nú um áramótin en um áramótin 2014. Sé það sett í samhengi við þróun eldsneytisverðs þá var innistæða fyrir lækkun flugfargjalda á meðan heimsmarkaðsverð á eldsneyti var sögulega lágt árin 2015-2017. „En síðasta eitt og hálft árið þá hefur í raun ekki verið innistæða fyrir áframhaldandi lækkun flugfar- gjalda. Þetta hagstæða umhverfi sem var í rekstri flugfélaga hérna á Íslandi hefur súrnað dálítið hratt,“ segir Elvar í samtali við Morgun- blaðið og tók síðan dæmi af WOW Air. „WOW air hefur, sem dæmi, frá því það flaug sitt fyrsta flug árið 2012 að meðaltali greitt um það bil 1.000 kr. ár hvert með hverjum ein- asta flugfarþega sem flogið hefur með félaginu,“ segir Elvar en tíma- mörkin miðuðust við fyrsta uppgjör félagsins fram að 9 mánaða uppgjöri WOW air árið 2018 en félagið hefur tvívegis skilað hagnaði á sjö ára tímabili. Þá kom einnig fram að fyrir tvo af hverjum þremur áfangastöðum WOW air hafa flugfarþegar líka val um að fljúga með Icelandair hingað til lands. Sé horft á öll þau 25 flug- félög sem hingað fljúga til lands í sumar samkvæmt áætlun Isavia þá hefur flugfarþegi um annað flug- félag en WOW air að velja fyrir 9 af hverjum 10 áfangangastöðum í Elvar Möller Hækkun varð á hlutabréfaverði flestra félaga í Kauphöll Íslands í gær, en það var einungis stærsta fyrirtækið, Marel, sem lækkaði, eða um 0,55% í 637 milljóna króna við- skiptum. Gengi félagsins stendur nú í 538 krónum á hvern hlut. Úr- valsvísitala aðallista Kauphall- arinnar hækkaði um 0,2% í gær og stóð í 1.937,29 stigum í lok við- skiptadagsins. Mest hækkun varð í gær á bréf- um í Arion banka, eða 2,04% í 107 milljóna króna viðskiptum. Gengi bankans var 75 í lok dags. Næst- mest hækkaði síðan fasteigna- félagið Reginn, eða um tvö prósent, í 153 milljóna króna viðskiptum. Þriðja mesta hækkunin var svo á gengi annars fasteignafélags, Reita, en hlutabréfaverð fyrir- tækisins hækkaði um 1,95%. Gengi Icelandair hækkaði um 0,74% eftir nærri 10% lækkun dag- inn á undan. Flest félög hækkuðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.