Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Að minnsta kosti ein milljón gesta
mun streyma um hin stóru hlið risa-
stóru listamiðstöðvarinnar la Vil-
lette í París næsta hálfa árið til að
skoða sýningu um valdatíð egypska
faraósins Tutankhamuns, eins fræg-
asta fornkonungs Egyptalands. Þar
mun geta að líta urmul muna og
minja úr grafhýsi hans í Kon-
ungadal, sem er skammt frá Luxor í
Egyptalandi.
Sýningin hófst um nýliðna helgi
og stendur fram í september. Hún
fer fram í Villette-garðinum í 19.
hverfi Parísar, norðausturhluta
borgarinnar. Aðalsýningarhöllin í
garðinum, Grande halle de la Vil-
lette, er fyrrverandi sláturhús sem
breytt var í menningarmiðstöð.
Til sýnis verður vel á annað hund-
rað ómetanlegra dýrgripa úr graf-
hýsi hins unga konungs, sem lést
fyrir um 3.400 árum. Þar á meðal
eru 60 munir sem aldrei hafa farið
úr landi í Egyptalandi. Fornminj-
aráðuneytið í Kaíró segir þetta
stærsta safn smíðisgripa sem flutt
er til sýninga erlendis og að þeir
verði hugsanlega aldrei aftur sendir
úr landi.
Sýningin er sögð vera stór-
viðburður á sviði sögu, menningar
og lista. Gripirnir eru flestir fengnir
frá þjóminjasafni Egyptalands sem
stendur við Tahrirtorg í Kaíró. Að-
standendur sýningarinnar gera sér
vonir um að 1,2 milljónir manna
borgi inn í sýningarhöllina. Bara í
síðustu viku seldust 130.000 að-
göngumiðar áður en hlið Villette-
hallarinnar opnuðust.
Safn gripanna í Villette-höllinni á
sér engan líka en frá París verða
þeir fluttir til London í nóvember og
Sydney í Ástralíu snemma næsta
árs. Þaðan fer sýningin svo til sex
ótilgreindra annarra heimsborga áð-
ur en munirnir fara aftur til Egypta-
lands, í „Stóra þjóðarsafnið“ nærri
pýramídunum í Giza sem opnað
verður almenningi á næsta ári, 2020.
Louvre-safnið í París hefur einnig
lánað sína helstu Tutankhamun
muni til sýningarinnar, svo sem
Amonstyttuna, af konungi guðanna,
verndara faraóanna.
Mostafa Waziry ráðuneytisstjóri
innanríkisráðuneytis Egyptalands
segir að farandsýningin muni afla
fjár til að borga nýja safnið í Giza að
hluta til. „Endilega farið og skoðið
sýninguna, sjáið safngripina áður en
þeir snúa aftur heim til Egyptalands
til varanlegrar vörslu.“ sagði Waziry
við AFP-fréttaveituna.
Síðasta för úr landi
Með sýningunni er þess minnst að
hundrað áru eru frá því grafhýsi
hins unga konungs fannst. Þegar
komið er inn á sýningarsvæðið ligg-
ur leiðin upp Konungadal skammt
frá Luxor þar sem grafhýsið fannst
en notaðir eru risastórir skjáir og
mörg tonn af sandi til að móta þá
stemmningu.
Síðan opnast risastórar dyr inn í
hið hálfmyrkvaða innra hvolf hvelf-
inganna þar sem dýrgripirnir
standa. Þar hrífa einna mest gylltar
og svartar styttur í réttri stærð af
lífvörðum konungs sem stóðu beggja
vegna grafhvelfingar Tutankham-
uns
Auk stórra útfararmuna er þar
einnig að finna hanska, bandaskó,
reyrprik sem barefli og veiðiboga
sem faraóinn myndi brúka í næsta
lífi.
Myndbandssýningin sýnir frá
uppgreftri grafhýsisins og útskýrir
gríðarlega mikil áhrif „Tuts kon-
ungs“ í listum, tískuklæðnaði og al-
mennri menningu, allt niður til
sviðsmyndar tónleika poppstjörn-
unnar Beyonce sem hafa egypska
skírskotun.
„Tut-æði“
Fyrri sýningar um hinn unga kon-
ung voru stórviðburðir er settu af
stað „Tutæði“ um jarðir allar. Á ní-
undu milljón gesta sótti sýninguna
„Dýrgripir Tutankhamun“ í Met-
ropolitan listasafninu í New York
árið 1973. Til viðbótar stóðu 1,2 mill-
ljónir manns sex árum áður í bið-
röðum við Petit Palais safnið í París
til að skoða smærri sýningu, sem
kölluð var „sýning aldarinnar“. Ólíkt
þessum tveimur sýningum verður
helgríma Tutankhamuns ekki til
sýnis í Villette-höllinni. Hún er úr
skíragulli og vegur rúm 10 kíló.
Liggur bann við því að hún verði
flutt úr landi í Egyptalandi.
Tarek El Awady, forstöðumaður
Stóra þjóðarsafnsins hins nýja og
sýningarstjóri Parísarsýningarinnar
segir að menn til forna hafi dáð gull
„vegna þess að það breytist ekki“ og
myndi ekki glata ljóma sínum í eilífu
eftirlífi manna. „Hefðu þeir haldið
Milljón gestir skoða dýrgripi
Sýning á munum og minjum úr valdatíð egypska faraósins Tutankhamuns hófst í París um helgina
Gripir á sýningunni sagðir ómetanlegir en hafa þó verið tryggðir fyrir jafnvirði 95 milljarða króna
Viðbygging
Sonur Akhenatens;
lést 1324 fyrir Krist 19 ára að aldri.
Hann ríkti í 9 ár.
Fornleifafræðingurinn
Howard Carter fann grafhýsi
faraósins unga árið 1922
Norð
ur
Fjársjóðs-
herbergi
Ramses II
Akhenaten
Amenofis III
Tutankhamun
Fordyri
Neðanjarðar-
stígur
Grafhýsi Tutankhamuns
4 m
Tutankhamun
K
o n
u n
g a d a l u r i n n
Norður 100 m
AFP
Dýrgripir Styttur og veggmyndir á sýningu helgaðri Tutankhamun.
Faraó Stytta af faraóanum Tut-
ankhamun á sýningunni í París.
SJÁ SÍÐU 36
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Margverðlaunuð baðvifta
Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A)
Innbyggður raka-, hita-
og hreyfiskynjari.
Vinnur sjálfvirkt
3W
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími 570 8600
Smyril Line Seyðisfjörður 470 2808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Heimsæktu Færeyjar eða
Danmörku með Norrænu
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
Innifalið: Sigling með Norrænu fram og til baka, flutningur á bíl og gisting í 2m klefa án glugga.
Verð miðast gengi gengi DKK 30. janúar 2019 og getur breyst.
DANMÖRK FÆREYJAR
Lágannatímabil verð á mann ISK 58.000
Miðannartímabil verð á mann ISK 77.000
Háannatímabil verð á mann ISK 150.000
Lágannatímabil verð á mann ISK37.250
Miðannartímabil verð á mann ISK57.900
Háannatímabil verð á mann ISK88.800