Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Skólum og vinnustöðum í Venesúela
var lokað í gær og fyrradag eftir að
rafmagnsskortur gerði enn á ný vart
við sig á þriðjudaginn. Nicolas Mad-
uro, forseti landsins, sagði að
„hryðjuverkamenn“ bæru sök á
ástandinu, en tvær vikur eru síðan
rafmagnslaust var í nánast öllu land-
inu.
Sagði Maduro að skemmdarverk
hefðu verið unnin á Guri-vatnsafls-
virkjuninni, en hún sér 80% landsins
fyrir rafmagni. Svipaði því til útskýr-
inga Maduros á rafmagnsleysinu
fyrir tveimur vikum.
Vill að Rússar fari
Donald Trump Bandaríkjaforseti
krafðist þess í gær að Rússar drægju
til baka herlið sem þeir sendu til
Venesúela fyrr í vikunni, þegar hann
hitti Fabíönu Rosales, eiginkonu Ju-
an Guaido, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar, í Hvíta húsinu í gær. Sagði
Trump að allir valkostir væru enn á
borðinu þegar hann var spurður
hvort Bandaríkjaher væri að íhuga
inngrip í Venesúela.
„Þeir eru undir mikilli pressu
núna. Þeir eiga engan pening, þeir
hafa enga olíu, þeir hafa ekkert. Þeir
eru undir miklum þrýstingi, þeir
hafa ekkert rafmagn,“ sagði Trump.
Mike Pence varaforseti og Mike
Pompeo utanríkisráðherra höfðu
báðir áður kallað eftir því að Rússar
hættu stuðningi sínum við Maduro,
en um hundrað rússneskir hermenn
eru sagðir vera í landinu. „Guaido er
eini lögmæti forseti Venesúela.
Landið er í kreppu eftir áralangt ein-
ræði og kúgun,“ sagði Pence.
Lokað vegna rafmagnsleysis
Maduro kennir hryðjuverkamönnum um Rússar gagnrýndir í Washington
AFP
Rafmagnslaust Stjórnarandstæð-
ingar mótmæltu Maduro í gær.
Átök blossuðu upp milli Ísraela og Palestínumanna á
Gazasvæðinu í gær eftir að Hamas-samtökin skutu eld-
flaugum á Ísrael í fyrrinótt.
Samtímis voru óeirðir við Vesturbakkann, þar sem
þessi mynd er tekin, þar sem Palestínumenn mótmæltu
meðferð fanga í ísraelskum fangelsum.
AFP
Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs
Tekist á í Gaza og á Vesturbakkanum
Søren Pape
Poulsen, dóms-
málaráðherra
Danmerkur,
sagði í gær að
það hefði verið
betra ef þeir
Danir sem fóru
til að berjast fyr-
ir Ríki íslams
hefðu dáið í Sýr-
landi en að þeir
sneru aftur heim til Danmerkur.
Sósíaldemókratar gagnrýndu um-
mælin harðlega.
Stefna Dana er sú að taka aftur á
móti þeim vígamönnum hryðju-
verkasamtakanna sem teknir hafa
verið höndum á síðustu misserum.
Poulsen, sem er formaður danska
Íhaldsflokksins, lét ummæli sín
falla á fundi með þingnefnd danska
þingsins. Í máli hans kom einnig
fram að um 40 vígamenn með
tengsl við Danmörku væru í Sýr-
landi og að um tíu þeirra hefðu ver-
ið teknir fastir.
Betra ef vígamenn-
irnir hefðu dáið
Søren Pape
Poulsen
DANMÖRK
Mike Pence,
varaforseti
Bandaríkjanna,
tilkynnti í fyrri-
nótt að Banda-
ríkin ætluðu sér
að senda menn
aftur til tunglsins
innan næstu
fimm ára. „Ég
ætla að vera
skýr, fyrsta kon-
an og næsti maðurinn á tunglinu
verða hvort tveggja bandarískir
geimfarar, á bandarískum eld-
flaugum, sem skotið var af banda-
rískri grundu,“ sagði Pence.
Bandaríska geimferðastofnunin,
NASA, hefur sett sér það markmið
að senda mannað geimfar til
tunglsins árið 2028, en tafir hafa
plagað hönnunarferlið. Sagði
Pence að ef NASA treysti sér ekki
til þess að ná því markmiði yrði not-
ast við eldflaugar frá einkareknum
fyrirtækjum.
Vilja senda fyrstu
konuna til tunglsins
Mike
Pence
BANDARÍKIN
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti samflokks-
mönnum sínum í Íhaldsflokknum í
gær að hún myndi segja af sér áður
en næsta skref viðræðna við Evrópu-
sambandið hefst, ef breska þingið
samþykkir samkomulag hennar í
dag eða á morgun.
Tilkynningin kom eftir að John
Bercow, forseti neðri deildar þings-
ins, hafði ítrekað þann úrskurð sinn
að ríkisstjórn Theresu May væri
óheimilt að leggja fram Brexit-sam-
komulag hennar í þriðja sinn til at-
kvæðagreiðslu, nema búið væri að
gera breytingar á því.
Þetta þótti vera enn eitt áfallið
fyrir May, sem hafði vonast til þess
að geta lagt samkomulagið fram í
dag eða á morgun, en þá rennur út sá
frestur sem leiðtogar Evrópusam-
bandsríkjanna hafa gefið þinginu til
að samþykkja það.
Ekki bindandi fyrir May
Neðri deildin hóf sérstaka at-
kvæðagreiðslu um framhald Brexit-
málsins um sjöleytið í gærkvöldi og
lágu úrslit fyrir um níuleytið. Kusu
þingmennirnir á milli átta mismun-
andi valmöguleika, en á meðal þeirra
voru hvort Bretar ættu að taka upp
svipað samband við Evrópusam-
bandið og EFTA-ríkin, eða hvort yf-
irgefa ætti ESB án samkomulags 12.
apríl næstkomandi. Þá var þing-
mönnum einnig boðið upp á þann
kost að kalla eftir annarri þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Brexit-málið, en
kröfur um slíkt hafa færst í aukana á
síðustu vikum.
Endanleg niðurstaða lá ekki fyrir
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Atkvæðagreiðslan er hins vegar ekki
bindandi fyrir ríkisstjórnina og er
óvíst hvort May muni vilja eða geta
farið eftir vilja þingsins.
May býðst til
að segja af sér
Neðri deildin
kaus um framhald
Brexit-málsins
AFP
Brexit Þessi látbragðsleikari brá á
leik við breska þinghúsið í gær.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði í gærkvöldi að beiðni Sýr-
lendinga í kjölfar þess að Donald
Trump Bandaríkjaforseti ákvað fyrr
í vikunni að viðurkenna Gólanhæðir
sem hluta af landsvæði Ísraels.
Sögðu Sýrlendingar að ákvörðun
Trumps væri gróft brot á þremur
ályktunum öryggisráðsins.
Ísraelsmenn tóku hæðirnar í sex
daga stríðinu 1967 og innlimuðu þær
árið 1981, en alþjóðasamfélagið hef-
ur ekki viðurkennt þá ákvörðun.
Ríki Evrópusambandsins lýstu
því yfir í gær að þau myndu ekki við-
urkenna yfirráð Ísraela. Federica
Mogherini, utanríkismálastjóri sam-
bandsins, las upp yfirlýsingu þar
sem sagði að afstaða ríkjanna væri
enn óbreytt. Jonathan Cohen,
fulltrúi Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum sagði hins vegar að
ákvörðunin hefði verið tekin til að
standa uppi í hárinu á Bashar al-
Assad, forseta Sýrlands og til að
berjast gegn auknum ítökum Írana í
Mið-Austurlöndum.
Funduðu
um Gólan-
hæðir
ESB viðurkennir
ekki yfirráð Ísraels
m.
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni
rafhlöðu sem skilar afli til þess að slípa,
er léttari en snúrurokkur í sinni stærð.
POWERSTATE™ mótor
REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888