Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 21.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- GHOST BUSTER Náttborð – fleiri litir Verð 47.900,- stk. TAKE Borðlampi – fleiri litir Verð 12.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- Eins og fram hefur komið í fréttum und- anfarið, þá hefur mikið verið rætt og ritað um verkfalls- boðanir Verkalýðs- félaganna Eflingar og VR. Kannski er það nú þannig að hvorki Efling né VR hafi rétt til boðunar verkfalls fyrir hönd hópferðabílstjóra? Er það kannski Bifreiðastjórafélagið Sleipnir sem er hinn eini sanni og rétti aðili til verk- fallsboðunar hópferðabíl- stjóra? Bifreiðastjóra- félagið Sleipnir hefur aldrei sagt sig frá samn- ingsréttinum og allra síst eftir brottrekstur félags- ins úr Alþýðusambandi Íslands. Efling, ásamt öðrum stéttarfélögum, tók á sínum tíma að sér að semja fyrir hönd hóp- ferðabílstjóra, þvert gegn vilja Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, sem fram að þeim tíma hafði gert kjarasamninga fyrir þorra hópferða- bifreiðastjóra á Íslandi. Upp úr miðri seinustu öld var stofnað stéttarfélagið Frami og voru hópferðabílstjórar þar á meðal. Árið 1969 klufu hópferðabílstjórar sig úr Bílstjórafélaginu Frama og stofnuðu nýtt stéttarfélag, Bifreiðastjóra- félagið Sleipni, og fékk félagið strax aðild að Alþýðusambandi Íslands, ASÍ. Félagssvæðið var í byrjun ein- skorðað við Reykjavíkursvæðið. Bsf. Sleipnir hefur alla tíð síðan, verið með fullgildan kjarasamning fyrir hönd hópferðabílstjóra og er kjarasamn- ingur Sleipnis við Samtök atvinnulífs- ins enn í fullu gildi. Upp úr 1990 náði félagið ásætt- anlegum kjarasamningi að mati fé- lagsmanna og í framhaldi af því, sýndu hópferðabílstjórar af lands- byggðinni áhuga á því að sameina fé- lagsmenn og gera Sleipni að lands- félagi. Voru þá þegar margir bílstjórar utan af landi gengnir í fé- lagið. Fljótlega kom fram tillaga um að breyta lögum félagsins og gera fé- lagið að landsfélagi, sem var gert og skyldi félagssvæði þess vera allt Ís- land. Umsókn um staðfestingu á þessari lagabreytingu var send til ASÍ sem hafnaði henni og vísaði Sleipni í framhaldinu úr sínum sam- tökum þar sem félagsmenn Bsf. Sleipnis vildu ekki draga þessa laga- breytingu til baka. Sýndi ASÍ með þessu sitt rétta andlit, en það er aug- ljóst að með þessari atlögu ASÍ að Sleipni, gerðu samtökin tilraun til að eyðileggja Sleipni og koma sem flest- um félögum þess í annað stéttarfélag, þ.e. Eflingu. Sama má segja um Efl- ingu, en um seinustu aldamót átti Bsf. Sleipnir í harðvítugri deilu við at- vinnurekendur. Þar sem illa gekk að ná samningum, afrituðu Efling og fleiri stéttarfélög kjarasamning Sleipnis og settu inn í sína kjara- samninga og slógu þar með öll vopn úr höndum Sleipnismanna, sem á endanum urðu að skrifa undir sam- bærilega samninga. Allar götur síðan þá, hefur Bsf. Sleipnir gert kjara- samning við SA og enn í dag er kjara- samningur við rekendur hópferða- bifreiða í fullu gildi og að mínu áliti er Bsf. Sleipnir hinn eini löglegi og rétti aðili til þess að boða til vinnustöðv- unar fyrir hönd hópferðabifreiða- stjóra. Það hefur Bifreiðastjóra- félagið Sleipnir ekki gert. Lögleg verkfallsboðun, eða ekki lögleg? Eftir Óskar Stefánsson Óskar Stefánsson » Að mínu áliti er Bsf. Sleipnir hinn eini löglegi og rétti aðili til þess að boða til vinnu- stöðvunar fyrir hönd hópferðabifreiðastjóra. Höfundur er formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis. oskar@konni.com Í samráðsgátt stjórnvalda var nú á dögunum birt frum- varp um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands – stjórn veiða á mak- ríl. Hægt var að senda inn at- hugasemdir til og með 19. mars sl. Meðal þeirra sem nýttu sér það var Landssamband smábátaeigenda. Frumvarpið felur í sér grundvall- arbreytingu á stjórnun makrílveiða. Úthluta á öllum skipum og bátum sem verið hafa á makrílveiðum aflahlutdeild sem tekur mið af 10 ára veiðireynslu á síðustu 11 árum 2008-2018. Helmingur tímans – engin veiðireynsla Smábátar hófu fyrir alvöru færa- veiðar á makríl árið 2013. Þá kom makríllinn sér á grunnslóðina. Smábátaeigendur útbjuggu sig með ærnum kostnaði og héldu til veiða. Ekki langt að fara, miðin alla jafna rétt við eða utan hafnar. Ári síðar voru 120 smábátar komnir á makríl og mikill hugur í mönnum. En Adam var ekki lengi í paradís. Óskiljanleg afskipti stjórnvalda í september 2014, af þessum um- hvefisvænu veiðum þar sem gæðin eru rómuð og hvert gramm fer til manneldis, stöðvuðu veiðar um hundrað báta í mokveiði. Annað áfallið kom svo 2015 þegar allur flotinn var kvótasettur, þar sem að- eins nokkrir tugir fengu nægilegar veiðiheimildir til að stunda veið- arnar áfram. Frumvarpið gerir ráð fyrir að hlutur þessara báta verði afar rýr. Innan við 20 bátar fengju úthlutað nægjanlegum heimildum til að hefja veiðar. Hjá flestum þessara aðila felur frumvarpið í sér að veiðireynsla er núll á helmingi þess tíma sem aflahlutdeild tekur mið af. Stórir sem smáir saman í flokki LS hvetur aðila til að skoða frumvarpið mjög vel þar sem það boðar umtalsverðar breytingar á því fyrirkomulagi sem verið hefur. Gjarnan er vitnað til álits umboðs- manns Alþingis sem rök fyrir frumvarpinu. Það á þó ekki við varðandi breytingar á veiðistjórnuninni, þvert á móti gerir umboðs- maður engar at- hugasemdir við fyr- irkomulagið. Það sætir furðu að ekki er minnst á slíkt í greinargerð með frumvarpinu. Skýringar fást vænt- anlega þegar frum- varpið kemur til með- ferðar hjá Alþingi. Veiðunum hefur á undanförnum árum verið stjórnað með aflamarki, sem úthlutað er til fjögurra útgerðarflokka, þar með töldum færaveiðum smábáta. Óheimilt er að færa veiðiheimildir úr þeim flokki. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verða settar sam- an stórar og smáar útgerðir og því samþjöppun handan við hornið. Hætt er við að innan skamms tíma verði aðeins örfáar útgerðir hand- hafar aflahlutdeilda í makríl. Samkvæmt aflatölum sem hér eru birtar er hlutdeild smábáta um 2% á þessu 10 ára tímabili. Tryggja verður heimildir til smábáta Í umsögn LS við frumvarpið er lögð áhersla á nauðsyn þess að samhliða breytingu á stjórn makríl- veiða verði lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um stjórn fisk- veiða. Þar verði tryggðar makríl- veiðar færabáta með aflaheimildum sem dregnar verði frá leyfilegum heildarafla áður en aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar er út- hlutað. Annars vegar 4.000 tonn sambærilegt og í bráðabirgða- ákvæði sem ekki er lengur í gildi (var 2.000 tonn) og hins vegar 5,3% sem einnig verði eyrnamerkt til færaveiða á bátum sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn að stærð. Úthlutun á makríl eftir aflahlutdeild Eftir Örn Pálsson Örn Pálsson » Samþjöppun er handan við hornið. Hætt er við að innan skamms tíma verði að- eins örfáar útgerðir handhafar aflahlut- deilda í makríl. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. orn@smabatar.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.