Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Ýmsir telja daga ís-
lenskrar tungu talda og
hún muni líða undir lok
fyrir lok þessarar aldar.
Ástæðurnar eru einkum
taldar þrjár: aukin áhrif
ensku, áhugaleysi ungs
fólks á íslensku og staf-
ræn samskipti í snjall-
tækjum.
Sterk staða íslensku
Snjalltækjabylting síðustu ára-
tuga hefur haft í för með sér aukna
enskunotkun á Íslandi, eins og víð-
ast hvar annars staðar í heiminum.
Íslenska er eitt af fjölmörgum
tungumálum, sem eru undir miklu
álagi vegna aukinnar notkunar
ensku í kjölfar samfélagsbreytinga.
Engu að síður stendur íslensk tunga
sterkar sem lifandi þjóðtunga en
nokkru sinni. Þessi staðhæfing er
reist á þeirri staðreynd að und-
anfarna áratugi hefur verið ritað um
fleiri þekkingarsvið á íslensku en
nokkru sinni. Skáldsagnagerð, leik-
ritun, ljóðagerð og önnur orðlist hef-
ur aldrei verið öflugri og kvik-
myndagerð og gerð útvarps- og
sjónvarpsþátta hefur vaxið fiskur
um hrygg. Vandaðar bækur um
margvísleg efni hafa verið gefnar út
undanfarin ár og
fleiri njóta nú
kennslu í íslensku,
bókmenntum og
sögu en áður. Víð-
tækar rannsóknir
eru gerðar á máli,
málnotkun, bók-
menntum, forn-
leifafræði, fé-
lagsvísindum,
mannfræði og heim-
speki í skjóli háskóla
og háskólastofnana
og nýyrðasmíð er öfl-
ugri en nokkru sinni þar sem bæði
einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki
hafa tekið þátt í því málræktarstarfi.
Snjalltækjabyltingin
Hugvísindaþing er árleg ráð-
stefna Hugvísindastofnunar þar sem
í fyrirlestrum er skýrt frá því helsta
í hugvísindum sem gerst hefur og er
ætlað bæði fræðasamfélaginu og al-
menningi. Hugvísindaþing 2019 var
haldið 8. og 9. mars s.l. Þar var
kynnt yfirlit yfir niðurstöður verk-
efnisins „Greining á málfræðilegum
afleiðingum stafræns málsambýlis“.
Meginmarkmið verkefnisins er að
kanna áhrif snjalltækja á orðaforða,
málkunnáttu og málnotkun og á
stöðu og framtíð íslenskunnar.
Snjalltækjabylting hefur haft í för
með sér aukna enskunotkun víða um
heim, en í verkefninu er íslenska
notuð sem dæmi um tungumál sem
er undir auknu álagi vegna aukinnar
notkunar ensku. Niðurstöður sýna
að börn verða fyrir áhrifum frá
ensku við notkun á snjalltækjum og
þeim fylgir jákvæðari afstaða til
enskrar tungu, sem ekki þarf að
koma á óvart, enda ensk menning
tískufyrirbæri.
Máltækniáætlun
Samtök atvinnulífsins settu fram-
tíð tungumálsins í forgrunn síðustu
misseri. Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra og Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir, stjórnarformaður í
Almannarómi, skrifuðu í ágúst fyrra
undir samning um að Almannaróm-
ur sæi um rekstur máltækniáætl-
unar til ársins 2022. Markmiðið er að
tryggja að tæki og tól tali og skilji ís-
lensku og að íslensku verði forðað
frá stafrænum dauða vegna yf-
irburðastöðu enskunnar. „Mál-
tækniáætlunin er eitt mikilvægustu
skrefanna sem við stígum nú til þess
að tryggja betur framtíð íslensk-
unnar og þar með menningu okkar
og sjálfstæði,“ sagði Lilja Alfreðs-
dóttir við undirritun samningsins.
Ráðist verður í að kynna notkun
máltækni í fyrirtækjum og stofn-
unum og koma á samstarfi við er-
lend fyrirtæki sem þróa mál-
tæknilausnir og fylgjast með
möguleikum á fjölþjóðlegu þróun-
arsamstarfi í máltækni þannig að ís-
lensku verði að finna í öllum tækja-
búnaði og hugbúnaði
tæknifyrirtækja heims. Tími til
stefnu er naumur vegna þess að
gervigreind og máltækni þróast með
ógnarhraða og mikilvægt að Ísland
sitji ekki eftir.
Innan Almannaróms koma saman
aðilar með margvíslega reynslu og
leggja sitt af mörkum til að tryggja
að íslenskan glatist ekki. „Það er
breiðfylking að baki Almannarómi,
að stofnuninni standa háskóla- og
rannsóknarstofnanir, fyrirtæki og
félagasamtök sem öll brenna fyrir
þessu brýna verkefni að tryggja að
íslenskan standi jafnfætis öðrum
tungumálum í síbreytilegum tækni-
heimi. Markmið okkar er að stuðla
að aðgengi almennings og atvinnu-
lífs að nauðsynlegri máltækni svo
framtíðin hljómi vel á íslensku,“ seg-
ir Stefanía Guðrún Halldórsdóttir.
Ráðstefna um íslenskukennslu
Hinn 1. apríl verður á vegum
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins í samvinnu við Háskóla Ís-
land, Háskólann á Akureyri, Kenn-
arasamband Íslands og Samband
íslenskra sveitarfélaga haldin ráð-
stefna um íslenskukennslu í öllum
skólum til þess að efla íslensku sem
opinbert mál. Á ráðstefnunni verður
fjallað um niðurstöður rannsókna á
stöðu íslensku sem birtar voru í rit-
inu „Íslenska í grunnskólum og
framhaldsskólum“ sem nýverið kom
út. Í bókinni eru greinar eftir sjö ís-
lenskukennara við Háskóla Íslands
og Háskólann á Akureyri auk meist-
ara- og doktorsnema við skólana.
Niðurstöðurnar sýna jákvætt starf
en einnig er bent á ýmislegt sem
betur má fara, s.s. hrakandi lestr-
arfærni og lesskilning nemenda og
erfiða stöðu nemenda með annað
móðurmál en íslensku.
„Íslenskan er sprelllifandi tungu-
mál. Hún er undirstaða og fjöregg
íslenskrar menningar og hún er
skólamálið okkar.“ „Við ætlun að
snúa vörn í sókn,“ segir Lilja Al-
freðsdóttir mennta- og menningar-
málaráðherra.
Íslenska, elsta lifandi tungumál í
Evrópu, stendur því enn traustum
fótum.
Eftir Tryggva
Gíslason » Íslenska, elsta lif-
andi tungumál í Evr-
ópu, stendur enn traust-
um fótum.
Tryggvi Gíslason
Höfundur er fyrrverandi skólameist-
ari Menntaskólans á Akureyrui.
tryggvi.gislason@gmail.com
Framtíð íslenskrar tungu
Andstaðan við Orku-
pakka 3 hefur m.a. mót-
ast af því, að með honum
væri að hefjast innleið-
ing Íslendinga inn í sam-
eiginlegan orkumarkað
Evrópu. Slík innleiðing
myndi m.a. leiða af sér
mjög hækkað orkuverð
til almennings sbr. það
sem orðið hefur í Noregi
með aðild Noregs að
hinum sameiginlega
orkumarkaði Evrópu.
Slík áhrif tengjast óhjá-
kvæmilega því að gerast
aðili að sameiginlegum
markaði um orku-
miðlun, orkusölu og
orkuverð eins og verða
myndi ef Íslendingar
gerðust aðilar að sam-
eiginlegum markaði
Evrópuþjóða fyrir af-
urðir landbúnaðar – en
þá til verðlækkunar en ekki verð-
hækkunar fyrir íslenskan almenning.
Ósköp lítill áhugi virðist hins vegar
fyrir þeirri markaðsaðlögun meðal ís-
lenskra stjórnvalda þó hún myndi
lækka framfærsluútgjöld heimilanna
um miklar fjárhæðir. Það er sem sé í
lagi að gerast aðilar að markaði, sem
hækkar orkuverð heim-
ila um háar fjárhæðir,
en ekki í lagi að gerast
aðilar að markaði, sem
lækkar fram-
færslukostnað sömu
heimila um sömu eða
hærri fjárhæðir.
Hættan
Þá hefur verið bent á,
að með aðild að sameig-
inlegum orkumarkaði
kunni að vera hætta á
að aðilum á þeim sama
markaði utan Íslands
verði gert auðveldara
fyrir að nýta og jafnvel
virkja íslenskar orku-
lindir. Einnig að með
aðildinni opnist mögu-
leikar, sem ekki eru nú
til staðar, á því að er-
lendir fjármagnseig-
endur geti að mestu af
eigin rammleik komið á
tengingu milli íslenskr-
ar orku og evrópskrar
orkuþarfar með lagningu sæstrengs.
Þá leiðir einnig af aðildinni, að þó
virkjunaraðilum eins og t.d. Lands-
virkjun gæfist kostur á að fá hærra
orkuverð til eigin þarfa með sölu orku
á hinum evrópska markaði þá yrði
virðisaukinn, sem stafar af nýtingu
þeirrar orku ekki til á Íslandi heldur í
Evrópu. Virðisaukinn vegna nýtingar
orkunnar, sem hér hefur birst í
tekjum þjóðarbúsins af álverum, kís-
ilverum og öðrum orkufrekum iðnaði
og atvinnu og tekjum hópa lands-
manna, sem þar starfa yrði til í ein-
hverju Evrópulandanna þar sem ís-
lensk orka yrði á boðstólum Þetta er
auðvitað bein afleiðing af aðild að
sameiginlegum orkumarkaði.
Ráðherrann sem samdi við sjálf-
an sig
Nú hefur utanríkisráðherra í sam-
vinnu við sína eigin flokksmenn (að
eigin sögn), aðra ráðherra og þing-
menn ríkisstjórnarflokkanna tekist að
semja um fyrirvara sem hann segir
tryggja að ekkert af framansögðu geti
gerst. Samþykki Orkupakka 3 muni
sem sé engu breyta um aðild Íslands
að evrópskum orkumarkaði, engu
breyta um eignar- og ráðstöfunarrétt
Íslendinga yfir orkulindum sínum,
engu breyta hvað varðar áform um
lagningu sæstrengs og þar með engu
breyta um að virðisaukinn af orku-
vinnslunni verði áfram til staðar bara
á Íslandi. Eftirleiðis þurfi – eins og nú
þegar er – aðkomu Alþingis til þess að
fá þessu breytt. Sem sé – algerlega
óbreytt ástand!
Ein spurning eftir
Eftir stendur þá aðeins ein spurn-
ing. Hún er þessi: Ef samþykkt Orku-
pakka 3 breytir engu hver er þá nauð-
syn þess, að Alþingi Íslendinga
samþykki hann? Ef það samþykki
verður hvorki til þess að Ísland teng-
ist orkumarkaði Evrópu né leiðir til
neins af því, sem þeirri tengingu mun
fylgja? Þetta er einföld spurning –
sem enginn hefur samt spurt. Kallar á
einfalt svar – sem enginn hefur samt
gefið. Er svarið það, að við Íslendinga
verðum að samþykkja umræddan
orkupakka, sem engin áhrif hefur á
orkumál okkar, vegna þess að Lich-
tenstein og Noregur eru bæði aðilar
að orkumarkaði Evrópu og segjast
þurfa á því að halda? Það hefur eng-
inn enn fengið að vita. En ef sam-
þykkt orkupakkans breytir engu fyrir
íslensku þjóðina – hví er þá nauðsyn-
legt að afgreiða hann? Er slíkt og því-
líkt óumflýjanlegt fyrir Alþingi að
verja tíma sínum til – nú, þegar hörð
átök eru í aðsigi á vinnumarkaði og
flugrekstur Íslandinga til og frá land-
inu í hættu, gengi krónunnar farið að
veikjast, mikil hætta á fækkun at-
vinnutækifæra á vinnumarkaði,
loðnubrestur orðinn staðreynd og að-
algjaldeyristekjulind landsmanna,
ferðaþjónustan, horfist í augu við
samdrátt? Er þá tíma Alþingis best
varið í að ræða afgreiðslu máls, sem
fullyrt er af stjórnvöldum, að engin
áhrif muni hafa fyrir Íslendinga?
Af hverju orkupakkann?
Eftir Sighvat
Björgvinsson
»Ef samþykkt
orkupakkans
breytir engu
fyrir íslensku
þjóðina – hví er
þá nauðsynlegt
að afgreiða
hann?
Sighvatur Björgvinsson
Höfundur er fv. iðnaðarráðherra.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra
miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma