Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 46

Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 46
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Fjölskyldan er ánægð á Íslandi og Caroline sem er frönsk að uppruna og lærði í París er búin að koma sér vel fyrir á Óðinsgötu 1 með fyrirtæki sitt en hún rekur þar innanhússtíl- istafyrirtækið Bonjour. Caroline bjó í 12 ár í Lúx- emborg og starf- aði þar sem innan- hússtílisti. Hún segir að sama hvar maður sé staddur í heiminum þá sé markmið fólks alltaf það sama þegar kemur að heimilinu, að líða vel á eigin heimili. Hún segir stílinn í Lúxemborg og Ís- landi þó nokkuð ólíkan. Íslendingar sækja sinn stíl til Skandinavíu en í Lúxemborg sé að finna áhrif frá lönd- um í kring eins og Þýskalandi, Frakk- landi og Ítalíu. Hún segir Íslendinga hafa sagt við sig að þeir hefðu viljað fá aðrar tillögur þegar kom að því að innrétta heimilin. Ætlar hún því að bjóða Íslendingum upp á nýjar hug- myndir og áhrif í innanhússtíl með Bonjour. „Veggir eru oft hafðir hvítir á Ís- landi og íslenskur innanhússtíll virð- ist ekki þora fleiri blæbrigðum og óvæntum efnum og formum. Þar sem ég er innanhússtílisti sem sérhæfir sig í litum snýst mikið um veggina. Ég læt mála þá en ég nota líka oft veggfóður,“ segir Caroline sem er mjög hrifin af möguleikum veggfóð- urs. „Þrátt fyrir að ég sé hrifin að við sem fylgir skandinavíska stílnum kann ég að meta djarfari efni eins og keramik, vefnað, stál, brass og fleira.“ Caroline segist meðal annars hafa hjálpað fólki að innrétta ný og stór hús í Lúxemborg. Segir hún það geta verið krefjandi að ímynda sér hús sem enn á eftir að flytja inn í. Nefnir hún dæmi um húsið á meðfylgjandi myndum þar sem hún byrjaði að vinna með fólkinu áður en húsið var byggt. Segist hún hafa unnið að hús- inu frá a til ö. Allt frá því að teikna rafmagnsleiðslur yfir í það að skapa réttan anda í húsinu með vali á efni, litum, veggfóðri og húsgögnum. „Þrátt fyrir að Ísland sé aðallega undir norrænum áhrifum í dag er ég spennt að sjá hvernig Íslendingar bregðast við nýjum hugmyndum,“ segir Caroline að lokum ánægð með lífið á Íslandi. Seldu húsið og fluttu til Íslands Innanhússtílistinn Caroline Chéron féll fyrir Íslandi á ferðalagi um landið ásamt fjölskyldu sinni. Síðasta haust varð svo draumurinn að veruleika þegar hún fluttist til landsins ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum. Caroline Chéron MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Fallegar vörur fyrir falleg heimili Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.