Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 46
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir
gudrunselma@mbl.is
Fjölskyldan er ánægð á Íslandi og
Caroline sem er frönsk að uppruna og
lærði í París er búin að koma sér vel
fyrir á Óðinsgötu
1 með fyrirtæki
sitt en hún rekur
þar innanhússtíl-
istafyrirtækið
Bonjour.
Caroline bjó í
12 ár í Lúx-
emborg og starf-
aði þar sem innan-
hússtílisti. Hún
segir að sama
hvar maður sé
staddur í heiminum þá sé markmið
fólks alltaf það sama þegar kemur að
heimilinu, að líða vel á eigin heimili.
Hún segir stílinn í Lúxemborg og Ís-
landi þó nokkuð ólíkan. Íslendingar
sækja sinn stíl til Skandinavíu en í
Lúxemborg sé að finna áhrif frá lönd-
um í kring eins og Þýskalandi, Frakk-
landi og Ítalíu. Hún segir Íslendinga
hafa sagt við sig að þeir hefðu viljað
fá aðrar tillögur þegar kom að því að
innrétta heimilin. Ætlar hún því að
bjóða Íslendingum upp á nýjar hug-
myndir og áhrif í innanhússtíl með
Bonjour.
„Veggir eru oft hafðir hvítir á Ís-
landi og íslenskur innanhússtíll virð-
ist ekki þora fleiri blæbrigðum og
óvæntum efnum og formum. Þar sem
ég er innanhússtílisti sem sérhæfir
sig í litum snýst mikið um veggina.
Ég læt mála þá en ég nota líka oft
veggfóður,“ segir Caroline sem er
mjög hrifin af möguleikum veggfóð-
urs. „Þrátt fyrir að ég sé hrifin að við
sem fylgir skandinavíska stílnum
kann ég að meta djarfari efni eins og
keramik, vefnað, stál, brass og fleira.“
Caroline segist meðal annars hafa
hjálpað fólki að innrétta ný og stór
hús í Lúxemborg. Segir hún það geta
verið krefjandi að ímynda sér hús
sem enn á eftir að flytja inn í. Nefnir
hún dæmi um húsið á meðfylgjandi
myndum þar sem hún byrjaði að
vinna með fólkinu áður en húsið var
byggt. Segist hún hafa unnið að hús-
inu frá a til ö. Allt frá því að teikna
rafmagnsleiðslur yfir í það að skapa
réttan anda í húsinu með vali á efni,
litum, veggfóðri og húsgögnum.
„Þrátt fyrir að Ísland sé aðallega
undir norrænum áhrifum í dag er ég
spennt að sjá hvernig Íslendingar
bregðast við nýjum hugmyndum,“
segir Caroline að lokum ánægð með
lífið á Íslandi.
Seldu húsið og fluttu til Íslands
Innanhússtílistinn Caroline Chéron féll fyrir Íslandi á ferðalagi um landið
ásamt fjölskyldu sinni. Síðasta haust varð svo draumurinn að veruleika þegar
hún fluttist til landsins ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum.
Caroline
Chéron
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Fallegar vörur fyrir falleg heimili
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi