Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Matgæðingar geta tekið gleði
sína því Arna hefur sett á
markað þriðju árstíðarjógúrt-
ina sína sem er grísk jógúrt
með íslenskum jarðarberjum.
Að baki liggur óvenjusnjöll
og falleg hugmynd en jarð-
arberin sem eru notuð í jóg-
úrtina eru útlitsgölluð eða
flokkuð frá af öðrum ástæð-
um og áttu því aldrei mögu-
leika á að komast í verslanir.
Með þessum hætti vinna allir;
neytendur, framleiðendur og
ekki síst jarðarberin en það
er fátt verra en að vera
óborðað ber.
Jógúrtin kemur í 230 g
glerkrukku og verður í sölu
meðan birgðir endast.
Þess má einnig geta að
krukkurnar hafa slegið í
gegn meðal sultugerðarfólks
sem safnar þeim grimmt
fram á haust þannig að þær
má flokka sem heitasta heitt í
sultugerð.
Nýta jarð-
arberin sem
annars hefðu
farið til spillis
Fyrirmyndar Það er alltaf
fallegt og þakklátt þegar
vörur sem annars færu til
spillis fá hlutverk.
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Ketó morgunverður
4 egg
½ tsk. sjávarsalt
¼ tsk. ferskur svartur pipar
140 g smjör, við stofuhita
2 avókadó
2 msk. ólífuolía
1 msk. fersk steinselja, söxuð
140 g reyktur lax frá Ópal sjávarfangi
Aðferð:
Setjið eggin varlega í pott. Setjið kalt
vatn í pottinn og látið suðuna koma upp.
Lækkið undir og látið sjóða í 7-8 mín-
útur. Takið þá eggin upp úr pottinum
og setjið í kalt vatn.
Takið skurnina af eggjunum og saxið
þau niður. Blandið eggjunum og smjör-
inu saman með gaffli. Saltið og piprið
eftir smekk. Það má líka krydda með
öðru kryddi ef þið viljið. Gott er að nota
chili flögur – þær gefa smá bit.
Berið eggin fram á diski með avó-
kadói sem búið er að skera niður í sneið-
ar og skvetta smá ólífuolíu og steinselju
á. Setjið síðan reykta laxinn á diskinn
og njótið!Ketó sprengja Morgunverður sem þessi tryggir þér góða orku út daginn.
Ketó morgunverður
með reyktum laxi
Morgunverðurinn varð
sannarlega meira spenn-
andi eftir að þjóðin fór á
ketó og þessi útgáfa er í
senn dásamlega einföld
og fljótleg – auk þess að
vera svo bragðgóð að
helgarnar breytast í veislu.
Hér er það reykti laxinn
sem er í aðalhlutverki en
ef það má einhvern tíma
njóta þeirrar dásemdar þá
er það þessi dægrin. Eggin
og avókadóið toppa síðan
annars einfaldan en ómót-
stæðilegan morgunverð.
Njótið vel!
Allt um sjávarútveg
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume
frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng
augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að
hætta að taka þetta bætiefni inn.“
Edda Dungal
Hair Volume inniheldur
jurtir og bætiefni sem sem
eru mikilvæg fyrir hárið og
getur gert það líflegra
og fallegra.
Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig?
Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir,
Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík.
Natur (ókryddaður), með pipar
og þessi klassíski með provesal kryddi.
Sinneps-estragon sósa fylgir.
Tilbúin vara en má hita.
Fullkominn
skyndibiti,
hollur og
bragðgóður
Nú 3 tegundir
Heitreyktur lax