Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Hulda Bjarnadóttir
hulda@k100.is
Hlustendur K100 hafa fylgst með
Má undanfarið ár og undirbúningi
hans fyrir sundkeppni á Ólympíu-
móti fatlaðra í Tókýó árið 2020.
Már er einn fjögurra íþróttamanna
sem Toyota á Íslandi styður við í
gegnum verkefnið Start your Imp-
ossible. Már er í dag 19 ára gamall
og hefur keppt á fjölda stórmóta og
fjallað hefur verið um verkefnið
með reglulegu millibili eftir að
viðamikill samstarfssamningur var
undirritaður síðasta sumar við
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-
lands, Íþróttasamband fatlaðra og
miðla Árvakurs.
Natalia Przybysz með
dúett á plötunni
Og Már heldur áfram að elta
drauma sína. Að þessu sinni í tón-
listinni. Langþráður draumur Más
er að verða að
veruleika því
þessa dagana er
hann að fylgja
eftir útgáfu á
plötu með eigin
tónlist, alls 14
lög. Söngur
fuglsins heitir
platan og segist
Már vilja ná til
breiðs hóps með
blöndu af rokki,
poppi, rapp og
hljóðfæratónlist.
Útgáfutónleikar eru áætlaðir 12.
apríl í Hljómahöllinni í Reykja-
nesbæ og með honum á sviði verð-
ur sjö manna hljómsveit skipuð
færustu hljóðfæraleikurum Pól-
lands. Sú sveit gerir sér ferð til Ís-
lands fyrir þetta tilefni. Með þeim í
för er ein þekktasta poppsöngkona
Póllands, Natalia Przybysz sem
Már kynntist við tökur í Póllandi.
Honum hafði verið boðið að koma
fram á einum stærstu góðgerð-
artónleikum þar í landi og vinna
með einum þekktasta tónlist-
arpródúsent Póllands, Hadrian Ta-
becki.
Natalia staðfesti nýlega að hún
kæmi á útgáfutónleikana. „Það að
hún vilji koma til Íslands og spila
með mér og mínum félögum og
taka þátt er bara magnað. Og ég á
ekki til orð yfir það þakklæti sem
ég ber í brjósti til hennar,“ segir
Már einlæglega í viðtali í síðdeg-
isþætti K100. Natalia syngur dúett
á plötunni en einnig koma fram
Villi Naglbítur, Ísold Wilberg, Ívar
Daníels og Gísli Helgason. Öll lögin
af plötunni eru samin af Má, flestir
textarnir eru eftir Tómas Eyjólfs-
son.
Samstarfið við Villa
margra ára meðganga
Fyrsta lagið sem Már gefur út
er lagið „Fuglinn syngur“ sem Vil-
helm Anton Jónsson syngur, einnig
þekktur sem Villi naglbítur. Má
þykir mikið til Villa koma og sam-
starfsins. Sam-
starf þeirra hófst
þegar Már var í
níunda bekk og
samdi lagið
„Ókunn lönd“ fyr-
ir verkefnið List
án landamæra,
samstarfsverkefni
fatlaðra ein-
staklinga og
þekktra lista-
manna. Villi kom
þá að laginu og
þeir kláruðu það
saman og loksins er lokafurðin klár
og hluti af plötunni. „Fuglinn syng-
ur“.
Keppnir styðja við
andlega sköpun
Hann segir það ákveðið púsluspil
að vera í fremstu röð sundmanna
og um leið að standa í lagasmíðum
og útgáfu. Maður verður bara að
raða þessu rétt segir hann. En
hvernig fer það saman að keppa á
stórmótum og semja lög og skapa
list á sama tíma? „Sköpun er í raun
bara upplifun og það sem þú gerir
tengist bara sköpuninni. Þannig að
ég myndi segja að það hjálpaði
bara til að fara til útlanda og á
stórmót. Og það sem maður gerir
tengist sköpuninni svo mikið,“ segir
hinn metnaðarfulli tónlistarmaður
Már Gunnarsson.
Ljósmynd/Lína Rut
Hann er skemmtilegur, metnaðarfullur og hæfi-
leikaríkur með eindæmum. Már Gunnarsson hefur
yfirstigið fjölda hindrana í lífinu en hann leyfir sér
að elta metnaðarfulla drauma á hinum ýmsu svið-
um þrátt fyrir ungan aldur.
Vinnur með pólskri stórstjörnu
Tónlist Villi Naglbítur, Ísold Wilberg,
Már, Ívar Daníels og Natalia Przybysz.
SÓLARFILMUR!
Lausnir
fyrir
heimili
og fyrirtæki
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is