Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 54
54 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Magnús Sæmundsson,fyrrverandi bóndi íEyjum II í Kjósar-
hreppi, er 85 ára í dag. Magnús
er fæddur og uppalinn í Eyjum
II og er sonur Láru Magnús-
dóttur húsfreyju og bónda í Eyj-
um II og Sæmundar Steindórs
Einarssonar kennara.
Magnús ólst upp hjá móður
sinni Láru í Eyjum með afa sín-
um, Magnúsi Ólafssyni, og
ömmu, Margréti Jónsdóttur,
ásamt móðursystkinum sínum,
Haraldi, Hans og Guðrún. Einn-
ig ólst frænka Magnúsar upp á
heimilinu í Eyjum II, frá unga
aldri, Ólafía Ólafsdóttir (Lóa),
samtíða Magnúsi. Magnús sótti
nám í farskóla í sinni heimasveit og fór svo til náms í Héraðsskólanum á
Laugarvatni og lauk landsprófi frá Reykholti í Borgarfirði.
Magnús kvæntist árið 1964 Guðrúnu Ólafíu Tómasdóttur frá Hamra-
hóli í Ásahreppi en hún var dóttir hjónanna Tómasar Þórðarsonar og
Jórunnar Ólafsdóttur í Hamrahóli. Guðrún Ólafía átti fyrir tvo drengi af
fyrra hjónabandi, þá Tómas Kristin Sigurðsson og Kristján Sigurðsson en
Magnús varð stjúpfaðir hans. Guðrún og Magnús eignuðust saman fimm
börn og eitt fósturbarn. Það eru þau Ólafur Magnús, Haraldur, Jórunn,
Lára Guðrún, Sæmundur Steindór og fósturdóttirin Sigurrós Nancy
Webber. Guðrún Ólafía, eiginkona Magnúsar, lést hinn 2. september
2017.
Magnús og Guðrún bjuggu stóru búi í Eyjum með kýr, sauðfé, alifugla
og hross og ráku þar myndarbú fyrst í félagi við Harald, móðurbróður
Magnúsar, en tók svo við öllu búinu við fráfall Haraldar. En bjuggu einn-
ig félagsbúi um tíma með syni sínum Haraldi og Guðrúnu Ingvadóttur.
Magnús sinnti trúnaðarstörfum fyrir samfélag sitt. Hann var ungur
kjörinn í stjórn Ungmennafélagsins Drengs, formaður húsráðs Félags-
garðs og síðar formaður umf. Drengs, sat í stjórn Búnaðarfélags Kjósar-
hrepps, lengst af sem gjaldkeri, og átti sæti í stjórn Mjólkursamlags Kjal-
arnesþings um ára bil og gegndi þar einnig formennsku. Magnús var
kjörinn í sveitarstjórn Kjósarhrepps árið 1966 og var oddviti Kjósar-
hrepps 1979-1990. Magnús var hreppstjóri Kjósarhrepps 1987-2004.
Magnús fylgdi Framsóknarflokknum að málum og var á framboðslistum
flokksins fyrir alþingiskosningar á sínum tíma. Magnús átti einnig sæti í
stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að vera
einnig félagi í öðrum félögum svo sem Lionsklúbbunum Búa og Hesta-
mannafélaginu Herði sem hann vann ýmis störf fyrir. Magnús söng á
yngri árum með Karlakór Kjósverja.
Magnús heldur upp á afmælið sitt með fjölskyldu og vinum í dag að
Harðarbóli sem er félagsheimili hestamannafélagsins Harðar á Varmár-
bökkum í Mosfellsbæ og hefst veislan kl. 19.00.
Kjósverjinn Magnús Sæmundsson.
Var hreppstjóri í Kjós
Magnús Sæmundsson er 85 ára í dag
A
nna María Kristjáns-
dóttir fæddist 28. mars
1949 á Akureyri og ólst
þar upp. Frá sjö ára
aldri fram að fermingu
dvaldi hún yfir sumartímann á Öxn-
hóli í Hörgárdal hjá þeim heiðurs-
hjónum Aðalsteini Sigurðssyni og
Elísabetu Haraldsdóttur. „Ég er al-
veg klár á því að dvölin í sveitinni
hefur haft áhrif á hversu hraust ég
er.“
Eftir hefðbundið nám í barna og
gagnfræðaskóla Akureyrar lá leiðin
í Hjúkrunarskóla Íslands. Árið 1971
útskrifaðist Anna María og fór að
vinna á Landspítalanum og var síð-
ar yfirhjúkrunarfræðingur í Hjarta-
vernd. „Hjúkrunarstörfin áttu vel
við mig, enda var það draumur
minn frá unga aldri að verða
hjúkrunarkona.“
Anna María Kristjánsdóttir, hjúkrunarfr. og athafnakona – 70 ára
Fjölskyldan Anna María og Ágúst ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum árið 2018.
Heiðarleiki, áræðni
og gefast aldrei upp
Norðangarrinn Æskuvinkonur staddar á Siglufirði árið 2013.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
A U G N V Í T A M Í N
Fæst í öllum helstu apótekum
www.provision.is
Viteyes augnvítamínin er nauðsynleg
augum sérstaklega þeim sem glíma
við augnþurrk eða aldursbundina
augnbotnahrörnun.
Nýtt
Nýtt
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.