Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 55
Árið 1978 urðu straumhvörf í lífi
Önnu Maríu þegar hún ákvað að
hefja störf í fjölskyldufyrirtækinu
Ágúst Ármann hf. sem stofnað var
af tengdaforeldrum hennar árið
1948. Starfaði hún þar ásamt eigin-
manni sínum, Ágústi Ármann, mág-
konu sinni, Arndísi Ármann, og
svila, Birni Gunnarssyni. Fyrir-
tækið varð eitt stærsta íslenska
heildsölufyrirtækið á innflutningi á
fatnaði, sportvörum, heimilisvefn-
aðarvöru og fataefnum. Fljótlega
tók Anna María yfir innkaupa- og
sölusviði á heimilisvefnaðarvöru og
fataefnum sem þá voru mjög vin-
sæl.
Fyrstu árin voru vörurnar mest
keyptar frá Evrópu en upp úr 1990
fór fyrirtækið að teygja sig yfir til
Asíu og þá aðallega til Indlands og
Kína. Fyrirtækið var með þeim
fyrstu til þess að kaupa heim-
ilisvefnaðarvörur frá þessum lönd-
um sem varð til þess að hægt var að
bjóða fjölbreyttari og mikið ódýrari
vörur fyrir íslenska neytendur en
áður hafði tíðkast. „Lykillinn að
góðu samstarfi við þessar þjóðir er
heiðarleiki, áræðni, úthald og gefast
aldrei upp.“ Starfaði Anna María
samfleytt í 25 ár í fyrirtækinu. Árið
2003 stofnuðu Anna María og Ágúst
fyrirtæki í Kína með Rúmfatalag-
ernum. Urðu ferðir þeirra til Kína
tíðar og dvöldu hjónin þar mikið í
fast nær 12 ár og eiga þar marga
góða vini. Anna María og Ágúst eru
nýkomin heim úr fimm vikna ferða-
lagi um Asíu. Þar heimsóttu þau
Taíland, Kambódíu, Singapore, Ví-
etnam, Hong Kong, Taívan, Japan
og Suður-Kóreu. Í dag eru hjónin
hluthafar í fyrirtækinu Aros ehf.
sem er með starfsemi í Kína og á
Íslandi.
Áhugamál Önnu Maríu eru fjöl-
skyldan, ferðalög, brids og vinirnir.
Meðal vinanna er hópur átta æsku-
vinkvenna frá Akureyri sem kall-
aður er Norðangarrinn og brids
hópur sem samanstendur af fimm
hjúkrunarfræðingum. Anna María
ferðast mikið með þessum hópum
bæði innan og utan lands.
Fjölskylda
Anna María kvæntist 21.10.1972
Ágústi Ármann framkvæmdastjóra,
f. 28.12.1948. Foreldrar hans voru
hjónin Magnús Ármann, f. 31.8.
1915, d. 2.2. 1984, stórkaupmaður í
Reykjavík og Margrét Ármann, f.
2.6. 1912, d. 30.3. 1992, sölustjóri.
Börn Önnu Maríu og Ágústar
eru: 1) Magnús Ármann, f. 16.5.
1974, fjárfestir, búsettur í Garðabæ.
Sambýliskona hans er Margrét Íris
Baldursdóttir, húsmóðir, markþjálfi
og fjárfestir. Börn þeirra eru Ágúst,
f. 2001, Magnús, f. 2006 og Anna
Björk, f. 2008. 2) Sigþrúður Ármann
f. 13.4. 1977 lögfræðingur, búsett í
Garðabæ. Eiginmaður hennar er
Jóhannes Egilsson útflutningsstjóri.
Börn þeirra eru Erna María, f.
2005, Kristján Ágúst, f. 2010 og
Anna María, f. 2015.
Systkini Önnu Maríu eru 1)
Kristín Kristjánsdóttir, f. 15.3.
1945, kaupmaður; Jón Kr. Krist-
jánsson, f. 3.10. 1950, skipstjóri, og
Helga Kristjánsdóttir, f. 4.3. 1956,
húsmóðir. Öll búsett á Akureyri.
Foreldrar Önnu Maríu eru hjónin
Kristján Jónsson, f. 31.10. 1919, d.
3.2. 1999, athafnamaður og forstjóri
Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar
á Akureyri, og Sigþrúður Helga-
dóttir, f. 25.8. 1922, d. 24.3. 1985,
húsmóðir.
Anna María
Kristjánsdóttir
Kristján Nikulásson
fyrsti lögreglustjórinn á Akureyri
María Jónína Jónsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Jón Björn Kristjánsson
húsgagnabólstrari á Akureyri
Kristján Jónsson
forstjóri á Akureyri
Sesselja Lovísa Jónsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Jón Jónsson
kennari á Drangsnesi, ættaður að sunnan
Anna Sigríður Árnadóttir
húsfreyja á Drangsnesi
Tryggvi Jónsson stofnaði
Ora niðursuðuverksmiðju
Tryggvi Helgason setti á
fót sjúkraflug á Akureyri
Tryggvi Jóhannes Guðmundsson
bóndi í Garðshorni
María Kristjánsdóttir
húsfreyja í Garðshorni í Eyjafirði
Helgi Tryggvason
bifreiðastjóri á
Akureyri, stofnaði
vörubifreiðafyrirtækið Bifröst
Kristín Jóhannsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Jóhann Jónsson
verkamaður á Patreksfirði
Sigþrúður Einarsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Úr frændgarði Önnu Maríu Kristjánsdóttur
Sigþrúður Helgadóttir
húsfreyja á Akureyri
Í París Anna María á ferðalagi með
spilaklúbbnum sínum árið 2014.
ÍSLENDINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Hrafnkell Helgason fæddist 28.mars 1928 á Stórólfshvoli íRangárvallasýslu. Foreldrar
hans voru hjónin Helgi Jónasson
læknir og alþingismaður, f. 1894, d.
1960, og Oddný Guðmundsdóttir
hjúkrunarkona, f. 1889, d. 1975.
Hrafnkell lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1947 og
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
1956 og sænsku læknaprófi 1961.
Hann varð sérfræðingur í lyflækn-
ingum 1962 og í lungnasjúkdómum
fyrstur íslenskra lækna 1967.
Árið 1968 fluttist Hrafnkell til Ís-
lands og tók þá við embætti yfirlæknis
á Vífilsstöðum og gegndi því starfi til
1998. Vífilsstaðaspítala var fljótlega
eftir komu Hrafnkels breytt úr
berklahæli í fyrstu sérhæfðu lungna-
deild landsins. Vann Hrafnkell þar
merk brautryðjendastörf, ekki aðeins í
lækningum lungnasjúkra heldur hafði
hann einnig, ásamt Þórarni Gíslasyni,
frumkvæði að svefnrannsóknum og
vöktu þær athygli víða um heim.
Alla tíð lagði Hrafnkell mikla
áherslu á að kynna sér helstu nýj-
ungar í lungnalækningum og starfaði
m.a. í orlofum sem aðstoðaryfirlæknir
á háskólasjúkrahúsum bæði í Lundi
og Gautaborg í Svíþjóð. Auk áð-
urnefndra starfa starfaði Hrafnkell
einnig á lyflækningadeild Landspít-
alans, var lektor og síðar dósent í
lungnasjúkdómum við læknadeild HÍ í
nær 30 ár.
Hrafnkell stundaði stangaveiði og
skotveiði um langt árabil og ferðaðist
mikið um óbyggðir Íslands. Hann
hafði einnig mikinn áhuga á íslenskri
sagnfræði. Hann tók virkan þátt í
starfi Rótarý og var heiðursfélagi í
Rótarýklúbbnum Görðum í Garðabæ.
Hrafnkell kvæntist 17.6. 1957 Helgu
Lovísu Kemp, f. 17.6. 1925, d. 8.3. 1990,
húsfreyju. Börn þeirra: Helgi, f. 1952,
d. 2018, Stella Stefanía, f. 1955, og
Hrefna Lovísa, f. 1964. Hrafnkell
kvæntist 18.10. 1997, seinni konu sinni,
Sigrúnu Aspelund, f. 11.4. 1946, hús-
freyju.
Hrafnkell lést 19. október 2010.
Merkir Íslendingar
Hrafnkell
Helgason
85 ára
Hanna Bryndís
Guðmundsdóttir
Magnús Sæmundsson
Svana Jörgensdóttir
80 ára
Ari Guðmundsson
Else Zimsen
Ragnar Hjaltason
Þrúður G. Sigurðardóttir
75 ára
Anna Dyachenko
Ásdís Símonardóttir
Ingunn Kristjánsdóttir
Jón Samúelsson
Magnús Gíslason
70 ára
Anna M. Kristjánsdóttir
Guðberg Kristján
Gunnarsson
Guðmundur Jósef
Einarsson
Jónas Rúnar Sigfússon
Jórunn Pétursdóttir
Lilja Sigurðardóttir
María Ketilsdóttir
Snjólaug Jóhannesdóttir
Þorsteinn V. Sigurðsson
60 ára
Atli Már Ingvarsson
Elza Sankovic
Friðrik Ari Friðriksson
Haraldur I. Benediktsson
Harpa Karlsdóttir
Ingólfur Björgvin Ingólfsson
Jón Stefánsson
Kristín Kristinsdóttir
Margrét Baldursdóttir
Sigrún Baldvinsdóttir
Sigrún Halldórsdóttir
Snjólaug Guðrún
Jóhannesdóttir
Tómas Tómasson
Tómas Tómasson
Vera Ovsianikova
Weronika Sienkiewicz
Þorgrímur S.
Þorgrímsson
50 ára
Björgvin Jónas Hauksson
Egill Helgi Lárusson
Erla Rúna Guðmundsdóttir
Hjalti Viðar Reynisson
Hjörleifur Finnsson
Sigurbjörn Kjartansson
Sigurgeir Hrafnkelsson
Sigurjón Magnús Einarsson
Valdimar Árnason
Zbigniew Cegielka
Þorbjörg Dóra Gunnarsd.
40 ára
Beata Bukowska
Daniel Leszek Buryn
Elín Þórunn Stefánsdóttir
Eva Brá Hallgrímsdóttir
Friðþjófur Sturla Másson
Guðmundur Björn
Árnason
Guðrún Gísladóttir
Jón Helgi Sveinsson
Kolbrún Ágústsdóttir
Kristinn Már Ársælsson
Marlene Celeste Larupay
Sigurjón Jónasson
30 ára
Árni Páll Hafþórsson
Baba Drammeh
Davíð Sævarsson
Kristín Manúelsdóttir
Maria Juczkowicz
Markus Thomas Koleszar
Ragnheiður Guðjónsdóttir
Rakel Unnur Thorlacius
Sigríður Tinna Jóhannsd.
Silja Jónsdóttir
Snorri Þór Gunnarsson
Vera Dögg
Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Friðþjófur er Vest-
manneyingur og er olíu-
bílstjóri hjá Olíudreifingu.
Börn: Indíana Kolbrún, f.
2010, og Már Óli, f. 2015.
Systkini: Víkingur, f.
1983, og Soffía Marý, f.
1987.
Foreldrar: Már Frið-
þjófsson, f. 1959, fyrrver-
andi sjómaður, og
Jóhanna Kolbrún Þor-
björnsdóttir, f. 1961,
sjúkraliði. Þau eru búsett í
Vestmannaeyjum.
Friðþjófur
Sturla Másson
30 ára Kristín ólst upp í
Bergen og Reykjavík og
býr í Reykjavík. Hún er
viðskiptastjóri hjá Hug-
smiðjunni og er með BSc.
í alþjóðaviðskiptum.
Maki: Lára Jóhanna Jóns-
dóttir, f. 1983, leikkona.
Stjúpdóttir: Móeiður
María, f. 2012.
Foreldrar: Manuel Muñoz
Sesma, f. 1955, grafískur
hönnuður, og Anna Katrín
Árnadóttir, f. 1963, sér-
fræðingur hjá Advania.
Kristín
Manúelsdóttir
30 ára Árni Páll er Sel-
fyssingur og er sölu- og
viðskiptastjóri hjá Nova.
Maki: Díana Gestsdóttir,
f. 1988, flugfreyja hjá
Icelandair.
Börn: Elmar Snær, f.
2013, og Elimar Leví, f.
2016.
Foreldrar: Hafþór Birgir
Guðmundsson, f. 1954,
lektor í íþróttafræðum við
HÍ.og Sigríður Bragadótt-
ir, f. 1955, flugfreyja hjá
Icelandair.
Árni Páll
Hafþórsson