Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019 Kristinn Magnússon Neysluvenjur Vest-urlandabúa ógna nátt-úrunni og þar með tilvist mannsins. Augljóst er að við kaup- um of mikið. Við skiptum út not- hæfum vörum og fáum okkur nýj- ar. Tölur um úrgang fara hækkandi og stór hluti þess sem við setjum á nytjamarkaði endar í landfyllingu. Millistéttin í heim- inum fer stækkandi með auknum kröfum um lífsgæði. Við ætlum því að minnka neyslu en munum ekki alveg hætta að kaupa. Hvernig getum við sem neytendur stuðlað að sjálfbærara samfélagi? Eitt af þeim skrefum sem hægt er að taka er að versla við minni fyrirtæki í heimabyggð. Þegar við verslum við minni verslanir, jafn- vel þar sem eigandinn stendur vaktina, erum við að styðja at- vinnu í heimabyggð. Rannsóknir hafa sýnt að þegar við verslum við minni fyrirtæki (ekki stórar al- þjóðlegar keðjur) þá verður meira af peningunum eftir í nærsam- félaginu. Við styðjum þannig við uppbyggingu samfélags okkar með því að styðja frumkvöðla, hönnuði og/eða listamenn. Þegar við gerum það stuðlum við að auknum og fjölbreyttari atvinnumöguleikum sem gerir fleirum kleift að búa í og leggja sitt af mörkum til sam- félagsins. Auk þess setja minni fyrirtæki oft á tíðum meiri svip á samfélagið þar sem meira úrval verður í boði af vöru og þjónustu. Ímyndaðu þér t.d. ef við værum bara með alþjóðlega keðju kaffi- húsa á Íslandi en ekki fjölbreytta flóru minni kaffihúsa (sem er því miður staðan víða í heiminum). Einnig standa minni verslanir og þjónustuaðilar úr nærsamfélagi frekar fyrir viðburðum svo sem stuttum námskeiðum, mörkuðum eða öðrum uppákomum. Þessi fyr- irtæki eru auk þess líklegri til að nota aðra vöru eða þjónustu úr nærsamfélaginu og þannig stuðla að enn meiri uppbyggingu svæð- isins. Þá hafa minni verslanir oft á tíðum hærra þjónustustig og þjálfa starfsfólk sitt til að kunna á og skilja vöruna sem er til boða. Hvernig getum við nýtt okkur þetta til uppbyggingar á betra samfélagi? Fyrsta skref er að spyrja sig; hvernig fyrirtæki vil ég hafa í mínu samfélagi? Hvers vegna? Hvaða þjónusta skiptir mig máli? Hvernig atvinnumögu- leika vil ég að samfélagið bjóði upp á? Þegar við höfum leitt hug- ann að þessu getum við nýtt það þegar við verslum eða notum aðra þjónustu. Hvort sem við förum á kaffihús, veitingastað eða kaupum aðra vöru. Oft þegar við verslum erum við að kaupa af vana, við förum í sömu búðina og grípum sömu hlutina og við erum vön. Það getur e.t.v. verið auðveldara að byrja á að hugsa þetta út frá vörum sem við kaupum sjaldnar og þurfum því að stoppa og hugsa um hvort sem er. Segjum sem svo að þér sé boðið í boð eða veislu og að þú viljir gleðja gestgjafann með góðu súkkulaði. Þarna gefst tæki- færi til að kaupa handgert íslenskt súkkulaði t.d. í stað einhvers er- lends súkkulaðis. Þannig styður þú við íslenskt fyrirtæki í eigu frumkvöðuls sem býr í og byggir upp þitt nærsamfélag. Það sem ég þekki til af slíkri framleiðslu á Ís- landi eru keyptar inn kakóbaunir beint af bónda og fær því bóndinn meira fyrir sinn hlut en í margri annarri súkkulaðiframleiðslu. Ef þú vilt fá upplýsingar um fram- leiðsluna ætti starfsfólk að geta svarað spurningum því það veit betur hvað það er að selja þegar framleiðslan er á staðnum. Þetta er auðvitað bara eitt dæmi af mörgum um hvernig við getum auðveldlega lagt okkar af mörkum að betra og sjálfbærara samfélagi með því að breyta neyslumynstri. Þetta gildir einnig þegar við ferðumst erlendis. Ferðamenn geta skipt sköpum um uppbygg- ingu borga og sveitarfélaga með því að huga að því hvar þeir eyða peningum sínum. Ertu að gista á stöku hóteli í eigu einhvers sem býr í nærsamfélaginu eða hjá al- þjóðlegri hótelkeðju? Hvar borðar þú þegar þú ferðast? Við hvaða verslanir verslarðu erlendis? Vakinn, gæða- og umhverf- iskerfi ferðaþjónustunnar á Ís- landi, leggur áherslu á þetta. Fyr- irtæki sem vilja fá vottun Vakans ættu að kaupa vörur og þjónustu af fyrirtækjum í heimabyggð þeg- ar ferðast er með ferðamenn um landið, nýta starfsþekkingu og starfskraft heimamanna þar sem því verður við komið og styðja við uppbyggingu samfélagsins á ann- an hátt. Það er margt sem við getum gert til að byggja upp sjálfbærara samfélag og hér eru aðeins tekin nokkur dæmi. En dæmin sýna að við getum lagt okkar af mörkum til að byggja upp það samfélag sem við viljum búa í og gefið öðr- um samskonar tækifæri, okkur öll- um til heilla. Að byggja upp sjálfbært samfélag Í átt að sjálfbærni dr. Snjólaug Ólafsdóttir snjolaug@andrymi.is ’ Fyrsta skref er aðspyrja sig; hvernigfyrirtæki vil ég hafa ímínu samfélagi? Hvers vegna? Hvaða þjónusta skiptir mig máli? Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.