Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 12
Hvor er hvað? Marka- kóngarnir John Ald- ridge og Ian Rush. Skiptir ekki máli; þeir eru báðir með mottu. Eltihrellarnir í Manchester City myndu aldrei geta snert Mohamed Salah og félaga væru þeir með mottu! AFP Fyrstu Englandsmeistararnir, Preston North End veturinn 1888-89. Liðið fór taplaust gegnum mótið. Þið takið eftir skeggtískunni hjá þessum ágætu herramönnum. Tilviljun? Svari nú hver fyrir sig. Gullöld knattspyrnufélags-ins Liverpool stóð í tæpatvo áratugi; frá því snemma á áttunda áratugnum fram til 1990, að félagið vann sinn átjánda og síðasta meistaratitil í Englandi sem á þeim tíma var met. Það sem einkenndi þetta skeið öðru fremur, fyrir utan frábæra leikmenn og goðsagnakennda sparkstjóra, var yfirvararskegg. Já, segi ég og skrifa, í liði Liver- pool á þessum árum voru alltaf leikmenn með frambærilegar mottur. Er það tilviljun að Liver- pool hefur ekki hampað enska meistaratitlinum frá því fjaraði undan mottungum? Útherjinn knái Steve Heighway reið á vaðið; var sá eini í meistara- liðinu 1972-73 með hýjung á efri vörinni. Það gafst vel og fljótlega bættust miðvellingurinn Terry McDermott (1974) og miðherjinn David Johnson (1976) í hópinn og urðu lykilmenn. Bob Paisley knattspyrnustjóri var maður skarpsýnn og bætti tveimur mott- ungum til viðbótar við hópinn árið 1978, miðvellingnum Graeme Sou- ness og bakverðinum Alan Kennedy; báðir voru þeir fæddir með mottu. Og titlarnir streymdu í hús. Sex með mottu vorið 1982 Leiktíðina 1978-79 voru menn meira að segja líka að vinna með varanlegt (e permanent), meðal annars Souness og nafnarnir Phil Thompson og Phil Neal. Gott kombó, motta og perm. Þeir síðar- nefndu hentu þó aldrei í mottu; mögulega hefur þeim ekki sprottið grön, frekar en Njáli á Bergþórs- hvoli. Árið 1980 steig markahrókurinn Ian Rush sín fyrstu skref með Liverpool, mottaður í drasl, og ári síðar miðvörðurinn Mark Lawren- son og markvörðurinn Bruce Grobbelaar, einnig með haldgóðar mottur. Og segið mér svo að það hafi verið tilviljun að Liverpool varð Englandsmeistari þrjú ár í röð, 1982-84, fyrst liða í hálfa öld. Í lið- inu sem vann tvennuna, deildina og Mjólkurbikarinn vorið 1982 voru sex menn með yfirvarar- skegg; Souness, McDermott, Kennedy, Grobbelaar, Johnson og Rush. Eins og menn muna skart- aði Lawrenson alskeggi það vorið. Þarna reis veldi þeirra mott- unga hæst; Johnson rölti yfir til Everton um sumarið og McDerm- ott var seldur til Newcastle Unit- ed. Hinir héldu þó merkinu áfram hátt á lofti og þegar Rush hélt í mikla Bjarmalandsför til Ítalíu sumarið 1987 þótti Púlurum öruggast að festa kaup á tvífara hans, miðherjanum John Aldridge. Og, jú, jú. Hann var að sjálfsögðu með mottu. Og titlarnir streymdu áfram í hús. Miðvellingurinn Ronnie Whelan hlóð meira að segja í mottu um stund á níunda áratugnum en það dugði ekki lengi enda sást hún hálfilla á karlanganum. Var í eins- konar húðlit. Mögulega hafa fleiri Púlarar verið með slíkar felu- mottur, til dæmis kóngurinn sjálf- ur, Kenny Dalglish. Titlunum skolað burt með skeggvatninu Þegar Liverpool varð síð- ast meistari, 1990 (fyrir- gefið mér, Púlarar, fyrir að þrástagast á þessu!), þá voru mottungar þrír; Grobbelaar, Aldridge og Rush, snúinn heim úr útlegðinni á Ítalíu. Eftir það fjaraði hratt undan þessari hávönduðu tísku og um leið brást áskriftin að titlun- um. Það er með allmiklum ólíkindum að enginn á Anfield hafi áttað sig á þessu í öll þessi ár. En er það of seint? Alls ekki. Af djúpri virðingu fyrir Rauða hernum bendi ég for- svarsmönnum Liver- pool-klúbbsins á Ís- landi, Arngrími Baldurssyni, söguritara félags- ins, eða öðrum harð- snúnum áhangendum Liverpool hér um slóðir, á að snara þessari grein hið fyrsta yfir á ensku, nú eða þýsku, og koma henni í hendurnar á Jürgen Klopp knatt- spyrnustjóra. Varla getur það sakað að tveir til þrír samtímapúlarar hendi í mottu fyrir lokaslaginn við Man- chester City um meistaratitilinn. Þetta er rétti mánuðurinn! Liverpoool með Mjólkurbikarinn á gamla Wembley vorið 1982. Efri röð: (Mark Lawrenson með alskegg), Ian Rush, Bruce Grobbelaar og Terry McDermott. Neðri röð: David Johnson, Graeme Souness og Alan Kennedy. Enginn man lengur hvað þeir mottulausu í liðinu heita, enda var vigt þeirra að vonum mun minni. Púlarar, haldið ykkur á mottunni! Hvað einkenndi gullaldarlið Liverpool öðru fremur í ensku knattspyrnunni? Jú, það er rétt hjá ykkur: Yfirvararskegg. Og titlarnir streymdu í hús. Hvað eru margir leikmenn Rauða hersins með mottu í dag? Einmitt, aftur rétt. Enginn. Er það virkilega tilviljun að Liverpool hefur ekki orðið meistari í 29 ár? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Allsport Steve gamli Heighway ruddi brautina fyrir mottunga á Anfield og lagði um leið grunninn að gullöld Liverpool. YFIRVARARSKEGG 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.