Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 3. MARS 2019 www.husgagnahollin.is 558 1100 FA L L E G T F R Á NO R DA L Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafjörður Skeiði 1 Breska sjónvarpsstjarnan Charlotte Crosby, þekkt fyrir vinsælan raunveru- leikaþátt sinn á MTV, The Charlotte Show, hefur, eins og aðdáendur hennar vita, átt í ástarsambandi við aðra sjónvarpsfígúru, Josh Ritchie. Ritchie skaut upp á stjörnuhimininn í Bretlandi þegar hann keppti í raunveruleikaþáttunum Love Island og varð í þriðja sæti árið 2015. Því getur fylgt talsvert álag að vera í sambandi fyrir opnum tjöldum eins og raunveruleikastjörnur vita en í viðtali í vikunni sagði Crosby frá því að fyrstu al- vöru vandræðin í sambandi þeirra, þar sem þau áttu bágt með að geta yfirhöfuð verið fyrir framan myndavélina og Crosby endaði á að fara að gráta, hafi verið tengd Íslandi. Og ástæðan nákvæmlega? Crosby hafi á þeim tíma þráð að þau færu saman til Íslands til að „bjarga hvölum“ en Ritchie hafi frekar viljað vera í Bretlandi þá helgi til að sjá tónlistarmanninn 50 Cent. Ekki fylgdi sögunni hvað þau enduðu á að gera en Crosby sagði að hún hefði einfaldlega verið að gera úlfalda úr mýflugu. Charlotte Crosby hefur slegið í gegn með þættina sína á MTV. Morgunblaðið/Ómar Rifust yfir hvalabjörgun Crosby segist hafa sýnt full- dramatísk viðbrögð við því að kærastinn vildi ekki fara með henni til Íslands. Ein þekktasta raunveruleikastjarna Breta, Charlotte Crosby, fór að gráta fyrir framan myndavélarnar vegna rifrildis við kærastann um Ísland. Kvikmyndagagnrýni stendur á gömlum merg hér í Morgun- blaðinu. Fyrir réttum sextíu ár- um, 3. mars 1959, var rýnt í sænsku myndina Fartfeber sem sýnd var í Stjörnubíói. „Nafn myndarinnar er afleitt, en skilst þó væntanlega,“ byrjaði rýnirinn sem kallaði sig Ego. „Myndin er sænsk og „problem- mynd“, eins og svo margar skandinavískar myndir nú á dög- um, þ.e. hún fjallar um eitt erf- iðasta vandamál flestra menn- ingarþjóða heims á síðari tímum, – hið rótlausa æskufólk, sem leitar æ meir burt frá heim- ilunum og lifir öfgafullu og óheil- brigðu lífi og eirir engu í stöð- ugri leit að æsandi atburðum.“ Sagði Ego þetta leiða unga fólkið smám saman út á glæpa- brautina, oft með þeim afleið- ingum, að það ætti þaðan aldrei afturkvæmt. „Þeim, sem af al- vöru og fullum skilningi hugsa um þetta mikla vandamál, er mynd þessi óhugnanlegur vitn- isburður um hversu ástatt er í þessum efnum og hvert stefnir, ef ekki verða fundin örugg ráð til úrbóta. – Er reynt í myndinni að gera grein fyrir meginorsökum meinsemdarinnar, og í samræmi við ríkjandi skoðanir, er þar lögð áherzla á að þeirra sé fyrst og fremst að leita í slæmum heim- ilisháttum, vanræktu uppeldi og skilningsleysi hinna fullorðnu á sálarlífi unglinganna.“ GAMLA FRÉTTIN Rótlaust æskufólk Sænska „problemmyndin“ Fartfeber var sýnd í Stjörnubíói árið 1959. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Gimpið gæslumaður Hatari tónlistarmaður Thunderstick trymbill

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.