Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019 HEILSA Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Heilnæmi heitra baða hefur lengi veriðþekkt. Og fyrr á öldum voru það að-eins hinir mestu höfðingjar sem gátu leyft sér slíkan munað. Hver sér ekki Snorra Sturluson fyrir sér í lauginni í Reykholti þar sem hann hvílist eftir skriftir, eða heldur þeim áfram eftir að ofan í vatnið er komið? Og sannarlega er heita vatnið dásamlegt – nærtækari leið til að leita vellíðunar en köldu pottarnir sem ég hef fjallað óspart um á þess- um vettvangi. Ég er sannarlega hrifinn af heitu pottunum og nota þá til slökunar, þótt mér finnist köldu pottarnir merkilegri fyrir þær sakir að ég finn hversu gott þeir gera mér. En það er annað sem ég hef leitað uppi og fundið sem eykur mjög á vellíðan og dregur úr neikvæðum einkennum streitu og stirðleika. Það er sá staður sem á hvað minnst skylt við sessuna í kalda pottinum. Hann er að finna í sal í World Class. Þangað inn er alltaf lokað (þó ekki læst) og meðan maður dvelur þar vill maður hafa þrennt við höndina: æfingamottu, vatnsbrúsa og handklæði. Það skýrist af því að á þessum stað er heitt. Kjörhitastigið 37° eða á svipuðum slóðum og sjálfur líkamshitinn held- ur sig. Þegar komið er á þennan stað er maður orðinn þátttakandi í því sem í daglegu tali er nefnt hot yoga. Lengi vel hafði ég fordóma fyr- ir hreyfingu af þessu tagi en fyrir nokkrum ár- um lét ég tilleiðast og bókaði mig í tíma. Og af því að mér finnst hálfkák nærrum því eins leið- inlegt og tvíverknaður ákvað ég að skrá mig strax í 90 mínútna tíma í stað hins hefðbundna 60 mínútna tíma. Það voru mistök! Auðveldara að teygja í hitanum En þau urðu þó ekki til þess að slá mig lengi út af laginu. Þarna komst ég í fyrsta sinn í tæri við jóga og einhvern veginn fann ég fjölina mína strax. Að stunda hinar áhrifamiklu „hug- flæðisteygjur“ í heitum sal reyndist mér mun auðveldara en í sal við stofuhita. Það skýrist af þeirri einföldu ástæðu að vöðvar teygjast meira í hita. Raunar eykst teygja flestra hluta í hita og því er kostur hitans ótvíræður. Og eft- ir 10 til 20 mínútur í salnum þar sem farið er rólega af stað komast stirðustu símastaurar að því að þeir geta beygt sig fram án þess að eiga það á hættu að detta fram fyrir sig. Og þeir komast einnig að því, kannski í lok tímans eða eftir tvo, að hægt er að auka teygjanleikann. Teygjur eru að því leytinu til ekki ólíkar ann- arri líkamsrækt að árangurinn getur orðið mjög sjáanlegur með góðri ástundun. Það sem teygjurnar hafa umfram aðra líkamsrækt er það að þær eru í raun nauðsynlegur hluti allrar annarrar hreyfingar. Hafi maður þær ekki í huga og stundi mátulega er hætt við að illa geti farið. Þegar maður lyftir, hleypur, syndir eða stundar aðra hreyfingu teygist á vöðvunum og maður beitir þeim með öðrum hætti en í dag- legu lífi. Þá er nauðsynlegt að teygja þá og strekkja til að viðhalda fyrri liðleika. Oft er tal- að um að maður þurfi að teygja hið minnsta í 5-7 mínútur eftir hverja æfingu, aðeins til að viðhalda honum. Lengri teygjuæfingar þarf að taka til að auka liðleikann og þar getur hot yoga komið að góðum notum. Lokamarkið nálgast En að öðru. Í komandi viku lýkur þessari sex mánaða vegferð sem ég lagði upp í á síðasta hausti. Það er ekki laust við að ég kvíði því að hætta skrifum um þetta skemmtilega verkefni. En í næstu viku ætla ég að njóta ávaxta erf- iðisins, fagna því sem unnist hefur og kannski leyfa mér að sýta það sem mistekist hefur. Teygjanlegra í hitanum Það er ótrúlega gaman að vera sterkur – eða sterkari en maður áður var. Og það er gaman að vera grennri. En það eru fleiri þættir sem stuðla að heilbrigði og vellíð- an en þetta tvennt. Frábærir leiðbeinendur í hot yoga gera skemmtunina að góðum hluta vikunnar. Ljósmynd/World Class Í liðinni viku tók ég viðtal við Fidu Abu Libdeh sem stofnaði fyrirtækið geoSilica árið 2012. Fyrirtækið sérhæfir sig í vinnslu steinefna úr jarð- hitavatni sem fellur til við starfsemi Hellisheiðarvirkj- unar. Fida segir að hún hafi á ein- um tímapunkti áttað sig á að efnin sem gera vélbúnaði virkjunarinnar erfitt fyrir eru eftirsótt fæðubótar- efni sem fólk neyti til að styrkja hjarta og æðakerfi líkamans, auka heilbrigði húðar og hárs, nagla, beina, liða og bandvefs. Frumkvöðla- starf af þessu tagi er mikilvægt framlag til þess að auka virði þeirrar starfsemi sem stunduð er í ís- lensku atvinnulífi. Annað fyrirtæki sem farið hefur svipaða leið, en með annað hrá- efni, er Genís á Siglufirði. Fyrirtækið vinnur úr sjávar- fangi efni sem talið er geta dregið úr einkennum öldr- unar, einkum stirðleika, verkj- um og þreytu. Sjálfur hef ég enga reynslu af þessum vörum en eftir samtalið við Fidu, sem á sér hreint ótrúlega sögu, ákvað ég að prófa eina af vörum fyr- irtækisins sem nefnist geoSilica Repair. Í þeirri vöru er að finna kísil og mangan en henni er ætlað að styrkja upp- byggingu beina, styrkja bandvef, lið- bönd, liðþófa og krossbönd. Fida segir að fólk hér heima og erlendis beri því vitni að varan hafi mjög jákvæð áhrif. Nú er unnið að rann- sóknum á virkni vörunnar en ég ætla að sjá hvort ég muni geta sagt sömu sögu og það. MIKIL NÝSKÖPUN Í GANGI Steinefni úr iðrum jarðar Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 84,3 kg 84,3 kg Upphaf: Vika 24: Vika 25: 33.589 21.529 12.623 14.259 4 klst. 3 klst. HITAEININGAR Prótein 25,6% Kolvetni 37,3% Fita 37,1%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.