Morgunblaðið - 03.04.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 79. tölublað 107. árgangur
COSTCO
VILDI FÁ
STELLU
SIGRÚN
OG RAGN-
HEIÐUR
MYNDLISTARMAÐUR
MEÐ HJARTA
REYKJAVÍKUR
TILNEFNINGAR 31 HJARTATORG 12VIÐSKIPTAMOGGINN
Morgunblaðið/Ásdís
Góðgæti Sæeyru eru stórvaxnir,
ætir sæsniglar, vinsælir í sushirétti.
Sæbýli ehf., sem ræktar japönsk
sæeyru á Eyrarbakka og í Þorláks-
höfn stefnir að um 5-6 þúsund
tonna eldi á sæeyrum í 25 eld-
isstöðvum um land allt á næstu ár-
um.
Að sögn Kolbeins Björnssonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins, er
stefnt að því að hver og ein eld-
isstöð verði um fjögur þúsund fer-
metrar að stærð. Hann segir það
mikilvægt að vera með margar litl-
ar og umhverfisvænar eldisstöðvar
sem hafi ekkert kolefnisspor, þurfi
20-30 starfsmenn hver, og starf-
semin passi þannig fyrir lítil sam-
félög víða um landið. „Ég hef starf-
að með frumkvöðli verkefnisins,
Ásgeiri Guðnasyni, síðan 2009 að
hönnun lóðrétta eldiskerfisins og er
þetta eitt flottasta tæknifyrirtæki
landsins og algjör bylting í landeldi
á verðmætum botnlægum sjávar-
tegundum. Þetta er mjög verðmæt
afurð og gerir eldistæknin okkur
kleift að lækka framleiðslukostnað í
eldinu um faktor 2-3 miðað við
venjulegt kvíaeldi erlendis,“ segir
Kolbeinn Björnsson við Við-
skiptaMoggann í dag.
6.000 tonn af sæeyrum
Hyggjast byggja 25 lóðréttar eldisstöðvar um land allt
Fjórir fatlaðir einstaklingar á
miðjum aldri, karlar og konur, búa
enn í húsnæði gamla Kópavogshæl-
isins í Kópavogi, að sögn Þóru Þór-
arinsdóttur, framkvæmdastjóra
Áss styrktarfélags. Hún segir að
þetta fólk hafi dagað uppi í kerfinu
og búi ekki við þær aðstæður sem
öðru fötluðu fólki er boðið upp á.
Þóra sagði að stjórn Áss
styrktarfélags hefði nýlega ritað
félagsmálaráðherra. „Við gáfum
frest til 1. maí og fólk þarf að fara
að gera eitthvað í þessu. Því hefur
verið lýst yfir að öllum stofnunum
af þessu tagi hafi verið lokað hér á
landi en sú er ekki raunin.“ »14
Fjögur búa enn á
Kópavogshæli
Ungverska flugfélagið Wizz air
hyggst fljúga frá Keflavík til Luton-
flugvallar í London sjö sinnum í
viku. Mun þessi breyting taka í gildi
í lok maí og standa til loka október-
mánaðar hið minnsta en þá lýkur
sumaráætlun Isavia. Þetta staðfesti
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi
Isavia, við ViðskiptaMoggann.
Fjölgar ferðum flugfélagsins til
London um þrjár frá Keflavík. Þá
hyggst félagið einnig fjölga ferðum
til Varsjár úr fjórum í fimm. Mun sú
breyting taka gildi strax. Að sögn
Guðjóns eru þessar breytingar bein
afleiðing af samskiptum Isavia við
flugfélög um að bregðast við breytt-
um aðstæðum á flugmarkaði í kjöl-
far gjaldþrots WOW air í síðustu
viku.
Wizz air á hverjum
degi til London
Ljósmynd/Wizz air
Flugfélag Wizz air fjölgar ferðum
frá Keflavík til London.
Mink Campers ehf., framleiðandi
Mink-sporthýsisins, sem ætlað er til
ferðalaga úti í náttúrunni, frum-
sýnir á morgun aðra kynslóð sport-
hýsisins, sem nú hefur verið endur-
hannað með fjöldaframleiðslu í
flatpakkningum og hagkvæmni í
huga.
Forsvarsmenn Mink Campers,
þeir Kolbeinn Björnsson og Ólafur
Gunnar Sveinsson, segja í samtali
við ViðskiptaMoggann að stefnt sé
að því að innan fimm ára muni þeir
selja um 2-3 þúsund hjólhýsi á ári,
og vera þar að auki með um 2-300
útleigustöðvar fyrir sporthýsin vítt
og breitt um Evrópu og Bandarík-
in. „Við byrjum að bjóða leiguþjón-
ustuna nú á þessu ári í skosku há-
löndunum, rúmensku hálöndunum,
í Norður-Noregi og í Hamborg í
Þýskalandi.“
Morgunblaðið/Eggert
Hagkvæmni Einföld skandinavísk hugsun
er ráðandi í hönnun Mink-sporthýsisins.
Vilja selja og leigja
þúsundir sporthýsa
Helgi Bjarnason
Freyr Bjarnason
Viðræður um nýjan kjarasamning
fyrir meginhluta almenna vinnu-
markaðarins, sem fram fóru í Karp-
húsinu í gær, snerust fyrst og fremst
um frágang atriða því í fyrrinótt var
undirritað samkomulag um megin-
línur nýs kjarasamnings. Samninga-
menn voru að fram á nótt en stefnt
var að undirritun í þessari vinnulotu
og að efnisatriði samninga yrðu
kynnt almenningi í dag.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, sagði í gærkvöldi ein-
sýnt að samningsaðilar væru komnir
á lokametrana í viðræðunum. Menn
væru að vanda sig og að mörgu
þyrfti að huga. „Við undirrituðum
hérna klukkan tvö síðustu nótt meg-
inlínur og útdrætti kjarasamnings-
ins þar sem búið er að festa alla
þessa stærstu þætti. Þetta snýst
fyrst og fremst um frágang núna,“
sagði Halldór en bætti við að eftir
væri að klára ákveðin atriði.
„Þetta eru flóknir samningar og
það er margt sem spilar þarna inn í,“
sagði Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR. Hann vonaðist til að geta
kynnt undirritaðan samning í dag,
það væri stefnan.
Grundvöllur víðtækrar sáttar
Meginlínur kjarasamninga voru
undirritaðar með fyrirvara um að-
komu stjórnvalda. Unnið var að því í
gær að aflétta þeim fyrirvara, sam-
hliða frágangi samninga. „Ég tel að
þeir þættir sem verða í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar ásamt þeim
áherslum sem aðilar vinnumarkað-
arins hafa verið að leggja sín í milli
geti orðið grundvöllur að víðtækri
sátt og skapað skilyrði fyrir efna-
hagslegum og félagslegum stöðug-
leika til langs tíma. Einnig til vaxta-
lækkunar,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra í
gærkvöldi, spurð um stöðu mála í
viðræðunum. Viðræður stóðu enn yf-
ir þegar blaðið fór í prentun.
Morgunblaðið/Hari
Samningur Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Halldór Benjamín Þorbergsson frá SA ganga aftur til fundar í Karphúsinu í gærkvöldi.
Samningar kynntir
Samningamenn unnu fram á nótt við útfærslu og frágang nýrra kjarasamninga
Getur skapað skilyrði fyrir stöðugleika til langs tíma, segir forsætisráðherra
MLífskjarasamningur »2