Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019
Nýr innsiglingarviti fyrir Reykjavíkurhöfn,
austan við Höfða við Sæbraut í Reykjavík, er
kominn á sinn stað. Á viti þessi að koma í stað
eldri vita í turni Sjómannaskólans sem var í
notkun allt þar til háhýsin við Höfðatún fóru
að skyggja á hann. Auk þess að auðvelda sigl-
ingu inn í Reykjavíkurhöfn er reiknað með
því að vitinn muni laða að sér ferðamenn, en
útsýni frá honum er með allra besta móti.
Snemma í gær tóku vegfarendur eftir stór-
virkri vinnuvél við Sæbraut og sá hún um að
hífa vitann á þann stað sem hann stendur nú
á. Eftir að því verki var lokið tók vaskur hóp-
ur iðnaðarmanna við keflinu og mun hann
meðal annars sjá um að tengja ljósabúnað vit-
ans. Búist er við því að hægt verði að tendra
hinn nýja vita Reykjavíkur á næstu vikum.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna,
kveðst vera afar ánægður með vitann.
„Lagt var upp með að halda í þau einkenni
sem eru í Skarfagarði og gömlu höfninni. Og
það er ástæða þess að þessi viti lítur út eins
og hann gerir – glæsilegur og þarna mun
hann standa um ókomna tíða,“ segir Gísli í
samtali við Morgunblaðið og vísar til gömlu
vitanna sem Reykvíkingar þekkja svo vel.
„Þegar búið er að tengja hann verður innsigl-
ingin aftur eins og vera ber.“ khj@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Þarna mun hann standa um ókomna tíð“
Innköllun
- þrotabú WOW air hf.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 28. marz 2019
var WOW Air hf, kt. 451011-0220, Katrínartúni 4, 105 Reykjavík
tekið til gjaldþrotaskipta. Sama dag voru undirritaðir skipaðir skipta-
stjórar í búinu. Frestdagur við gjaldþrotaskiptin er 28. marz 2019.
Hér með er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra rétt-
inda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum
sínum fyrir undirrituðum skiptastjórum í búinu innan fjögurra
mánaða frá fyrri birtingu innköllunar í Lögbirtingarblaði í dag 3. apríl
2019. Kröfulýsingar skulu sendar Sveini Andra Sveinssyni hrl
skiptastjóra, Grjótagötu 7, 101 Reykjavík.
Skiptafundur til að fjalla um skrá um lýstar kröfur og ráðstöfun á
eignum og réttindum búsins verður haldinn í fundarsal á Hilton
Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn
16. ágúst 2019 kl. 13:00.
Skrá um lýstar kröfur mun liggja frammi á skrifstofum skiptastjóra
síðustu viku fyrir skiptafundinn.
Reykjavík, 3. apríl 2019.
Þorsteinn Einarsson hrl.
Sveinn Andri Sveinsson hrl.
Borgarstjórn samþykkti
samhljóða á fundi borg-
arstjórnar í gær að vísa
tillögu Sjálfstæðisflokks-
ins um að styðja við
íþróttafélögin í Reykjavík
að koma á fót rafíþrótta-
deildum innan félaganna
inn í menningar-, íþrótta-
og tómstundaráðs til úr-
vinnslu. Stóðu flokkarnir í
borgarstjórn að sameig-
inlegri bókun um málið
sem telst til tíðinda í Ráð-
húsinu. Jafnframt var lagt
til að iðkendur gætu nýtt
sér frístundakort Reykjavíkur líkt og með aðrar íþróttagreinar.
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og tillöguflytjandi,
segist ánægður með að borgarstjórn hafi getað sameinast um að vinna að
þessu jákvæða máli. Þá sendu félögin KR, Víkingur og Fjölnir frá sér sér-
staka stuðningsyfirlýsingu við málið í gær.
Tillögu um stuðning við rafíþróttir vel tekið
Rafíþróttir Keppt var í rafíþróttum á Reykja-
víkurleikunum í vetur. Þátttaka var mikil.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigrún Pálína Ingv-
arsdóttir, þroskaþjálfi
og brautryðjandi í bar-
áttunni gegn kyn-
ferðisofbeldi á Íslandi,
er látin, 63 ára að
aldri. Hún lést á
sjúkrahúsi í Danmörku
2. apríl sl. eftir erfið
veikindi.
Pála, eins og hún
var alltaf kölluð, fædd-
ist í Reykjavík 8. nóv-
ember árið 1955. For-
eldrar hennar voru
þau Ingvar Alfreð
Georgsson og Elísabet
Óskarsdóttir.
Pála lauk námi frá Þroskaþjálfa-
skóla Íslands árið 1977 og starfaði
við sitt fag fram til 1996 er hún
flutti búferlum til Danmerkur þar
sem hún starfaði lengst af sem
þroska- og markþjálfi
og meðferðarráðgjafi.
Fyrri eiginmaður
Pálu var Sigurður
Blöndal, en hann lést
1. mars sl., og þau
eignuðust börnin El-
ísabetu Ósk, f. 19. júní
1976, hennar börn eru
Aron Pétur og Viktor;
Bjarka Blöndal, f. 11.
janúar 1981, börn
hans eru Tómas Val-
ur, Elísabet Pála og
Sigurbjörn; og Sól-
veigu Hrönn, f. 1.
mars 1985, börn henn-
ar eru Pálína Dís og Ísak Örn.
Síðari maður Pálu er Alfred-
Wolfgang Gunnarsson, gull-
smíðameistari og steinasetjari, en
þau giftu sig 2008 og lifir hann
konu sína.
Andlát
Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir