Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 11

Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 ÁRALANGAR RANNSÓKNIR GEFA HÚÐINNI BJARTARI FRAMTÍÐ: Prodigy CELLGLOW línan með jurtastofnfrumum úr hinu ofursterka EDELWEISS blómi úr Svissnesku Ölpunum, gefur ljóma, þéttari og stinnari húð og dregur sjáanlega úr flestum merkjum öldrunar. AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HR VÖRUM20% HELENA RUBINSTEIN KYNNING MIÐVIKUDAGTIL FÖSTUDAGS GLÆSILEGUR KAUPAUKI AÐ HÆTTI HELENA RUBINSTEIN. THE VEGETAL WEAPON FOR A HEALTHY SKIN #keepfighting NÝTT NÝ STJARNA DJÚPENDURNÝJANDI SERUM Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line (Allrahanda GL ehf.), gerir athugasemd við umfjöllun um skuldastöðu fyrirtækisins í Morgun- blaðinu í gær. Var hún hluti af um- fjöllun um skuldir 23 fyrirtækja í ferðaþjónustu í árslok 2017. Þar kom m.a. fram að skuldir Allrahanda hefðu verið 1.959 millj- ónir í árslok 2017. Talan var sótt í ársreikning samkvæmt fjár- málavefnum Keldan.is. Þórir segir hið rétta að samtals hafi vaxtaberandi skuldir Allra- handa verið 1.120 milljónir í árslok 2017. Sú fjárhæð samsvarar 57 pró- sentum af 1.959 milljónum. Vaxtaberandi skuldir séu hinn rétti mælikvarði. Með því leiðréttist hlutfall skulda af EBITDU úr 22,8, samkvæmt frétt blaðsins, í hlutfallið 13. Með EBITDU er vísað til rekstrarhagnaðar fyrir fjármagns- liði, afskriftir og skatta. Talan gefi ranga mynd Þá benti Þórir á að með því að taka allar skuldir væri verið að telja með viðskiptaskuldir, fyrirfram inn- heimtar tekjur og aðrar skamm- tímaskuldir. Það gæfi ranga mynd miðað við samhengi í fréttinni. Þar hefði enda verið fjallað um margfeldi skulda og EBITDU. Viðskiptakröfur sveifluðust til og frá eftir árstíðasveiflu. Um áramótin væru þær tölur yfirleitt háar, enda jól og áramót háannatími í ferða- þjónustunni. Með því að miða til dæmis við 1. maí en ekki 31. desem- ber hefði því fengist allt önnur mynd. baldura@mbl.is Ekki rétt að telja fram allar skuldir  Allrahanda gerir athugasemd við umfjöllun um skuldir fyrirtækisins Athafnamaður Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line. Morgunblaðið/Jakob Fannar BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur framlengt gildistíma reglugerðar um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) um þrjá mánuði til 30. júní nk. Um er að ræða kostn- að vegna lækna- starfa sem unnin eru á stofum sér- greinalækna í um 25 sérgreinum. Rammasamn- ingur milli SÍ og sérgreinalækna sem gerður var í desember 2013 rann út um áramót- in. Heilbrigðisráðherra setti þá reglugerð um greiðsluþátttöku vegna endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna. Það var gert til þess að samningsleysið kæmi ekki niður á notendum. Reglugerðin gilti fyrst frá 1. janúar til 31. mars 2019 en hefur nú verið framlengd. „Formlegar og óformlegar við- ræður við ráðherra, ráðuneyti og Sjúkratryggingar hafa staðið lengi. Viðræður sérgreinalækna og SÍ hafa til þessa snúist um form og fyr- irkomulag nýs samnings. En við höf- um ekki rætt gjaldskrár eða annað slíkt,“ sagði Kristján Guðmundsson, háls-, nef- og eyrnalæknir og for- maður samninganefndar Lækna- félags Reykjavíkur (LR). Félagið sér um samningsmál fyrir alla starf- andi sérgreinalækna. Hann sagði að nú væri komið upp sama óvissu- ástand og var frá 1. apríl 2011 til ársloka 2013, þegar enginn ramma- samningur var í gildi. „Vegna breytinga á lögum um op- inber innkaup frá október 2016 þurfa þessi þjónustukaup nú að fara eftir annarri leið en þau hafa gert áður,“ sagði Kristján. SÍ þarf nú að ákveða hvað á að kaupa mikla þjón- ustu í hverri sérgrein. Svo þarf að ákveða hvernig deila á þjónustu- kaupunum á milli sjúklinga. Sér- greinalæknar hafa fyrir löngu hvatt stjórnvöld til að ákveða hve mikla þjónustu þau vilji kaupa. Það sem út af standi verði þá boðið til sölu á frjálsum markaði. Sjálfsagt að tilvísanir komi Eftir að ný reglugerð um greiðsluþátttöku var sett vorið 2017 hefur að einhverju leyti dregið úr verðstýringu í þessa þjónustu, að sögn Kristjáns. Annað stjórntæki, sem eru tilvísanir, hefur ekki verið tekið í notkun nema fyrir börn 2-18 ára. „Okkur finnst sjálfsagt að það komi tilvísanir. Í þeim getur falist faglegt mat á þörfinni á þjónustu- kaupum,“ sagði Kristján. Hann sagði að sérgreinalæknar og stjórn- völd væru sammála um ýmsa þætti en það væri stórt viðfangsefni að ljúka málinu. SÍ hafi talið að það geti tekið allt að 18 mánuði að komast til botns í því hvernig eigi að kaupa þjónustu af sérgreinalæknum. Samningar um barnatannlækn- ingar renna út í maí og sömuleiðis samningar við sjúkraþjálfara og fleiri. „Við viljum sjá hvað Sjúkra- tryggingar gera varðandi þessa samninga,“ sagði Kristján. „Við bíðum eftir ákvörðunum stjórnvalda. Á fólk að borga fullt gjald hjá okkur ef það er ekki með tilvísun? Ætlar ríkið að kaupa til- tekna þjónustu af okkur? Hvernig á að takmarka þau þjónustukaup og hvernig á að dreifa þeim meðal sjúk- linganna? Við bíðum eftir svörum við þessu,“ sagði Kristján. Hann tók það fram að engin óvild væri á milli sérgreinalækna og hins opinbera. Viðræðurnar snerust m.a. um lengd samnings. Þyngri starfsemi þyrfti helst fimm ára samning en hið op- inbera vildi helst gera skemmri samning. Kristján sagði að nú væri pólitísk- ur vilji og skýr skilaboð um að efla ætti opinbera heilbrigðisþjónustu. „Okkur finnst dapurlegt ef ekki á að nýta áfram kosti einkaframtaks- ins í heilbrigðisþjónustu. Við bíðum eftir að sjá hvað kemur út úr heil- brigðisstefnunni,“ sagði Kristján. Breyttar reglur um innkaup  Hefur áhrif á kaup þjónustu af sérgreinalæknum  Gildistími reglugerðar um endurgreiðslu kostnaðar vegna sjálfstætt starfandi sérgreinalækna framlengdur Morgunblaðið/Árni Sæberg Gildistími Samningar um barnatannlækningar renna út í maí sem og fleiri samningar. Mynd úr safni. Kristján Guðmundsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Jarðskjálftahrinunni í Öxarfirði er ekki lokið. Eftir rólega helgi, sem benti til þess að hrinan væri að lognast út af, kom hviða snemma í gærmorgun. Stærsti skjálftinn í hviðunni var 2,7 að stærð klukkan kortér fyrir sjö um morguninn og áfram var smá- virkni. Síðdegis í gær höfðu um 80 skjálftar mælst og stefndi í um 100 skjálfta sem er svipað og undanfarna daga. Spenna að losna „Þetta þýðir að skjálftahrinan er enn virk og við fylgjumst áfram náið með þróun hennar,“ segir Einar Hjörleifsson, nátt- úruvársérfræðingur á Veðurstof- unni. Hann segir að spenna sé að losna á þessum enda Grímseyj- arbrotabeltisins. „Við teljum enn að uppi séu sömu tvær sviðsmyndirnar: Það gæti fylgt stærri jarðskjálfti en flestum hrinum lýkur þó án stærri jarðskjálfta,“ segir Einar. 2.600 skjálftar samtals Jarðskjálftahrinan í Öxarfirði hófst laugardaginn 23. mars. Upptökin eru um 6 kílómetra suð- vestur af Kópaskeri, á 2-5 kíló- metra dýpi. Alls hafa mælst yfir 2.600 skjálftar. Um miðja síðustu viku mældust um 500 skjálftar á dag en 780 skjálftar þann dag sem virknin var mest. Und- anfarna daga hafa um 100 skjálft- ar mælst á degi hverjum. Hafa mælst 8 skjálftar af stærð 3 og yfir, sá stærsti 4,2 að stærð. Ríkislögreglustjóri og lög- reglustjórinn á Norðurlandi eystra lýstu yfir óvissustigi al- mannavarna 28. mars. Ný jarð- skjálfta- hviða  Áfram fylgst með skjálftum í Öxarfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.