Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 13

Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 13
og langafi verslunarstjóri. Það hvarflað ekki að mér að ég ætti eft- ir að fara í þessa átt, en svo reynist þetta vera í genunum,“ segir Jói og bætir við að Pabbakné ehf. sé móð- urfyrirtæki verslunarinnar, en Pabbakné hefur lengi verið skjól fyrir hann sem myndlistarmann. „Ég skapaði ímyndaðar mark- aðsvörur í mínum málverkum og var að draga dár að fyrirtækja- menningu, að myndlistarmenn væru að selja sálu sína, allir væru á höttunum eftir því að komast inn á gallerí þar sem þeir væru háðir kapítalistunum. Ég hélt meðal ann- ars sýningu þar sem ég skrifaði um mig í þriðju persónu. Ég bjó til ímyndaðan forstjóra sem hét Auð- unn Laupur Hólm, og ég lét Auðun hrósa mér í hástert en um leið gagnrýna mig mjög harkalega. Ég var óvæginn við sjálfan mig í þess- ari persónu.“ Ég brenndi bönd sem héldu mér Jói er í leyfi frá starfi sínu í Listaháskólanum eftir margra ára starf þar og segir að þá hafi orðið vatnaskil í lífi hans. „Ég lenti í því sem kallað er kulnun í starfi, en ég lít á það sem jákvæðan bruna, því ég brenndi í sundur einhver bönd sem héldu mér. Og nú hef ég haldið inn á nýj- ar lendur. Mér finnst frábært að taka svona u-beygju á gamals- aldri,“ segir Jói sem á afmæli í dag, hann fagnar 54 ára afmæli. „Undanfarin ár hafa foreldrar mínir verið að gamlast svolítið og maður gerir sér grein fyrir hvað lífið er ótrúlega stutt. Mig langar ekki að sitja eftir 30 ár með eftirsjá af því að hafa ekki gert það sem mig langar. Þess vegna opnaði ég Hjarta Reykjavíkur,“ segir Jói sem er með grafíkpressu í nýju búðinni og vinnur þar grafíkverk. „Þannig bý ég til frjálsari anda og rýmið verður notalegra. Ég málaði í ham- ingjulit hér inni og er með gamla hluti sem hafa tilfinningalegt gildi, afgreiðsluborðið er hefilbekkur frá tengdapabba mínum sem féll frá nýlega og mamma lánaði mér kistil sem prýðir rýmið hérna, en hún flutti hann til landsins með sæng- urfötunum sínum í árið 1962 frá Þýskalandi.“ Notalegt Hefilbekkur tengdapabba í hlutverki afgreiðsluborðs. Morgunblaðið/RAX Verk Jóa á vefsíðu: pabbakne.is Heimasíða verslunar: hjart- areykjavikur.com DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 SAMSTARFSAÐILI Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVAR SEM ÞÚ ERT Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Eftirfarandi hugleiðingar um bækur og hús er tilvitnun í rithöfundinn Þór- berg Þórðarson og er hún fremst í bók Jóa, Kæri Laugavegur: Allir Íslendingar kunna að lesa bækur. En hversu margir kunna að lesa hús? Það er meiri íþrótt að kunna að lesa hús, en að geta lesið bækur. Húsið er hugsun, sem hefur hæð, lengd og breidd. Bókin er vönt- un á hugsun sem aðeins hefur lengd. Húsið er sannleikurinn um líf kyn- slóðanna. Bókin er lygin um líf þeirra. Þórbergur sagði húsið vera sannleikann um líf kynslóðanna Mikil íþrótt að lesa hús Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Félagar Þórbergur Þórðarson og Matthías Johannessen á góðru stundu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.