Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019
Spóinn er algengur varpfugl á lág-
lendi um land allt og hefur stofninn
verið metinn um 250 þúsund varp-
pör. Á Íslandi verpir megnið af
Evrópustofninum og líklega fyrir-
finnst hvergi í heiminum þéttara
spóavarp. Íslenskir spóar tilheyra
undirtegund sem er að langmestu
leyti að finna hérlendis.
Spóinn verpur í margskonar bú-
svæðum, svo sem í mýrlendi, móum
og graslendi. Hæstur er þéttleikinn
á hálfgrónum áreyrasvæðum en al-
gengur varpþéttleiki á slíkum
svæðum er 30-40 pör á ferkíló-
metra. Um þetta og fleira fjallar
Borgný Katrínardóttir, líffræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, í erindi á Hrafnaþingi í dag,
miðvikudaginn 3. apríl kl. 15.15.
Afföll af eggjum og ungum
Fyrstu spóarnir koma til landsins
í lok apríl og varp hefst síðari hluta
maí, segir í útdrætti úr erindinu.
Álegan tekur um 26 daga og ungar
verða fleygir rúmlega mánaðar-
gamlir. Töluverð afföll eru af eggj-
um og ungum og meðal helstu af-
ræningja eru tófur, hrafnar og
kjóar en einnig hefur orðið vart við
að sauðkindur éti spóaegg.
Fullorðnir spóar yfirgefa Ísland
flestir í kringum mánaðamótin júlí/
ágúst. Ungarnir fara af landi brott
nokkrum vikum síðar og þurfa þá
að reiða sig á eðlisávísunina við að
rata á vetrarstöðvarnar. Á veturna
dvelja íslenskir spóar í Vestur-
Afríku en nýlegar rannsóknir hafa
staðfest að þangað fljúga þeir beint
yfir opið haf án hvíldar.
Ísland er afar ríkt af spóum en
víða er gróðurfar á kjörsvæðum
tegundarinnar að breytast, meðal
annars vegna minnkandi sauð-
fjárbeitar, dreifingar lúpínu og
skógræktar, segir m.a. í kynningu á
erindi Borgnýar.
Varppör spóa talin
vera um 250 þúsund
Fljúga yfir opið haf án hvíldar
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Spói Líklega fyrirfinnst hvergi
í heiminum þéttara spóavarp.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjórir fatlaðir einstaklingar á
miðjum aldri, karlar og konur, búa
enn í húsnæði gamla Kópavogshæl-
isins í Kópavogi, að sögn Þóru Þór-
arinsdóttur, framkvæmdastjóra Áss
styrktarfélags. Hún segir að þetta
fólk hafi dagað uppi í kerfinu og búi
ekki við þær aðstæður sem öðru fötl-
uðu fólki er boðið upp á.
Voru hvergi í kerfinu
„Málaflokkur fatlaðra fluttist frá
ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011.
Þá bjuggu tíu fatlaðir einstaklingar á
Kópavogsbrautinni. Sex eru nú látn-
ir. Þeir voru hvergi í kerfinu sem
heldur utan um málefni fatlaðra held-
ur innritaðir á Landspítalann sem
sjúklingar. Þeir áttu kennitölu og
höfðu stofnanaheimilisfang,“ sagði
Þóra. „Við hjá Ási styrktarfélagi,
Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið,
starfsfólk Landspítalans og fleiri höf-
um gert athugasemdir við að þetta
fólk var ekki tekið með þegar málefni
fatlaðra voru flutt til sveitarfélag-
anna. Það er margbúið að reyna að
koma þeim inn í málaflokk fatlaðra.
Ás styrktarfélag tók við þjónustu við
þau 1. nóvember 2013 þegar sýnt var
að þau yrðu ekki flutt yfir með öðrum
hætti. Við gerðum það með því for-
orði að vinna þau út af stofnuninni.
Þau yrðu útskrifuð af spítalanum og
kæmust inn í lögbundið umhverfi
fatlaðra, fengju bætur frá Trygginga-
stofnun, hefðu heimilisfang og eigin
fjárráð. Þetta tókst á nokkrum mán-
uðum.“
Flest þeirra hófu að taka þátt í
Vinnu og virkni hjá Ási styrktarfélagi
eftir getu. Mikil breyting varð á lífi
þeirra til hins betra. „Þau hafa farið
að stjórna lífi sínu meira sjálf og njóta
almennra mannréttinda í samfélag-
inu,“ sagði Þóra.
Ekki staðið við bókanir
Ás styrktarfélag gerði samning við
Ríkisspítala um þjónustu við þessa
einstaklinga til þriggja ára. Ráðu-
neytið gerði þá sérstaka bókun um að
laga aðstöðu þessa fólks. Þóra sagði
að af hálfu Áss styrktarfélags hefði
áframhaldandi búseta á Kópavogs-
braut ekki komið til greina. Þar er
gömul stofnanabygging Kópavogs-
hælisins.
„Þetta er stofnanahúsnæði. Það
býr enginn í svona húsnæði í dag
nema fólk sem liggur á spítala. Sam-
kvæmt lögum á fötluðu fólki að
standa til boða eigin íbúð. Þessum
fjórum hefur aldrei verið boðið neitt
annað en þetta húsnæði. Við viljum
að þau fái íbúð, flytji í íbúðakjarna
eða eitthvað slíkt sem einstaklingar,
ekki endilega sem hópur,“ sagði
Þóra. Hún sagði að ráðuneytið hefði
ekki staðið við yfirlýsingu sem gefin
var samhliða samningnum. Ás
styrktarfélag fór í mikla baráttu 2016
sem endaði með því að samningurinn
var framlengdur með loforði ríkisins
um að þessum einstaklingum yrði bú-
in svipuð aðstaða og öðrum fötluðum.
Ekki hefur enn verið staðið við það,
að sögn Þóru. Samningurinn rennur
aftur út í lok október á þessu ári.
Þóra sagði að stjórn Áss styrktar-
félags hefði nýlega ritað félagsmála-
ráðherra vegna málsins. „Við gáfum
frest til 1. maí og fólk þarf að fara að
gera eitthvað í þessu. Því hefur verið
lýst yfir að öllum stofnunum af þessu
tagi hafi verið lokað hér á landi en sú
er ekki raunin.“
Dvelja enn á gamla Kópavogshæli
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kópavogsbraut Fjórir fatlaðir einstaklingar búa enn í 400 fermetra stofn-
anahúsnæði í Kópavogi. Aðstaðan þykir ekki í samræmi við nútímakröfur.
Tíu einstaklinga virðist hafa dagað uppi í kerfinu þegar málefni fatlaðra voru flutt til sveitarfélaga
Fjórir þeirra eru enn á lífi og hafa ekki fengið nútímaúrræði Ás styrktarfélag hefur ritað ráðherra
Sóltún öldrunarþjónusta ehf. hefur
tekið við rekstri hjúkrunarheimilis-
ins Sólvangs í Hafnarfirði í kjölfar
útboðs Ríkiskaupa, fyrir hönd
Sjúkratrygginga Íslands á síðasta
ári. Sóltún öldrunarþjónusta tekur
við rekstrinum af ríkinu sem hefur
rekið heimilið síðan 1991.
„Við teljum hér vera spennandi
tækifæri á Sólvangi og hlökkum til
að bjóða upp á hjúkrunarþjónustu
sem byggist á hugmyndafræði sem
hefur gefið mjög góða raun á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni í Reykjavík,
en það hefur verið rekið við góðan
orðstír til margra ára. Hug-
myndafræði Sóltúns hefur um-
hyggju fyrir einstaklingnum í fyr-
irrúmi, þar sem sjálfræði hans er
virt í allri umönnun. Heimilisandi
og virðing fyrir einkalífi hvers íbúa
er ráðandi um leið og öryggiskennd
sem hlýst af sambýli og sólarhrings
hjúkrunarþjónustu er náð. Athafnir
daglegs lífs eru viðfangsefnið með
áherslu á þátttöku íbúa og aðstand-
enda þeirra eftir getu, óskum og
vilja hvers og eins,“ segir Halla
Thoroddsen, nýr framkvæmdastjóri
Sólvangs, í fréttatilkynningu.
Nýtt húsnæði á Sólvangi átti að
afhendast í ársbyrjun en seinkun
hefur orðið á afhendingu frá verk-
takanum.
Vonir standa til að húsnæðið
verði tilbúið í júní nk. Þá munu 59
íbúar Sólvangs flytjast yfir og eitt
rými í viðbót bætist við. Áætlað er
að fara í endurbætur á eldra hús-
næðinu, sem byggt var 1953, og eft-
ir endurbætur verða þar 30 rými.
Einnig mun Sóltún öldrunarþjón-
usta sjá um rekstur 14 rýma í dag-
dvöl á Sólvangi.
Sóltún öldrunarþjónusta rekur
einnig Sóltún Heima sem hefur
boðið upp á heimaþjónustu, heima-
hjúkrun og heilsueflingu fyrir eldri
borgara á höfuðborgarsvæðinu sem
miðar að því að efla, styrkja og
styðja aldraða í sjálfstæðri búsetu.
„Með Sólvangi getur félagið boðið
upp á samfellu í þjónustu við aldr-
aða á höfuðborgarsvæðinu og létt
undir með fjölskyldum á heimili
þeirra á meðan beðið er eftir
hjúkrunarrými,“ segir Halla.
Taka við rekstri Sólvangs í Hafnarfirði
Samið í kjölfar útboðs Ríkiskaupa Ríkið hefur rekið Sólvang frá 1991 Nýtt húsnæði í júní
Öldrunarþjónusta Sólvangur í Hafnarfirði verður rekinn af Sóltúni öldr-
unarþjónustu ehf. Ríkið hefur rekið heimilið frá árinu 1991.