Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 20

Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 WOW air er aðeins forsmekkurinn að þeim þrengingum sem eiga eftir að ganga yfir efnahag þjóðarinnar. Flugfélagið blés stjórnlaust út í skjóli þess að stjórnvöld og eftirlitsaðilar aðhöfð- ust lítið sem ekkert, til að fylgja eftir lög- bundnu eftirliti og að- haldi. Það átti fyrir löngu að grípa inn í reksturinn sem hafði þanist út á óraunhæfum hraða, í anda banka- sýslunnar fyrir rúmum tíu árum. Samgöngustofnun sinnti ekki lög- bundinni og sjálfsagðri eftirlits- skyldu, þó svo að WOW Air hefði þanist út og lágmarkstryggingarfé ekki verið til staðar til að tryggja áreiðanleika og rekstrarumhverfi flugfélagsins. Afleiðingarnar eru að þúsundir flugfarþega hafa verið strandaglópar víðsvegar um heiminn, sem hefur valdið ómældum óþægind- um og sársauka og mun hafa slæm áhrif á ásýnd Íslands. Undanfarin ár hefur Samgöngu- stofa ítrekað brotið lögbundnar eft- irlitsskyldur sínar, slíkt hið sama endurspeglast um alla stjórnsýsluna. Engu að síður bera stjórnvöld höfuðábyrgð og geta ekki fríað sig af þeim eftirmálum og harmleik sem fall flugfélagsins á eftir að hafa á íslenskt efnahagslíf. Margfeldisáhrif munu vinda hratt upp á sig og atvinnuhjólið mun stöðvast á ógnarhraða, sérstaklega á húsnæð- ismarkaði og í ferða- þjónustu. Verðbólga og gengissig mun aukast og verða þess valdandi að fasteigna- og leiguverð getur ekki annað en sigið. Framangreint ástand hefur legið í loftinu lengi og verið óumflýjanlegt í ljósi þess hversu óá- byrg stjórnsýslan er, ásamt að þús- undir Íslendinga spiluðu með, þó svo að engin innistæða sé fyrir óraun- hæfu háttalagi. Fall flugfélagsins er óþarfaviðbót á efnahagsþrenging- arnar og ferðamannastraum sem hefði mátt afstýra með öðrum hætti til að milda afleiðingar. Eflaust kemur það lágtekjufólki vel að efnahagslífið kólni og er jafnvel réttlætismál fyrir þá sem eiga ekki neitt að fasteignaverð lækki ásamt leiguverði, sem blés út með óraun- hæfum hætti vegna græðgi og óhæfuverka stjórnvalda. Hið sama verður ekki sagt um vafasama fast- eignauppbyggingu félagslega húsnæðiskerfisins (Fasteignarfélagið Bjarg), sem mun ekki geta lækka verð að þessu sinni, og hefur ítrekað verið varað við því og rökstutt, þó svo að fasteignarverð lækkaði á almenn- um markaði. Hver einasta þjóð getur náð upp hagvexti með óvitrænum mælingum og talið sér trú um að um „góðæri“ sé að ræða, ef það er nóg að skrúfa upp fasteignaverð með því að ástunda fasteignauppbyggingu sem stenst enga skoðun og er drifin áfram í bull- andi þenslu og skuldasöfnun. Íslendingar hlupu frá þúsunda milljarða skuldum, sem voru afskrif- aðar með einum og öðrum hætti vegna óábyrgrar stjórn- og banka- sýslu, og var allt regluverk hunsað. Hver vindhaninn af öðrum við Aust- urvöll trúir því og réttlætir að stjórn- völd hafi unnið afrek með því að vinna sig svona hratt og fljótt upp úr bankahruninu og kosið að skauta fram hjá ljótum staðreyndum. Stjórn- völd þurfa að gera sér grein fyrir að ytri og hagstæðar aðstæður verða ekki alltaf til staðar þegar illa fer. Þeim þarf einnig að verða ljóst að það geta ekki allir ástundað sjálftöku at- hugasemdalaust til að mylja undir eigin hag. Þúsundir eigi enn um sárt að binda eftir svokallaða 2007 uppsveiflu, eða „góðærið“, sem var ekkert annað en rányrkja, sem þjóðinni er fyrirmunað að draga lærdóm af, ásamt óraun- hæfu skuldaruppgjöri og afleiðingum þess. Íslendingar verðskulduðu fylli- lega að Bretar settu hryðjuverkalög á íslenska þjóð þar sem bankasýslan viðhafði glæpsamlega tilburði og við- skiptahætti í skjóli stjórnvalda, þar sem breskum almenningi stóð ógn af rányrkju landans. Landsmenn þurfa einnig að átta sig á að þjóðin býr ekki við eðlilegt rétt- arríki, uppgjör hrunsins ber glöggt dæmi um svívirðilega réttarsýslu sem þrífst aðeins í gerspilltum ríkjum. Stjórnvöldum ber fyrst og fremst að skapa umgjörð fyrir efnahagslegan stöðugleika og sjá til þess að eðlilegu eftirlitshlutverki sé fylgt eftir til þess að hér verði ekki óstöðugleiki og sveiflur. WOW air er gott dæmi um hið gagnstæða, og er í anda þess þeg- ar bankarnir þöndust út með óábyrg- um hætti. Kjaraviðræður sem engin inni- stæða er fyrir ber engu að síður að sækja af fullri hörku til að leiðrétta launamisrétti í ljósi svívirðilegrar sjálftöku alþingismanna síðustu þrjú ár. Verkafólk á ekki að borga fyrir óraunhæfa efnahagsstjórn og sjálf- töku útvalinnar elítu. Seðlabanka- stjóri hefur opinberað hversu veru- leikafirrtur hann er og léleg fyrir- mynd með óábyrgum ummælum sínum að hann eigi að fá sambæri- legar kjarabætur, þar sem kjararáð hefur ekki enn úthlutað honum launahækkun. Á sama tíma telur hann ekkert svigrúm til launahækk- ana á almennum vinnumarkaði. Eðlilegur fasteignamarkaður og atvinnuuppbygging mun aldrei geta þrifist með núverandi gjaldmiðli og óraunhæfri verðtryggingu ásamt óá- byrgum framkvæmdum í bullandi þenslu. Fyrir þá sem minna mega sín að ætla sér að eignast húsnæði má helst líkja við rússneska rúllettu. Það er ekki boðlegt að stjórnvöld hafi sjaldnast annað fram að færa en að bera fyrir sig innantómt hjal og yf- irklór að þetta og þetta sé litið graf- alvarlegum augum, og hugur þeirra sé hjá þeim sem eiga um sárt að binda. Að þessu sinni hjá starfsfólki WOW air. WOW air er aðeins forsmekkurinn Eftir Vilhelm Jónsson » Verkafólk á ekki aðborga fyrir óraun- hæfa efnahagsstjórn og sjálftöku útvalinnar elítu. Vilhelm Jónsson Höfundur er fjárfestir. Guðmundur Ingi Kristinsson alþingis- maður er góður bar- áttumaður öryrkja og þeirra sem halloka fara í þjóðfélaginu. Ég hlusta á hann með at- hygli og er oftast sam- mála honum. Í grein sem hann ritar í Morg- unblaðið í gær 2. apríl „Búsetuskerðingar og króna á móti krónu“ eru því gerðir skórnir að ég fari með rangt mál varðandi tillögu um að hefja afnám krónu á móti krónu- skerðinga. Það eru fleiri en Guðmundur Ingi sem hafa verið með þennan málflutn- ing og sagt mig fara með rangt mál. Hér kemur bókunin sem lögð var fram á fundi samráðshóps um breytta framfærslu almannatrygginga þar sem Guðmundur Ingi og formaður ÖBI fjölluðu um málið með okkur. „Bókun samráðshóps um breytt framfærslukerfi almannatrygginga. Lögð fram á fundi með fulltrúum ÖBÍ og Guðmundi Inga. Samkvæmt skipunarbréfi félags- og jafnréttismálaráðherra er hlut- verk samráðshóps um breytt fram- færslukerfi almannatrygginga að koma með tillögur að nýju greiðslukerfi sem styðji við markmið starfsget- umats. Þá segir að nýju kerfi sé ætlað að tryggja hvata til atvinnuþátttöku þar sem aukin áhersla sé lögð á snemmtæka íhlut- un, þverfaglega nálgun og samfellu í framfærslu. Í starfi sínu hefur sam- ráðshópurinn kynnt sér gildandi almannatrygg- ingakerfi og fjallað um ágalla sem mikilvægt er talið að bæta úr. Telur hópurinn mik- ilvægt að skapa sátt um einföldun kerfisins og að tryggja framfærslu fólks með skerta starfsgetu og efla til samfélagsþátttöku. Í vinnu samráðshópsins hefur það komið fram að gert sé ráð fyrir því að lagt verði fram frumvarp til laga um starfsendurhæfingu og greiðslur vegna skertrar starfsgetu á vorþingi 2019 og að þar verði lagt til að frum- varpið öðlist gildi 1. janúar 2020. Þykir ljóst að undirbúningur vegna nýs starfsgetumats og framfærslukerfis sem því tengist muni taka talsverðan tíma enda um flókið og viðamikið verkefni að ræða sem mun krefjast samvinnu og sameiginlegs átaks margra aðila. Samkvæmt fjárlögum ársins 2019 verður 2.900 m.kr. bætt við þann málaflokk sem hér um ræðir. Sam- ráðshópurinn telur mjög áríðandi að þessum fjármunum verði vel varið og að ákvarðanir um ráðstöfun þeirra verði teknar með það í huga að þær styðji við nýtt framfærslukerfi al- mannatrygginga vegna fólks með skerta starfsgetu. Með framangreint í huga vill sam- ráðshópurinn beina því til ríkisstjórn- ar Íslands að á árinu 2019 verði svo- kölluð „króna á móti krónu“-skerðing sérstakrar uppbótar vegna fram- færslu skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/ 2007, um félagslega aðstoð, afnumin. Gera má ráð fyrir því að í breyttu framfærslukerfi verði þessi bótaflokk- ur afnuminn með öllu og sameinaður öðrum bótaflokkum, líkt og gert var í tilfelli ellilífeyrisþega í ársbyrjun 2017. Fyrsta skref í þá átt væri að leggja til breytingu þess efnis að í stað þess að miða útreikning á fjárhæð uppbótar- innar við 100% af tekjum lífeyrisþega verði miðað við 50% af tekjum þeirra lífeyrisþega sem ekki fá greidda heimilisuppbót skv. 8. gr. laganna og 65% af tekjum þeirra lífeyrisþega sem búa einir og fá greidda heimilis- uppbót. Breytingin yrði afturvirk frá 1. janúar 2019 en áætlaður kostnaður við breytinguna er um 1,4 ma.kr. Í annan stað vill hópurinn leggja til að sú breyting verði gerð á 16. gr. laga nr. 100/2007, um almannatrygg- ingar, að þegar um atvinnutekjur er að ræða verði unnt að miða við samtímaupplýsingar. Kæmi sú regla í stað þess að reikna bætur almanna- trygginga út frá heildartekjum ársins og greiða bætur hvers mánaðar í hlutfalli við heildartekjurnar. Fram hefur komið að það fyrirkomulag þykir í mörgum tilfellum vera ósann- gjarnt og hefur oft leitt til þess að skuld hefur myndast við uppgjör Tryggingastofnunar þegar end- anlegar tekjur ársins liggja fyrir. Er áætlaður kostnaður við breytinguna um 400 m.kr. Loks er sú tillaga lögð fram hér að þeim 1.100 m.kr. sem eftir standa verði varið til að gera breytingar á bótakerfi almannatrygginga á árinu 2019 með það að leiðarljósi að breyt- ingarnar verði hluti af nýju heild- stæðu framfærslukerfi sem gert er ráð fyrir að taki gildi 1. janúar 2019. Eins og fram kemur í bókuninni átti líka að taka upp samtímaupplýs- ingar þegar um atvinnutekjur er að ræða og einstaklingur verður öryrki snögglega en nú er það svo að það getur tekið einstaklinga marga mán- uði að fá lífeyri þegar tekjur aftur í tímann eru yfir viðmiðunarmörkum og er líka afar ósanngjörn regla. Þessi breyting hefði haft það í för með sér að einstaklingar sem veikjast snögglega geta fengið örorkubætur strax, án tillits til tekna síðustu mán- uði og án þess að eiga það á hættu að þurfa að endurgreiða Trygg- ingastofnun ofgreiddar bætur. Þessi bókun hugnaðist hvorki Guð- mundi Inga né formanni ÖBÍ, en þeirra tillaga var að nota fjármagnið til að hækka grunnlífeyri en ekki að hefja afnám krónu á móti krónu. En samt er öll umræðan um þá ósann- gjörnu leið sem hefði nú heyrt fortíð- inni til hefðum við samþykkt bókun- ina. Enda höfðu forsætis- og fjár- málaráðherra samþykkt að hefja afnám krónu á móti krónu eins og bókunin gerði ráð fyrir. Ég veit að sannleikurinn er hvorki góð söluvara né vinsæll á samfélags- miðlum. Það hef ég séð af skrifum um þessi mál og meint ósannindi mín. Ég hef enga ástæðu til að segja ósatt í þessu máli frekar en öðrum. Guð- mundur Ingi er ötull baráttumaður öryrkja og ég mun áfram styðja hann í öllum góðum málum, því við erum meira sammála en ósammála. En rétt skal vera rétt. Enn um krónu á móti krónu Eftir Ásmund Friðriksson Ásmundur Friðriksson » Þessi bókun hugnað- ist hvorki Guðmundi Inga né formanni ÖBÍ, en þeirra tillaga var að nota fjármagnið til að hækka grunnlífeyri en ekki að hefja afnám krónu á móti krónu. Höfundur er alþingismaður. Sjókvíaeldisfyrirtæki á Íslandi hafa leitað skjóls hjá Samtökum fyrirtækja í sjávar- útvegi eins og kunnugt er. Það var snjall leikur enda hafa samtökin áratugareynslu af öfl- ugri hagsmunagæslu. Það kom því ekki að óvart þegar fram- kvæmdastjóri SFS barmaði sér, yfir frumvarpi á Alþingi, í blaðagrein sem hún nefnir „Ólíkt haf- ast menn að í skattheimtu“. Með frumvarpinu eru lagðar skyld- ur á eldisfyrirtækin til að greiða hóf- legt auðlindagjald fyrir notkun á sam- eiginlegri auðlind þjóðarinnar. Í blaðagreininni ber framkvæmdastjór- inn saman aðstæður á Íslandi og Nor- egi hvað þetta varðar og segir stjórn- völd ætla „að leggja á atvinnugreinina verulega skatta umfram það sem þekkist í Noregi“. Ekki er þó samanburðurinn nákvæmari en svo að framkvæmdastjóranum láðist að geta þess að í Noregi eru eldisleyfin boðin upp á markaði og þar borguðu fyrirtækin síðastliðið sumar 1,8-3,2 milljónir íslenskra króna fyrir hvert tonn í nýju leyfi. Stórfelldur gjafagjörningur Mikið kapphlaup hefur verið um að eignast heimildir til framleiðslu á frjó- um norskum laxi við strendur Íslands og voru áform um hátt í 200 þúsund tonna framleiðslu. Reyndar takmark- ast leyfilegt magn nú við burð- arþolsmat og áhættumat um erfða- mengun. Það gerir kapphlaupið um leyfin enn harðara. Framkvæmda- stjóri SFS vakti athygli á að af- skaplega hóflegar tillögur um gjald- tökur í fiskeldi væru umfram það sem gerist í Noregi. Þar hefur umframeft- irspurn eftir takmörkuðum fram- leiðsluleyfum hins vegar verið svarað með því að bjóða upp leyfin. Það er því um gríðarlega fjármuni að ræða þegar eldisleyfin eru farin að nema tugþús- undum tonna. Engin furða er að norsk eldisfyr- irtæki sjái mikil tækifæri í að kaupa upp íslensku sjókvíaeldifyrirtækin þar sem hérlendis er aðeins greitt fyrir pappírinn sem það kostar að gefa út leyfin. Í fréttaflutningi af nýlegum viðskiptum með 42,5% af hlutabréfum í Fiskeldi Austfjarða kemur fram að takist fyrirtækinu að afla 18.000 tonna eldisleyfi til viðbótar skal kaupandinn samkvæmt kaupsamningi greiða selj- endum 3,2 milljarða aukalega ofan á kaupverðið. Samkvæmt þessu virðist 18.000 tonna eldisleyfi vera verðlagt á 7,5 milljarða á Íslandi í viðskiptunum. Þar sem eldisleyfin hér við land eru metin í þessum samningi á um 30% af uppboðsverði leyfa í Noregi er um stórfelldan gjafagerning af hálfu hins opinbera að ræða. Þá virðist það ekki heldur gera framkvæmdastjóranum til hæfis að með frumvarpi ráðherra er sú breyt- ing gerð að útgefin eldisleyfi gilda ótímabundið og eru því stofn- unarháttur að óbeinum eignarrétti fyrirtækjanna að takmarkaðri auðlind sjávarins til laxeldis. Leyfilegt hér – bannað í Noregi Það er rétt að taka undir með fram- kvæmastjóra SFS að betur færi á að íslensk stjórnvöld myndu hafast líkt að og Norðmenn á sumum sviðum hvað fiskeldi varðar. Margt gera Norðmenn vel, en annað er miður. Þeir banna til dæmis harðlega inn- flutning eða eldi á öðrum laxastofnum en norskum stofnum í Noregi. Í byrj- un síðasta árs synjaði norski umhverf- isráðherrann alfarið beiðni um inn- flutning á skoskum hrognum til kynbóta á norska eldislaxinum. Rök umhverfisráðherrans voru þau að blöndun við skoska laxastofna myndi veikja norska villta laxinn sem hann sagði standa veikt fyrir vegna nei- kvæðra umhverfisáhrifa frá norsku laxeldi. Hér á landi má hins vegar hvergi minnast á þá áhættu sem tekin er með eldi á frjóum norskum laxi í netpokum í sjó þegar frumvarp er lagt fram til breytinga á lögum um fiskeldi. Það er einnig sorglegt til þess að vita að íslenska umhverfisráðuneytið hefur verið utan þjónustusvæðis und- anfarin ár á sama tíma og verið er að stórauka þessa ógn við villta laxa- stofna. Í lok greinar sinnar biðlar fram- kvæmdastjórinn til íslenskra stjórn- valda að leyfa atvinnugreininni (lesist norskum stórfyrirtækjum sem eiga allt fiskeldi á Íslandi) „að taka nokkra andardrætti við upphaf æviskeiðs áður en verulegar álögur er lagðar á hana“. Víst er að Norðmenn eru lafmóðir að komast yfir sem mestar ókeypis fram- leiðsluheimildir í sjó við Ísland. Við þá iðju þurfa þeir ekki súrefnisgjöf frá ís- lenskum stjórnvöldum. Ólíkt hafast menn að Eftir Jón Helga Björnsson » Í Noregi eru eldis- leyfin boðin upp á markaði og þar borguðu fyrirtækin sl. sumar 1,8- 3,2 milljónir íslenskra króna fyrir hvert tonn í nýju leyfi. Jón Helgi Björnsson Höfundur er formaður Landssambands veiðifélaga. jonhelgib@outlook.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.