Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 22

Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 ✝ Jóhann Þór-lindsson fædd- ist í Reykjavík 13. júlí 1967. Hann lést á heimili sínu 16. mars 2019. Foreldrar hans eru Þórlindur Jó- hannsson, f. 19 september 1945, og Jóhanna Ander- sen Valdimars- dóttir, f. 29 mars 1946. Þau eru búsett í Kópa- vogi. Systkini Jóhanns eru Kol- brún, f. 23 apríl 1965, Hilmar Örn, f. 8. maí 1974, og Þór- hildur Eva, f. 24. febrúar 1981. dóttur 17. júní 2017. Hún á fjögur börn frá fyrra sambandi. Þau eru Tinna Ósk Kristjáns- dóttir, f. 16. febrúar 1991, barn hennar er Kristrún Elna Tinnu- dóttir, f. 15. október 2012, Vil- borg Pála Kristjánsdóttir, f. 31. júlí 1998, Halldór Breki Krist- jánsson, f. 25. júlí 2001, og Kristján Breki Kristjánsson, f. 25. júlí 2001. Jóhann ólst upp í Keflavík og gekk þar í skóla. Hann fór ung- ur til sjós, aðeins 15 ára gamall réði hann sig á Vatnsnesið frá Keflavík. Hann vann ýmis störf um ævina en lengst af stundaði hann sjómennsku ásamt því að keyra flutningabíla, m.a. hjá Eimskip og Fönn og nú síðast hjá Silfra þar sem hann vann til dánardags. Útför Jóhanns fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 3. apríl 2019, klukkan 15. Sambýliskona Jó- hanns var Gunn- hildur Ása Sig- urðardóttir, f. 26. apríl 1962. Barn þeirra er Þór- lindur, f. 21. októ- ber 1999. Þau slitu samvistum 2001. Fyrri eiginkona Jó- hanns var Biljana Kosanovic, f. í Serbíu 28. maí 1980. Barn þeirra er Valdimar Tómas Nikola, f. 18. apríl 2008. Þau skildu 2011. Jóhann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni Halldóru Guðrúnu Víglunds- Með örfáum orðum langar mig að minnast Jóa bróður míns sem lést skyndilega aðfaranótt laugardagsins 16. mars. Lát hans bar mjög brátt að og maður er varla búin að átta sig á að hann sé farinn. Mig verkjar í hjartað við tilhugsunina um að eiga aldrei eftir að sjá hann framar og að systkinakeðjan sé rofin. Þær eru svo margar minning- arnar sem ég á um okkur og koma upp í hugann því lengi vel vorum við Jói bara tvö áður en við eignuðumst yngri systkini okkar. Samband okkar hafði minnkað síðustu árin en var allt- af gott þegar við hittumst, sem var bara allt of sjaldan. Það hafði staðið lengi til hjá mér að bæta úr því, elda humarsúpuna mína sem Jói elskaði og hafa systkina- kvöld og var ég byrjuð að undir- búa það því súpugrunnurinn er klár í frystinum. Maður stendur alltaf í þeirri trú að maður hafi nægan tíma fram undan fyrir allt slíkt, en svo er alls ekki, eins og við erum svo rækilega minnt á núna. Húmoristi, stríðinn, dulur, einfari, örlátur, greiðvikinn, góð- ur kokkur og frábær pabbi eru allt orð sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til Jóa, en auðvit- að var hann ekki gallalaus frekar en neitt okkar og hann átti ekki alltaf auðvelt líf. Hann átti það til að halda okkur fjölskyldunni frá lífi sínu og oftar en ekki þeg- ar eitthvað var að gerast hjá honum, gott eða slæmt, þá frétt- um við það frá einhverjum úti í bæ. Hann átti tvo fallega syni sem nú ungir að árum sjá á eftir góð- um pabba sem elskaði þá meira en allt og var alltaf duglegur að sinna þeim, en þeir eru sem bet- ur fer heppnir að eiga báðir frá- bærar mæður sem munu hjálpa þeim að takast á við þennan mikla missi. Jói var mikill afa- strákur þegar hann var lítill og hélt mikið upp á afa sinn sem hann var skírður í höfuðið á og elti hann á röndum. Það hafa ábyggilega orðið fagnaðarfundir hjá þeim og geta þeir nú tekið upp þráðinn frá því sem áður var og rúntað um bryggjurnar og skoðað bátana. Öllum ástvinum Jóa bróður sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Elsku Jói minn, þín verður sárt saknað, hvíl í friði. Þín Kolla systir. Þú heldur heim á leið. Dagur fyrir bí, kvöldar á ný. Og þegar sólin sest, þú til hvílu leggst. Og við kveðjumst nú. Þinn tími runninn er á enda hér. Nú ferðu á nýjan stað. Finnur friðinn þar. Og þó það reynist sárt að skilja við þig hér, ég þakka vil þér. Ljúflingslundina, Gleðistundirnar. Leggur upp í ferðalag … (Ásgeir Aðalsteinsson) Kolbrún Þórlindsdóttir. Elsku Jói minn er farinn, stóri bróðir minn. Ég er buguð af sorg og á erfitt með að sætta mig við að hann sé farinn og komi aldrei aftur. Það er komið skarð í fjölskyld- una okkar og það vantar Jóa. Jói var 14 árum eldri en ég, en samt áttum við svo gott sam- band. Hann var alveg einstak- lega örlátur alltaf við mig þegar hann gat, alltaf mættur fyrstur þegar ég þurfti hjálp við að flytja, setja upp hillur eða bara hvað sem var. Hann var alltaf til staðar þegar ég þurfti á honum að halda, sama hvað. Það var yfirleitt stutt í grínið hjá honum og hann tók ekkert of alvarlega. Hann var frábær stóri bróðir og mér fannst hann alltaf geta allt. Þegar ég hugsa um Jóa hugsa ég fyrst og fremst til þess hve frábær pabbi hann var, og hversu mikið hann elskaði strák- ana sína og var alltaf svo stoltur af þeim. Ég á svo margar skemmti- legar og yndislegar minningar um Jóa bróður minn og stund- irnar okkar saman sem ég mun varðveita alla mína ævi. Ég leit upp til þín, ég elskaði þig og ég sakna þín alla daga. Okkur er víst ætlaður einhver ákveðinn tími hér á jörðinni og því miður var þinn tími, Jói minn, alltof stuttur. Ég á erfitt með að sætta mig við að ég sjái þig aldrei aftur og finnst lífið grimmt núna en reyni að hugga mig við að þú sért kominn á góð- an stað og umkringdur ást og umhyggju. Ég hugsa um þig alla daga og nætur og um hve sárt ég sakna þín það er sem frost í hjarta mínu sem þiðnar ei þó að bálið dvín. Af hverju það gerðist veit ég ei lengur vil bara hafa þig hérna hjá mér ég sakna þín alltaf meira og meira og vil segja þér hvernig það er. Mér finnst að heimurinn meg’ekki taka meira af þér frá mér að alltaf þú vitir hvar sem þú verður að partur af mér verður alltaf hjá þér. Ég vil líka minna þig á hvað ég meina um hvernig mér líður með þig að alltaf já alltaf þú eigir að vita að ég elska þig meira en ég skil. Hvíldu í friði elsku bróðir. Þín litla systir, Þórhildur Eva. Elsku bróðir minn er látinn. Með hjarta í milljón bútum langar mig að ávarpa þig. Þú varst stóri bróðir minn. Þú varst fyrirmyndin mín þrátt fyr- ir að líf þitt hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Þú varst einfari að mörgu leyti og virti ég það alveg við þig. En í hvert einasta skipti þegar ég þurfti á þér að halda þá varstu mættur á 0,1 sekúndu. Þannig eru góðir stór- ir bræður og það varstu svo sannarlega. Núna á ég engan bróður. Núna eiga systur okkar bara einn bróður. Þetta passar ekki alveg. Þitt skarð verður aldrei fyllt. Það ættu reyndar allir að eiga einn Jóa sem bróður. Þvílík forréttindi. Ég mun halda í allar okkar minningar þangað til að ég hitti þig aftur, en það gerist ekki alveg strax. Hinkraðu vin- ur minn. Ég mun upplýsa þig um gengi KR og Man. Utd. Ég sagði þér það aldrei að þegar við bjuggum í Dúfnahól- um 10 (2 reyndar) og þú varst á sjónum, þá smyglaði ég mér oft í þitt rúm og svaf þar. Ég efast reyndar ekkert um það að þú hafir vitað það. Aldrei sagðir þú neitt. Ekki einu sinni þegar ég var að spila plöturnar þínar og gekk ekki vel frá þeim. Aldrei sagðir þú neitt. Sem seg- ir mér svo mikið í dag. Og við sem vorum að plana aðra Manchester-ferð, þá gerist þetta. Í stað þess að fara í aðra ferð þá mun ég halda fast í minningar úr síðustu ferð. Ég gæti haldið endalaust áfram að tala um okkar ljúfu minningar en það myndi taka mig ansi langan tíma. Ég mun hafa auga með Þórlindi og Nikola fyrir þig. Það er ekki eins og ég þurfi að hafa mikið fyrir því þú varst meiriháttar pabbi og þeir báðir vita það mjög vel. Samt sem áð- ur þá mun ég gera það, fyrir þig. Hvíl í friði, elsku bróðir minn. Þinn bróðir, Hilmar Þórlindsson. „Mjög erum tregt tungu að hræra“ kvað Egill Skalla-Gríms- son er hann hóf Sonartorrek. Eins er mér innanbrjósts nú er ég sest niður við að skrifa nokk- ur orð í minningu Jóhanns Þór- lindssonar, eða Jóa eins og flest- ir sem honum kynntust kölluðu hann, sem er nú farinn í sína síð- ustu ferð. Fallið er í valinn eitthvert það blíðasta ljós sem ég hef kynnst um mína daga. Kynni okkar voru ekki löng en þeim mun betri, hann réðst til okkar hjá Silfra ehf. fyrir tæpu ári í trukkavinnu. Ljúfmennskan sem einkenndi hann ásamt húmornum smitaði og var Jói allan tímann hrókur alls fagnaðar. Læddi inn mögn- uðum athugasemdum og skamm- aði mann svona létt. Umgengni hans og hirðumennska verkaði leiðandi á okkur hina og svona mætti lengi telja. Stundvísi og reglusemi einkenndi alla hans framkomu. Eflaust verða margir til að gera ævihlaupi hans fyllri skil, en okkur vinnufélaga hans lang- aði að koma þessari kveðju áleið- is. Jói var stórmenni á sinn hóg- væra hátt. Megi góður Guð taka hann sér við hlið og veita honum þá vegsemd sem hann ávann sér hér meðal okkar meðbræðra sinna og systra, í starfi og leik. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Far þú í friði. Gunnar Þór. Jóhann Þórlindsson ✝ SvanhvítMagnúsdóttir fæddist í Hafnar- firði 16. febrúar 1941. Hún lést á Landspítalanum 26. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Magnús I.S. Guðmundsson, f. 23. ágúst 1909, d. 17. nóvember 1996, og Anna Margrét Elíasdóttir, f. 6. desember 1913, d. 12. febrúar 2010. Systkini Svanhvítar eru Ragnar S., f. 11. desember Eðvald, f. 9. mars 1963, eigin- kona Jónína Kristjánsdóttir, f. 29. ágúst 1963, búsett í Garða- bæ. Börn þeirra eru Svanhvít Helga, f. 5. júlí 1992, sambýlis- maður hennar er Steinn Örvar Bjarnarson, f. 25. mars 1991; Alexander Eðvald, f. 13. desem- ber 2000. 2) Halldór, f. 11. desember 1968, eiginkona Ingi- björg Herta Magnúsdóttir, f. 8. maí 1965, búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru Magnús Eðvald, f. 26. júní 1996, og Magnea Marín, f. 24. september 1998. Svanhvít gekk í ljósmæðra- skólann og starfaði lengst af sem ljósmóðir, á fæðingarheim- ilinu við Eiríksgötu og á fæð- ingardeild Landspítalans. Útför Svanhvítar fer fram frá Garðakirkju í dag, 3. apríl 2019, klukkan 15. 1936, og Elín G., f. 23. apríl 1953. Svanhvít giftist 12. október 1963 Kristjáni Eðvald Halldórssyni, f. 24. febrúar 1938, d. 9. mars 2008. For- eldrar hans voru Halldór Kr. Krist- jánsson, f. 26. febr- úar 1915, d. 25. janúar 1988, og Himinbjörg Guðmundsdóttir Waage, f. 27. mars 1915, d. 29. mars 2003. Synir Svanhvítar og Kristjáns eru: 1) Magnús „Þetta er tilvonandi tengda- dóttir þín,“ svaraði Maggi sonur þinn þér, spurður hver þessi unga stúlka hafi verið honum við hlið einn októberdag árið 1982. Til mikillar gæfu reyndist hann sannspár og Svana tók við tengdamóðurtitlinum ung að árum. Þannig spannar samvera okk- ar tengdamömmu 37 ár, en mikið óska ég þess innilega að árin hefðu getað orðið fleiri. Þau Eddi, elskulegur tengdapabbi heitinn, tóku mér 19 ára stelp- unni svo vel og ég naut þess að eiga með þeim samleið á einum bestu árunum í lífi þeirra. Margt gott og ljúft má rifja upp, en upp úr stendur tíminn eftir fæðingu fyrsta barns okkar Magga og barnabarns þeirra hjóna, nöfnunnar Svanhvítar Helgu. Þar sem Svana var ljós- móðir og mér svo kær kom aldrei annað til greina en að óska eftir að hún tæki á móti barnabarni sínu. Á þessari stærstu stund lífs míns upplifði ég frá tengdamóður minni þá allra mestu og bestu umhyggju, kærleika, fag- mennsku og tillitssemi. Skilyrðislaus ást Svönu og Edda í garð Svanhvítar Helgu snerti dýpstu hjartastrengi. Þau spiluðu svo dásamlegt ömmu- og afahlutverk á fyrstu æviárum hennar og búum við öll að svo yndislegum minningum um þennan frábæra tíma. Ég kýs að staldra hér við minninguna um besta tímann okkar og þakka þér samfylgdina, elsku Svana mín. Ég er sannfærð um að nú séuð þið Eddi sameinuð á ný, stórglæsileg hjón að rifja upp ykkar frábæru spor saman á dansgólfinu. Þín tengdadóttir Jónína (Jolla). Elsku amma mín, hér sit ég og reyni að koma tilfinningum mín- um í orð en á í erfiðleikum með það. Mér finnst þetta svo óraun- verulegt, eins og þetta sé bara misskilningur, þú hafir í raun ekki kvatt okkur. Ég hugsa til næstu jóla, þá mun vanta þig við endann á borðinu, en ég trúi því að þú verðir með okkur í anda. Ég minnist þess þegar þú sagðir mér frá því þegar þú tókst á móti mér þegar ég kom í heiminn og þú hafir sagt við mömmu og pabba „þetta verður ákveðin stúlka“. Mér þykir svo vænt um minningarnar sem við eigum saman og á þessum erfiða tíma finn ég huggun í því að ég veit að þú ert komin í fangið á afa og að þú knúsir hann frá mér. Hvíldu í friði, ég elska þig. Magnea Marín. Elsku besta amma mín. Ég á erfitt með að sætta mig við það að þú sért farin frá okkur og ég held einfaldlega að ég sé bara ekki al- veg búinn að fatta það. Þú varst svo miklu meira en bara amma mín, þú varst minn langbesti vinur. Ég gat alltaf komið til þín eða hringt í þig, sama hvað var að. Jafnvel þótt það væri ekkert að var alltaf svo gott að heyra í þér og kíkja í kaffi og spjalla um allt milli himins og jarðar. Þú munt ávallt eiga stað í hjarta mér og ég mun alltaf elska þig. Þegar þú sérð hann afa þá máttu endilega skila kveðju og mér þykir gott að hugsa um ykk- ur hvílast saman í friði á himnum. Magnús Eðvald. Hún Svana frænka mín er látin. Hún hefur á undanförnum árum átt við mikið heilsuleysi að stríða. Í æsku fékk hún berkla í bakið og þurfti að liggja hreyf- ingarlaus í gifsi mánuðum saman. Hún tók því með ótrúlegu jafn- aðargeði. Þetta hlýtur að hafa verið mikil lífsreynsla fyrir lítið barn og hefur eflaust haft áhrif á heilsu hennar síðar á ævinni og ekki síður mótað skapferli hennar. Hún bar sig ætíð vel þótt oft væri ástæða til annars hvað heilsuna varðaði. Við Svana erum systradætur. Mæður okkar voru alla tíð mjög nánar, stutt á milli heimila þeirra í Hafnarfirði og mikill vinskapur. Fyrir stuttu sátum við frænkurn- ar og skoðuðum gömul albúm og dáðumst að litríkum sumarkjól- unum og þjóðbúningum sem mæður okkar saumuðu á okkur, sól á öllum myndum. Við minnt- umst þess einnig að meðan Svana lá í gifsinu kom bæjarhjúkrunar- konan daglega til hennar og viku- lega heimilislæknirinn. Okkur Svönu, hún fimm ára og ég ári yngri, var kennt að þéra til að geta ávarpað þau (og prestinn) af þeirri virðingu sem þeim bar. Nokkrum árum síðar flutti öldr- uð skólastýra mæðra okkar vestan úr Dölum í nágrennið. Þá rifjuðu þær upp með okkur þéringarnar, enginn afsláttur gefinn. Saman breiddum við Svana saltfisk á reitum þar sem Norðurbærinn stendur nú, þá um tíu ára gamlar, og síðar unnum við mörg sumur garðvinnu í Hellisgerði, sælureit í miðjum bænum. Skátastarfið átti hug okkar allan á unglingsárunum og fórum við á alþjóðlegt skátamót í Windsor Park í Englandi árið 1957 ásamt stórum hópi íslenskra skáta. Svana lék í mörgum upp- færslum Leikfélags Hafnar- fjarðar. Eitt af fyrstu hlutverkum hennar var nornin í barnaleikrit- inu Hans og Gréta. Hún lék einn- ig í kvikmyndum, m.a. í myndum Hrafns Gunnlaugssonar. Svana sat lengi í stjórn leikfélagsins og kunni yngra fólkið þar vel að meta framlag hennar og hefur haldið tryggð við hana allar götur síðan. Leikverk sem félagið setti upp á þessum tíma voru tvisvar valin á erlendar listahátíðir áhugamannaleikhúsa. Svana lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla og síðan ljós- mæðranámi þegar hún var rúm- lega tvítug. Hún hefur tekið á móti miklum fjölda barna, m.a. á fæðingardeild Landspítalans. Hún fylgdist með mörgum þeirra og gladdist yfir góðu gengi þeirra í lífinu. Meðan hún var í námi kynntist hún Kristjáni Eðvald Halldórssyni, sem síðar varð eiginmaður hennar. Þau eignuð- ust synina Magnús og Halldór með nokkurra ára millibili. Ég eignaðist drengi á sama tíma. Samskipti okkar Svönu með drengina okkar voru mikil á þess- um árum. Þau voru samstillt hjón, Svana og Kristján, nutu þess að fara í veiðiferðir og ferð- uðust víða bæði innan lands og utan. Bæði áttu þau ættir að rekja vestur í Dali og þangað lá leiðin hvert sumar. Eftir að Kristján lést árið 2008 eftir erfið veikindi fækkaði ferðalögunum en hún fór nokkrar ferðir til Bandaríkjanna og naut þess að hafa barnabörnin sín að ferðafélögum. Við fjölskyldan kveðjum Svönu með þakklæti fyrir samfylgdina og sendum öllu hennar fólki inni- legar samúðarkveðjur. Pétrún Pétursdóttir. Svanhvít Magnúsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma, ég er þakk- lát fyrir þann tíma sem við fengum saman og allar minningarnar. Miðvikudagar voru okk- ar dagar; þú sóttir mig á leikskólann og við eyddum deginum saman. Frá þeim dögum á ég margar góðar minningar, þá stendur helst upp úr hefðin okkar að elda saman kjúkling með karrísósu og stafasúpu. Þessi matur mun alltaf minna mig á þig. Takk fyrir allar húsbílaferðirnar, gaman að hafa ferðast saman og þær minningar þykir mér mjög vænt um. Hvíldu í friði, ég elska þig. Svanhvít Helga. Mér fannst alltaf gaman þegar við fórum saman í leikhús, sérstaklega þegar við fórum á Unglinginn og þú hlóst svo mikið. Það var alltaf gaman að fá þig í heimsókn til okkar, í jóla- boð og í Eurovision-partí. Hvíldu í friði. Alexander Eðvald.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.