Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 27

Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 27
dag bú á Litla-Bakka, með aðstoð af- komenda, þó að þau séu nú búsett á Egilsstöðum. Gunnar sneri aftur til kennslustarfa árið 1986, nú við Brúarásskóla, og kenndi þar til sjö- tugs. Frá ungaaldri stundaði hann refa- og hreindýraveiðar og vann sem skytta í mörgum sveitum á Héraði og víðar. Hann var jafnframt leið- sögumaður hreindýraveiðimanna um áratugaskeið, langt fram á ní- ræðisaldur. Gunnar hefur alla tíð sinnt félags- störfum af krafti. Hann sat í hrepps- nefnd Tunguhrepps í 25 ár og var þar af oddviti í 19 ár. Á þeim tíma gegndi hann formennsku Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í eitt ár og sat í ýmsum stjórnum, s.s. sjúkra- húss, heilsugæslu og dvalarheimilis aldraðra á Egilsstöðum og félags- heimilisins Valaskjálfar. Þá sat hann um skeið í stjórn kjördæmis- sambands framsóknarmanna á Austurlandi. Gunnar var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Múla Gunnar Aðólf Guttormsson Kristín Jónsdóttir húsfreyja í Gilsárvallahjáleigu Sigfús Pálsson bóndi í Gilsárvallahjáleigu í Borgarfirði eystra Solveig Sigfúsdóttir húsfreyja á Hrollaugsstöðum Magnús Einarsson bóndi á Hrollaugssstöðum í Hjaltastaðaþinghá Aðalborg Jónsdóttir húsfreyja á Bóndastöðum Einar Rafnsson bóndi og söðlasmiður á Bóndastöðum í Hjaltastaðaþinghá Dagbjört Unnur Guttormsdóttir húsfreyja á Þvottá í Álftafirði Smári Kristinsson tæknifræðingur og einn af stofnendum Rafarnarins Kristinn Magnússon bóndi á Hrollaugs- stöðum Gróa Jónína Kristinsdóttir húsfr. á Ánastöðum í Hjalta­ staðaþinghá og síðar Egilsstöðum Kristinn Kristmundsson (Kiddi vídeófluga) fv. eigandi myndbandaleigu á Egilsstöðum óhanna Magnúsdóttir úsmóðir og saumakona í Svínafelli Jó- hannes Þór Skúla­ son frkvstj. Sam­ taka ferða­ þjón­ ust­ unnar J h Magnús rnason ennari í Rvík Á k Skúli Þór Magn- ússon fv. fram­ halds- skóla­ kennari í Rvík Una Þorkelsdóttir húsfreyja á Vigdísarvöllum Sigurður Sigurðsson bóndi á Vigdísarvöllum í Krýsuvíkursókn Gróa Sigurðardóttir húsfreyja á Ásgrímsstöðum Jónas Jónasson vinnumaður á Héraði og bóndi á Ásgrímsstöðum í Hjaltastaðaþinghá Dagbjört Hallgrímsdóttir vinnukona í Húnaþingi Jónas Jónsson sjómaður í Húnaþingi Úr frændgarði Gunnars A. Guttormssonar Guttormur Sigri Jónasson bóndi í Svínafelli í Hjaltastaðaþinghá Hjónin Gunnar og Svandís 29. des- ember 2018 með Dyrfjöllin í baksýn. árið 1970 og starfar enn í klúbbnum, sem hann hefur oft veitt for- mennsku. Þá sat hann í stjórn Veiði- félags Jökulsár á Dal 2007-2014 svo nokkrar af óteljandi stjórnarsetum hans séu taldar. Söngur er eitt helsta áhugamál Gunnars og hefur hann gegnum tíð- ina sungið í mörgum kórum. Kirkju- kórar á Héraði njóta starfskrafta hans enn í dag en hann hefur auk þess sungið með karlakórum og blönduðum kórum á Austurlandi og setið í stjórnum þeirra. Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Svandís Skúladóttir, f. 29.12. 1938, bóndi. Foreldrar hennar voru hjónin Skúli Sigbjörnsson, 17.10. 1903, d. 3.6. 1970, bóndi á Litla-Bakka í Hróars- tungu, og Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, 27.4. 1905, d. 31.10. 1954, húsfreyja á Litla-Bakka. Börn Gunnars og Svandísar eru: 1) Ingibjörg, f. 8.9. 1958, kennari í Melaskóla, bús. á Seltjarnarnesi. Maki: Óli Jón Hertervig, f. 14.12. 1958, skrifstofustjóri hjá Reykjavík- urborg. Börn: Svandís Rós, f. 3.4. 1980, d. 5.9. 2014, Óli Hákon, f. 28.5. 1986, og Jón Gunnar, f. 30.7. 1994; 2) Jóhann Guttormur, f. 1.10. 1959, sér- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, bús. á Fljótsdalshéraði. Maki: Þor- gerður Sigurðardóttir, f. 24.10. 1961, matráður í Egilsstaðaskóla. Börn: Gunnar Þór, f. 16.7. 1991, Snorri Páll, f. 14.8. 1993, Rúna Dís, f. 14.4. 1997, og Sigurður Dór, f. 27.9. 2001; 3) Skúli Björn, f. 24.3. 1970, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar, bús. á Fljótsdalshéraði. Maki: Elísabet Þorsteinsdóttir, f. 1.11. 1969, fram- reiðslumeistari Klausturkaffis. Börn: Jóhanna Malen, f. 1.2. 1999, og Ragnhildur Elín, f. 13.4. 2001. Systkini Gunnars voru Dagbjört Unnur, f. 12.3. 1925, d. 27.6. 2012, húsfreyja á Þvottá í Álftafirði; Sól- veig, f. 28.5. 1927, d. 7.1. 2012, hús- móðir í Borgarnesi; Aðalborg, f. 6.4. 1933, d. 10.4. 2013, verkakona og skólaliði í Reykjavík. Systkini sam- mæðra voru Magnús Einarsson Árnason, f. 9.6. 1916, d. 3.7. 1975, kennari í Reykjavík; Runólfur Árna- son, f. 30.7. 1918, d. 1.1. 1919; Aðólf Björnsson, f. 28.4. 1923, d. 21.1. 1924. Foreldrar Gunnars voru hjónin Guttormur Sigri Jónasson, f. 12.10. 1896, d. 12.3. 1962, bóndi í Svínafelli, síðar múrari í Reykjavík, og Jóhanna Magnúsdóttir, f. 29.8. 1893, d. 12.4. 1949, húsfreyja í Svínafelli og síðar í Reykjavík. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 Sveinn Hannesson frá Elivogumfæddist í Móbergsseli í Litla-Vatnsskarði, A-Hún. 3. apríl 1889. Foreldrar hans voru hjónin Hannes Kristjánsson, f. 1841, d. 1903, og Þóra Jónsdóttir, f. 1949, d. 1929. Sveinn ólst upp á Gvendarstöðum í Gönguskörðum og Hryggjum í sömu sveit. Þegar Sveinn var 15 ára fluttist hann með móður sinni, sem þá var orðin ekkja, að Elivogum á Langholti í Skagafirði. Þótt Sveinn færi á mis við menntun vegna bágra kjara svalaði hann fróð- leiksþrá sinni með lestri margra góðra bóka. Lagði hann mikla stund á söguleg fræði, las Íslendingasög- urnar margsinnis og var vel að sér í ljóðagerð þjóðarinnar. Sveinn stundaði sveitabúskap alla sína ævi. Fyrst sem fyrirvinna móður sinnar, en síðan sem bóndi á Elivog- um fram til þrítugs og síðan á Sneis og Refsstöðum á Laxárdal. Snemma hneigðist hugur Sveins til ljóðagerðar og varð hann fljótt þjóð- kunnur maður fyrir vísur sínar. Reykvískt bókaforlag gaf út bókina Andstæður árið 1933 með kvæðum eftir hann. Var Sveinn alls ekki ánægður með kvæðavalið í þeirri bók og gaf sjálfur út bókina Nýjar and- stæður árið 1935. Árið 1988 kom síð- an út ljóðasafn Sveins sem sonur hans, Auðunn Bragi, tók saman og nefnist það Andstæður. Um kveð- skap föður síns segir Auðunn: „Stundum blöskra manni reyndar samansúrruð grófyrði hans og skammir, en í öðrum tilvikum hlýtur maður að dást að orðfimi hans og hugmyndaauðgi.“ Sveinn þótti enda níðskældinn um sveitunga sína og galt þess. Eiginkona Sveins var Elín Guð- mundsdóttir, f. 31.10. 1903, d. 19.4. 1958. Börn þeirra voru Auðunn Bragi, f. 1923, d. 2013, kennari og skáld, og Þóra Kristín, f. 1926, d. 1996, sem bjó í Arkansas og Texas. Börn Sveins fyrir hjónaband með Sigríði Önundardóttur voru María, f. 1916, d. 1999, og Þórarinn, f. 1918, d. 2014. Sveinn lést 2. júlí 1945. Merkir Íslendingar Sveinn Hannesson 90 ára Gunnar Guttormsson Hólmfríður Gestsdóttir Jóna Snæbjörnsdóttir Ragna Þorleifsdóttir 85 ára Sigurdís Erla Eiríksdóttir Sigurlaug Helgadóttir 80 ára Erna Sveinbjörnsdóttir Guðbjörg Ásgeirsdóttir Ragnheiður B. Stefánsdóttir 75 ára Eiríkur Jón Ingólfsson Óli Knöttur Ásgeirsson Viðar Bjarnason Þórunn Huld Nielsen 70 ára Auður Þorsteinsdóttir Ágúst Gíslason Ásgeir Arngrímsson Borgar Skarphéðinsson Elín Sigurlaug Guðjónsdóttir Gísli Tómas Ívarsson Grímkell Arnljótsson Guðbjörn Jónsson Jónas Björnsson Margrét Jónsdóttir Stefanía Steinþórsdóttir Viðar Stefánsson Zaide Bujupi Þorbergur Þórhallsson 60 ára Albert Þórðarson Annabella Jósefsd. Csillag Diyaa Eddin Hadid Halldór Auðarson Sigurbjörg H. Baldursdóttir Stefanía Þóra Flosadóttir Svanlaug Aðalsteinsdóttir Þorvaldur Óttar Guðlaugsson 50 ára Björg Aðalheiður Jónsdóttir Eva Gunnlaugsdóttir Hildur Hrólfsdóttir Jaroslaw Marek Kapanke Jónína Kristrún Jónsdóttir Karólína S. Sigurðardóttir Kristmundur Þórarinn Gíslason Marta María Ástbjörnsd. Piotr Ryszard Japelski Snorri Guðjón Bergsson 40 ára Andrzej Sienda Anna Maria Zaleska Arnar Freyr Reynisson Auður Hermannsdóttir Einar Reynisson Eva Símonardóttir Guðrún Indriðadóttir Halldór Már Sigurðsson Helgi Sigursteinn Ólafsson Jean-Pierre F. Lanckman Kolbeinn Hugi Höskuldsson Konráð Jóhann Brynjarsson Kristmann Jónsson Nina Elísabet Slowinska Petra Sæunn Heimisdóttir Rut Berglind Gunnarsdóttir Teresa Niewinska 30 ára Auður Ýr Jóhannsdóttir Ásdís Magnúsdóttir Gunnar Ágúst Gunnarsson Jónína Sigrún Birgisdóttir Marta Magda Nowakowska Petr Manda Sigfús Helgi Kristinsson Þórey Heiðarsdóttir Þórey Ósk Arndal Gunnarsdóttir 40 ára Einar er frá Sig- mundarstöðum í Hálsa- sveit og býr á Hvanneyri. Hann vinnur í Norðuráli. Maki: Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir, f. 1982, leikskólakennari. Börn: Bergdís Ingunn, f. 2012, Reynir Marteinn, f. 2015, Kristófer Gunnar, f. 2017, og Alexandra Kristín, f. 2018. Foreldrar:Reynir Aðal- steinsson, f. 1944, d. 2012, og Jónína Hlíðar, f. 1946. Einar Reynisson 40 ára Helgi er Garðbæ- ingur og byggingarverk- fræðingur á brúardeild hjá Vegagerðinni. Maki: Hjördís Kristins- dóttir, f. 1980, verk- efnastjóri. Dóttir: Kristín Lind, f. 2003. Foreldrar: Ólafur Jó- hannsson, f. 1944, raf- virkjameistari, og Álfheið- ur Ólafsdóttir, f. 1941, hjúkrunarfræðingur. Þau eru búsett í Garðabæ. Helgi Sigur- steinn Ólafsson 30 ára Gunnar er Hafn- firðingur, er að læra hús- gagnasmíði og vinnur við að smíða báta hjá Trefjum. Maki: Svandís Guð- mundsdóttir, f. 1995, verk- efnastjóri í Hvaleyr- arskóla. Systkini: Brynjar Þór, f. 1974, og Ellen Dröfn, f. 1981. Foreldrar: Gunnar Eyj- ólfsson, f. 1950, og Hrefna Guðmundsdóttir, f. 1955, bús. í Hafnarf. Gunnar Ágúst Gunnarsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.