Morgunblaðið - 03.04.2019, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.04.2019, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 Stjörnustríðsmyndin Star Wars: A New Hope frá árinu 1977 í leikstjórn George Lucas verður sýnd á bíó- tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, annað kvöld og föstudagskvöld í Eldborg Hörpu kl. 19.30 öll kvöldin. Sinfóníuhljóm- sveitin, undir stjórn Teds Sperling, sér um lifandi flutning tónlistar. „John Williams hefur samið tón- listina við allar Stjörnustríðsmynd- irnar. Litrík og glæsileg tónlistin á stóran þátt í vinsældum myndanna enda hefur Williams sópað til sín verðlaunum fyrir tónlistina. Alls not- ar hann um 50 stef sem snúa aftur og tengjast ákveðnum persónum eða kringumstæðum, rétt eins og Rich- ard Wagner gerði í óperum sínum meira en 100 árum fyrr,“ segir í til- kynningu frá hljómsveitinni. Rifjað er upp að fyrsta kvikmynd- in í Stjörnustríðskvikmyndasyrp- unni hafi umsvifalaust slegið í gegn þegar hún var frumsýnd 1977 og í kjölfarið hafa verið gerðar sjö mynd- ir til viðbótar. Í aðalhlutverkum í fyrstu myndunum voru Mark Ham- ill, Harrison Ford og Carrie Fisher í hlutverkum Loga geimgengils, Hans Óla og Lilju prinsessu. Samkvæmt upplýsingum frá Sin- fóníuhljómsveit Íslands verður kvik- myndin sýnd með íslenskum texta í Eldborg og er áætlaður sýningar- tími tveir og hálfur klukkutími með hléi. Bent er á að börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd forráða- manna. Stjörnustríðsbíótónleikar Morgunblaðið/Eggert Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skáldsögurnar Rotturnar eftir Ragn- heiði Eyjólfsdóttur og Silfurlykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn hafa verið til- nefndar til Barna- og unglinga- bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs 2019 fyrir Íslands hönd. Þetta var upplýst á alþjóðlegu bóka- messunni í Bologna í gær. Landsbundnar dómnefndir til- nefna samtals 14 verk til verð- launanna í ár, en sameiginleg norræn dómnefnd velur vinningshafa ársins og verða verðlaunin afhent við hátíð- lega athöfn í Stokkhólmi 29. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlauna- gripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur, sem samsvarar tæp- um 6,5 milljónum ísl. kr. Frá Álandseyjum er tilnefnd sögu- bókin På en trollsländas vingar eftir Ann-Christin Waller sem Anni Wik- berg myndskreytti. Frá Danmörku eru tilnefndar teiknimyndasagan Da Mumbo Jumbo blev kæmpestor eftir Jakob Martin Strid og skáldsagan Styrke. Karanagalaksen. Log I eftir Cecilie Eken. Frá Finnlandi eru til- nefndar skáldsagan Breven från Maresi eftir Mariu Turtschaninoff og myndabókin Ruusun matka eftir Ma- riku Maijala. Frá Færeyjum er til- nefnd sögubókin Miljuløtur eftir Rakel Helmsdal sem Kathrina Skarðsá myndskreytti. Frá Græn- landi er tilnefnd myndabókin Tuttu- arannguaq eftir Camillu Sommer sem Pernille Kreutzmann mynd- skreytti. Frá Noregi eru tilnefndar myndabækurnar Alle sammen teller eftir Kristin Roskifte og Det var ikke en busk eftir Eli Hovdenak. Frá sam- íska málsvæðinu er tilnefnd ljóðabók- in Šiellaspeajal eftir Karen Anne Buljo. Frá Svíþjóð eru tilnefndar skáldsögurnar Den förskräckliga historien om Lilla Hon eftir Lenu Oll- mark sem Per Gustavsson mynd- skreytti og Risulven Risulven eftir Ninu Ivarsson. Til útláns í Norræna húsinu Í umsögn íslensku dómnefndar- innar, sem í sitja Anna Þorbjörg Ing- ólfsdóttir, Gísli Skúlason og Dagný Kristjánsdóttir, segir að Rotturnar sé „mjög spennandi vísindaskáldsaga þar sem metnaðarfullir vísindamenn á sviði líftækni hafa sagt skilið við alla siðfræði og virðingu fyrir manninum í raun þótt þeir segist hafa háleit markmið“. Um Silfurlykilinn segir: „Sigrún Eldjárn kastar ungum lesanda út í óskilgreinda tíð eftir hrun siðmenn- ingar þar sem matur og vatn er af skornum skammti og fólk berst mis- kunnarlaust um allt sem getur hjálp- að því til að lifa af. Enn eru til efnis- legar en óvirkar leifar gamallar velmegunar og öll tækniþekking er horfin. Börn í þessum harða heimi eru flökkubörn og vör um sig.“ Barna- og unglingabókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 2013. Markmiðið með verðlaununum er að vekja áhuga á bókmenntum og tungumálum grann- þjóðanna sem og menningarlegri samkennd þeirra. Skrifstofa hvorra tveggja bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs hefur verið til húsa í Norræna húsinu frá 2014. Náið sam- starf skrifstofunnar við bókasafnið í Norræna húsinu skilar sér í því að allar tilnefndar bækur ársins voru að- gengilegar á frummálunum á bóka- safninu í Norræna húsinu frá og með deginum í gær. Einnig eru allar vinn- ingsbækurnar frá upphafi aðgengi- legar til útláns á safninu. Silfurlykillinn og Rotturnar tilnefnd Morgunblaðið/Eggert Gleði Sigrún Eldjárn og Ragnheiður Eyjólfsdóttir í Norræna húsinu í gær.  14 verk tilnefnd  Verðlaunin af- hent 29. október Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 13/4 kl. 12:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Fös 12/4 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 5/4 kl. 18:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 15:00 Lau 6/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 17:00 Sun 7/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 24/4 kl. 19:30 Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 3/4 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 5/4 kl. 22:00 Lau 6/4 kl. 22:00 Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 6/4 kl. 14:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 15:30 Lau 6/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 14:00 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Frumsýning 15. mars. Elly (Stóra sviðið) Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 6/4 kl. 20:00 46. s Allra síðustu sýningar! Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fös 5/4 kl. 20:00 8. s Lau 13/4 kl. 20:00 9. s Síðustu sýningar. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.