Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 36
Á vorin fljúga farfuglar á vit nýrra ævintýra á norðurslóðum. Nýttu tækifærið og slástu í för. BÓKANLEGT: 3. apríl frá kl. 10:00 til miðnættis FERÐATÍMABIL: 1.–31. maí airicelandconnect.is Vortilboð Verð frá aðeins 7.500 kr. Höfundakvöld með íslenskum rödd- um verður haldið í Norræna húsinu í kvöld kl. 20. Fram kemur hópur ljóðskálda og rithöfunda sem voru fulltrúar Íslands á ljóðahátíðinni Audiatur í Bergen í fyrra. Höfund- arnir eru Ásta Fanney Sigurðar- dóttir, Fríða Ísberg, Haukur Ingvars- son og Jón Örn Loðmfjörð. Skáldið Eiríkur Örn Norðdahl, sem var kúrator íslenska hlutans, kemur einnig fram og kynnir skáldin og segir frá upplifun sinni af hátíðinni. Íslenskir höfundar í Norræna húsinu MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 93. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Stjarnan hóf úrslitakeppni Ís- landsmóts kvenna í köruknattleik af miklum krafti í gærkvöldi og vann að margra mati óvæntan sigur á liði Keflavíkur, 78:70, í fyrsta leik liðanna í Keflavík. Stjörnuliðið var með yfirhöndina í leiknum frá upp- hafi til enda. Valur og KR mætast í fyrsta inn í kvöld í hinni viðureign undanúrslitanna. »2 Stjarnan er komin yfir gegn Keflavík ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Jón Axel Guðmundsson, körfu- knattleiksmaður frá Grindavík og leikmaður Davidson-háskóla í Norð- ur-Karólínu í Bandaríkjunum, var í gær valinn í hóp þeirra sem hafa staðið sig sérstaklega vel í banda- ríska há- skólakörfu- boltanum í vetur. Hann er einn af 53 leikmönnum sem taldir eru hafa sig staðið best yfir öll Banda- ríkin á tímabilinu en í efstu deild há- skólanna leika samtals 353 lið. » 1 Jón Axel í hópi þeirra bestu vestanhafs Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í nútímanum þurfum við að vera vakandi fyrir því að aðstæður, áhöld og tækni breytast hratt. Margt sem við notum í dag verður orðið sjald- séðir gripir eftir fá ár og þeim getur verið mikilvægt að halda til haga, segir Andri Guðmundsson, for- stöðumaður Skógasafns. Síðar á árinu verður þess minnst að 70 ár eru liðin frá því að Byggða- safnið í Skógum undir Eyjafjöllum var stofnað. Þar eru áberandi munir og minjar ýmiskonar úr gamla ís- lenska bændasamfélaginu auk margs annars sem fyrrverandi safn- stjóri Þórður Tómasson safnaði og hélt til haga. Safnið er um margt einstakt og tugir þúsunda gesta koma þangað á ári hverju. Ný öld bankar upp á „Við þurfum að leggja okkur fram að safna og sýna margt fleira en muni úr horfinni veröld. Nú er 21. öldin farin að banka upp á,“ segir Andri sem hefur starfað við Skóga- safn frá 2015 og tók við sem for- stöðumaður á síðasta ári. Tímarnir breytast og mennirnir með; fyrir 17 árum var Samgöngu- safnið í Skógum opnað; en þar eru varðveittir og til sýnis munir, tæki, vélar, bílar, og fleira slíkt sem teng- ist sögu samgangna, rafvæðingar og tækni á Íslandi. Einnig er á staðnum sýning með ýmsum búnaði og mynd- um úr starfi björgunarsveitanna í landinu. Þá eru fjarskiptasögunni gerð góð skil í Samgöngusafninu, þar sem sýndar eru gamlar tal- stöðvar, útvarpsviðtæki og -sendar, símastrengir og svo mætti áfram telja. NTM og GSM Og svo eru það farsímarnir. Í fjar- skiptasafni Sigurðar Harðarsonar, rafeindavirkja í Samgöngusafninu, er fjöldi stórra farsíma sem voru í NMT-kerfinu svonefnda sem var við lýði frá því um 1985 uns slökkt var á síðasta sendi þess hérlendis árið 2010. Í stórum glerskáp eru svo GSM-símar frá upphafsárum þess kerfis, tæki sem hægt var að hringja úr og í og senda smáskilaboð. „Núna eru fyrstu gerðirnar af gemsunum komnar úr notkun og raunar eru í Skógasafni komnar fyrstu útgáfurnar af snjallsímum sem eru allsráðandi í dag. Þessa síma höfum við meðal annars fengið frá Sigurði Harðarsyni, frá símafyr- irtækjunum og almenningi. Við tök- um eftir því að krökkunum finnast símar sem voru allsráðandi fyrir kannski tíu árum mjög sérstakir og gamaldags. “ Morgunblaðið/Sigurður Bogi hsfgwsgfsd Símar verða safngripir  21. öldin bankar upp á í Skógasafni  Gemsar í glerskáp Halló Andri Guðmundsson hér með gamlan NMT og að baki eru Ericson-símar eins og voru á flestum heimilum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Símon Úrvalið er mikið og símarnir gömlu gætu sjálfsagt virkað enn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.