Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er í fyrsta skipti sem égútbý og standset húsnæðisem er vel til þess fallið aðhalda sýningar. Þetta er
fyrst og fremst vinnustofa mín, en
húsnæðið er þess eðlis að ég á auðvelt
með að breyta því í glæsilegan sýn-
ingarsal. Þetta hefur verið draumur
hjá mér lengi,“ segir Kristján Bald-
vinsson, sem opnar myndlistargall-
eríið Gallerí GAFL – Listhús við
Lækinn á morgun, föstudag, í
Hafnarfirði. Til greina kemur að
leigja út salinn til sýninga á verkum
annarra listamanna, ef áhugi er fyrir
því.
Á sama tíma og Kristján opnar
galleríið ætlar hann að opna þar sýn-
ingu á eigin verkum, en hann er að
mestu leyti sjálfmenntaður myndlist-
armaður og hefur málað í rúma fjóra
áratugi. Hann segist muna nákvæm-
lega hvenær myndlistaráhugi hans
vaknaði.
„Það var 20. nóvember 1973 þeg-
ar ég var nýorðinn tvítugur og var á
göngu í Hafnarstræti í Reykjavík.
Þar sá ég málverk í búðarglugga sem
talaði mjög sterkt til mín. Ég mann-
aði mig upp í að fara inn og spurðist
fyrir um málverkið. Þá kom í ljós að
Kristján Davíðsson var með mál-
verkasýningu í versluninni. Ég beið
ekki boðanna, fór og keypti mér olíu-
málningu, striga og pensla og byrjaði
að mála þann sama dag. Og hef gert
það síðan. Ég er þakklátur fyrir að
þarna kviknaði óslökkvandi þörf hjá
mér til að mála.“
Að láta ekki njörva sig niður
Kristján segist vera mikill
áhugamaður um myndlist almennt,
innlenda og erlenda.
„Þegar ég fer til útlanda geri ég
mér iðulega ferð í gallerí til að skoða
myndlist. Mér þykir gaman að ræða
við fólk um myndlist og allt sem
henni tengist,“ segir Kristján og bæt-
ir við að ánægjan sem fylgi því að
skapa sé það sem knýi hann áfram í
að mála.
„Ég hef alla tíð verið heillaður af
abstraktmálverkum. Þetta snýst allt
um hughrif hjá mér; ég spyr ekki
hvað ég sjái út úr málverki heldur
hvernig mér líði þegar ég horfi á það,
hvaða áhrif það hafi á mig. Ég verð
stundum fyrir sterkum áhrifum þeg-
ar ég sé málverk sem höfðar til mín,
sum form og litir geta vakið sterkar
tilfinningar hjá mér,“ segir Kristján
og tekur fram að sjálfur hafi hann
ekki þorað að mála abstrakt fyrr en
19 árum eftir að hann byrjaði að
mála.
„Fram að því hafði ég verið að
mála allt annað en abstrakt. En ég
leyfði mér loksins að snúa mér að ab-
straktmálverkinu eftir að ég hitti
myndlistarmanninn og nafna minn
Kristján Davíðsson af tilviljun í Nor-
ræna húsinu fyrir rúmum tuttugu ár-
um. Við tókum tal saman um mynd-
list og ég sagði honum að ég hefði
verið að mála undanfarin 19 ár án
þess að vera menntaður í faginu. Þá
sagði Kristján: „Ef þú hefur haft þörf
fyrir að mála í 19 ár án þess að fara í
skóla, ekki eyðileggja það með því að
fara í skóla.“ Þetta man ég orðrétt.
Ég er alls ekki sammála þessu og ég
er sannfærður um að þeir sem
mennta sig í myndlist læra auðvitað
margt þar, en að mínu mati er ekki
hægt að fylla fólk af andagift í skóla
þegar myndlist er annars vegar,“
segir Kristján og bætir við að sumir
hafi bent á kosti þess að láta ekki
njörva sig niður í sköpun sinni við
einhverjar reglur og gildi.
Kristján bætir því við að hann
hafi á sínum tíma farið í Iðnskólann í
Reykjavík og sé lærður smiður.
„Í því námi lærði ég grunnteikn-
ingar, þrívíddarteikningar og módel-
teikningu. Ég sótti líka námskeið hjá
Ingiberg Magnússyni myndlistar-
manni, bæði í teikningu og meðferð
lita.“
Í meira uppáhaldi en aðrir
Þegar Kristján er spurður hvort
hann eigi sér einhverjar sérstakar
fyrirmyndir eða haldi upp á einhverja
myndlistarmenn öðrum fremur segir
hann að vissulega séu margir áhrifa-
valdar í því sem hann geri. „Sumir
myndlistarmenn eru í meira uppá-
haldi en aðrir hjá mér. Fyrstan ber
að nefna Kristján Davíðsson, hann
hefur alla tíð verið númer eitt hjá
mér, enda er hann sá sem kveikti
neistann. Nína Tryggvadóttir, Haf-
steinn Austmann, Louisa Matthías-
dóttir og Guðmunda Andrésdóttir
eru öll í miklu uppáhaldi hjá mér
meðal innlendra málara sem og Sig-
urbjörn Jónsson. Ég er líka hrifinn af
mörgum þýskum myndlistarmönnum
eins og Georg Baselitz og þeir sem
þekkja til í myndlistinni sjá það á
verkum mínum að ég er undir sterk-
um áhrifum frá Gerhard Richter.“
Kristján er ekki sá eini í fjöl-
skyldunni sem í rennur listrænt blóð,
því bróðir hans, Magnús Baldvinsson,
er óperusöngvari að atvinnu, bassa-
söngvari við óperuna í Frankfurt.
„Hann hefur sungið við mynd-
listarsýningaropnun hjá mér,
kannski næ ég honum heim fyrir opn-
unina á morgun, hver veit.“
Þetta snýst allt um hughrif hjá mér
Hann man nákvæmlega
hvenær myndlistaráhugi
hans vaknaði. Það var
20. nóvember 1973 þeg-
ar hann var nýorðinn tví-
tugur. Kristján Baldvins-
son opnar á morgun sitt
eigið myndlistargallerí í
Hafnarfirði sem og sýn-
ingu á eigin verkum.
Morgunblaðið/RAX
Stoltur Kristján umvafinn verkum sínum í salnum góða í nýja galleríinu. Hann þorði ekki að mála abstrakt fyrr en 19 árum eftir að hann byrjaði að mála.
Kristján opnar myndlistar-
gallerí sitt Gallerí GAFL – Listhús
við Lækinn, á morgun, föstudag
12. apríl, klukkan 20, en það er til
húsa við Lækjargötu 34c í Hafnar-
firði.
Á Bókasafni Seltjarnarness verður
margt skemmtilegt í boði í tilefni af
barnamenningarhátíðinni sem nú
stendur yfir. Í dag, fimmtudag 11.
apríl, um kl. 16.30 ætlar Melkorka
Gunborg, 19 ára nemi í Tónlistarskóla
Seltjarnarness, að setjast við flygil-
inn á bókasafninu og leika af fingrum
fram. Hún ætlar að spila fyrir gesti
hátíðarinnar nokkur verk eftir Bach,
Mozart, Debussy og Rachmaninoff.
Melkorka er að ljúka framhaldsprófi í
píanóleik í lok apríl og er því ung og
upprennandi. Á bókasafninu verður
einnig hægt að skoða myndlistar- og
hönnunarsýningar eftir nemendur í
Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla. Þar
verður hægt að taka þátt í fræðandi
fuglaþraut, spennandi bókaratleik og
páskahappdrætti þar sem góðir vinn-
ingar eru í boði. Nú er lag fyrir alla
fjölskylduna að njóta Barnamenning-
arhátíðar.
Fjölbreytt barnamenningarhátíð á Seltjarnarnesi
Tónleikar Melkorku, fuglaþraut,
ratleikur og páskahappdrætti
Melkorka Ung og upprennandi.
VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is
Kjósum um
kjarasamningaVR
Kynntu þér nýja kjarasamningaVR
og greiddu þitt atkvæði rafrænt á vr.is
Atkvæðagreiðslan hefst í dag,
fimmtudaginn 11. apríl kl. 9.00 og lýkur
mánudaginn, 15. apríl kl. 12.00 á hádegi.
Þitt atkvæði skiptir máli.