Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
E
in
fa
ld
ur
bröns
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Ódýrt
753kr.á mann*
Bröns fyrir fjóra = 3.011 kr.
*Pönnukökur, bakaðar baunir, beikon, grillpylsur, egg og jarðarber.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsvirkjun ráðgerir nú að auka
afl Sultartangastöðvar um allt að
átta megawött með því að auka
rennsli í gegnum stöðina. Engar
breytingar þarf að gera á mann-
virkjum en aukningin næst með
breytingum á vélbúnaði stöðvar-
innar.
Sultartangastöð var tekin í notk-
un fyrir 20 árum. Hún er 15 km
norðaustan við Búrfellsstöð. Hún
nýtir vatn Tungnaár sem hefur áður
knúið vélar Hrauneyjafoss- og Sig-
öldustöðva á leið sinni ofan af há-
lendinu. Þá nýtir hún einnig rennsli
Þjórsár en árnar tvær sameinast í
Sultartangalóni, fyrir ofan stöðina.
Rennur framhjá stöðinni
Hugmyndir um aflaukningu
Sultartangastöðvar koma í fram-
haldi af stækkun Búrfellsstöðvar
sem kallaði á aukið rennsli. Komi til
þess að keyra þurfi Búrfellsstöð á
fullum afköstum verður að hleypa
vatni um farveg Þjórsár frá Sultar-
tangalóni framhjá Sultartangastöð
og að Búrfellsstöð, samkvæmt upp-
lýsingum Landsvirkjunar. Við það
mun vatn renna óvirkjað fram hjá
Sultartangastöð auk þess sem
vandamál geta skapast að vetri til
þegar snjór og ís er í farveginum.
Getur það valdið krapaflóði og
hættu á rekstrartruflunum í Búr-
fellsstöð vegna ísa.
Uppsett afl véla Sultartanga-
stöðvar er 125 megawött og orku-
vinnslugeta 1.020 gígawattstundir á
ári. Með breytingum á vélbúnaði er
talið unnt að auka afl stöðvarinnar
um átta MW eða sem nemur 17
gígawattstundum á ári. Engar
breytingar þarf að gera á mann-
virkjun og framkvæmdin felur ekki
í sér jarðrask utandyra.
Umhverfisáhrif komin fram
Spurningin um það hvort gera
þurfi fullt mat á umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar er til umfjöll-
unar hjá Skipulagsstofnun. Í um-
sögn Umhverfisstofnunar frá 28.
mars sl. kemur fram það álit að ekki
er talið líklegt að framkvæmdin hafi
umtalsverð umhverfisáhrif í för með
sér og hún sé því ekki háð mati á
umhverfisáhrifum. Skipulags-
stofnun á eftir að leggja sitt mat á
framkvæmdina.
Vatnsrennsli í gegn um stöðina
mun aukast úr um 322 metrum á
sekúndu í um 380 metra. Talið er að
það geti leitt til aukins rofs á bökk-
um frárennslisskurðar sem liggur
um sjö kílómetra leið frá stöðvar-
húsi langleiðina að veitustíflu Búr-
fellsstöðvar en þar liggur hann út í
Þjórsá. Fyrir nokkrum árum þurfti
að gera við bakkana vegna rofs.
Komi til aflaukningar minnkar
framhjárennsli í Þjórsá á milli Sult-
artangalóns og Bjarnarlóns. Áin
verður þurr fleiri daga en áður en í
raun rennur ekkert vatn um farveg-
inn stóran hluta ársins. Því er ekki
gert ráð fyrir að fyrirhuguð fram-
kvæmd breyti vatnalífi í farveg-
inum.
Ráðgera aflaukningu
Sultartangastöðvar
Landsvirkjun hyggst nýta betur Þjórsá og Tungnaá
Ljósmynd/Landsvirkjun
Sultartangastöð Landsvirkjun rekur sjö vatnsaflsstöðvar á Tungnaár- og
Þjórsársvæðinu. Reynt er að nýta rennslið til fulls með stækkun stöðva.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Allar íbúðir við nýja götu í þéttbýl-
inu Reykjahlíð í Mývatnssveit verða
með tvöfalt frárennsliskerfi. Annars
vegar hefðbundnar frárennslislagnir
sem leiða vatn frá vöskum, baði og
þvottahúsi í rotþró með tveggja
þrepa hreinsun. Hins vegar er lokað
lofttæmikerfi sem tekur við svart-
vatninu úr salernum og leiðir í safn-
tank. Svartvatnið er síðan með-
höndlað og notað til landgræðslu.
Klapparhraun er væntanlega
fyrsta gatan í landinu þar sem loft-
tæmt lagnakerfi er við öll klósett.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri
Skútustaðahrepps, segir að bygg-
ingarverktaki byggi tvö fjögurra
íbúða raðhús í götunni og kaupi
sveitarfélagið þrjár íbúðir.
Sparar 80% af vatninu
Lofttæmikerfið byggist á sömu
lögmálum og klósett í flugvélum og
mörgum skipum og notar aðeins um
20% af því vatni sem rennur í gegn-
um hefðbundin klósett.
Kerfið í götunni er liður í úrbóta-
áætlun í frárennslismálum sem
sveitarfélagið og rekstraraðilar
vinna saman að með stuðningi ríkis-
ins. Tilgangurinn er að vernda við-
kvæma náttúru Mývatns og auka
sjálfbærni samfélagsins. Icelandair
hótel í Reykjahlíð hefur þegar tekið
slíkt kerfi í notkun. Sveitarfélagið
mun breyta lagnakerfi grunnskóla,
leikskóla, íþróttahúss og annarra
mannvirkja sinna í þessa veru og 13
stærri fyrirtæki í ferðaþjónustu
munu gera slíkt hið sama.
Landgræðsla á Hólasandi
Stór söfnunartankur verður sett-
ur upp á Hólasandi í samvinnu við
Landgræðsluna og verður úrgang-
urinn notaður til uppgræðslu þar.
„Það er sérstakt að lítið samfélag
eins og okkar skuli vera að draga
vagninn í þessum breytingum á
landsvísu. Það fer mikil orka í það en
okkur finnst spennandi að taka þátt í
frumkvöðlaverkefni af þessu tagi. Af
því spretta ýmsar aðrar sjálfbærni-
hugmyndir og allir róa í sömu átt,“
segir Þorsteinn.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Klapparhraun Unnið við grunn annars raðhússins í nýju íbúðagötunni í
Reykjahlíð. Í götunni verða átta íbúðir samtals í tveimur raðhúsum.
„Flugklósett“ sett
upp í allri götunni
Úrbætur á frárennsli í Mývatnssveit
Frakkastígur í Reykjavík verður
tengdur Sæbraut með nýjum gatna-
mótum og hefjast framkvæmdir á
næstu dögum. Auk framlengingar á
Frakkastíg út að Sæbraut verður
gatan endurgerð milli Skúlagötu og
Lindargötu.
Gatnamótin nýju verða ljósastýrð
og mun það bæta mjög öryggi
gangandi vegfarenda, en margir
þeirra, sérstaklega ferðamenn,
fara þvert yfir Sæbrautina frá
Frakkastíg að Sólfarinu og hefur
þar oft legið við slysum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg.
Frakkastígur verður tengdur Sæbraut
Staða miðlunarlóna Landsvirkjunar í lok vetrar er vel umfram meðallag.
Eru því horfur um afhendingu orku góðar fram á haust, að því er fram
kemur í tilkynningu á vef Landsvirkjunar.
Miðlunarforðinn er nú að liðnu vetrartímabili metinn 2.585 gígawatt-
stundir eða sem nemur 52% fyllingu. Reiknað er með að vatnsforðinn nái
lágmarki fyrri hluta næsta mánaðar og hann verði þá um 2.300 GWst eða
sem svarar 47% fyllingu.
Nokkur hlýindaskeið með miklu innrennsli fyrrihluta vetrar er ástæðan
fyrir þessari góðu stöðu. Þess á milli, sérstaklega eftir áramót, hefur nið-
urdráttur verið afgerandi. Frá 1. október hefur niðurdráttur miðlunarlóna
staðið undir um þriðjungi orkuvinnslunnar.
Landsvirkjun lætur þess getið að vatnshæð í Þórisvatni hafi aðeins
tvisvar verið betri á síðustu tíu árum og vatnshæð í Blöndulóni og Háls-
lóni við Kárahnjúkavirkjun aðeins þrisvar verið betri á sama tímabili.
Góð staða í miðlunarlónum
GÓÐAR HORFUR UM AFHENDINGU ORKU FRAM Á HAUST