Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 53

Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 ✝ SigurjónaSoffía Þor- steinsdóttir fæddist á Stóru-Brekku í þáverandi Hofs- hreppi á Höfða- strönd í Skagafirði 17. maí 1924. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 25. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þorsteinn Jóns- son, bóndi á Stóru- Brekku, f. þar 28. október 1886, d. á Hofs- ósi 30. október 1952, og kona hans Baldvina Sigríður Sigur- jónsdóttir, f. á Stóra-Grindli í Fljótum 1. mars 1892, d. á Siglufirði 10. febrúar 1975. Sigurjóna átti tvö systkini, nú bæði gengin. Þau voru: 1) Jón- æviárin upp í Stóru-Brekku en síðan á Nöfinni á Hofsósi, það- an sem faðir hennar stundaði þá útgerð til viðbótar við bú- skapinn. Hún bjó sem ung kona árum saman á Siglufirði og dvaldi einnig um tíma í Noregi. Hún flutti alfarin aftur til Ís- lands árið 1951 og starfaði eftir það einkum við verslunarstörf. Sigurjóna giftist 9.11. 1954 Ólafi Oddgeiri Magnússyni vél- stjóra, f. á Fáskrúð á Hellis- sandi 13.8. 1926. Þeim varð eins sonar auðið, Magnúsar, f. 28.1. 1955. Fjölskyldan bjó sér fyrst heimili í Reykjavík en flutti til Kópavogs í maí 1968. Ólafur lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 30. desember 2013. Þau hjónin ferðuðust oft til útlanda, oftast með Bænda- ferðum. Sigurjóna sinnti einnig garðyrkju við heimili hjónanna í Kópavogi og í sumarbústaðar- landi þeirra í Eilífsdal í Kjós. Útför Sigurjónu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. ína Guðrún, f. 10.12. 1922, d. 31.1. 1984, lengst af hús- móðir á Siglufirði, gift Oddi Carli Thorarensen, lög- fræðingi og kvik- myndahússeiganda þar, f. 12.2. 1920, d. 25.5. 2015. Þau eignuðust einn son, Hinrik Ólaf, f. 12.2. 1947, d. 31.8. 1975. 2) Óli Magnús, verslunar- og skrifstofumaður á Hofsósi, f. 2.2. 1927, d. 29.9. 2003. Kona hans var Guðrún Elín Krist- jánsdóttir, f. 27.9. 1928, d. 20.8. 2003. Börn þeirra eru: Sigríður Steinunn, Kristbjörg, Kristín Bryndís, Þorsteinn, Kristján, Birgir, og Ellert Jón. Sigurjóna ólst fyrstu þrjú Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar og hróðrar dís, og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður? Ég man það betur en margt í gær, þá morgunsólin mig vakti skær og tvö við stóðum í túni: Þú bentir mér yfir byggðar hring, þar brosti við dýrðin allt í kring og fjörðurinn bláöldum búni. Þú bentir mér á, hvar árdagssól í austrinu kom með líf og skjól. Þá signdir þú mig og segir: „Það er guð, sem horfir svo hýrt og bjart, það er hann, sem andar á myrkrið svart og heilaga ásján hneigir.“ Elsku mamma, þetta hugljúfa ljóð séra Matthíasar Jochums- sonar til móður sinnar gæti eins vel hafa verið ort til þín. Betri móður gæti enginn óskað sér. Nú hefur þú fengið langþráða lausn frá veikindum þínum. Hugðarmálum þínum á borð við garðyrkjuna sinntir þú heima við, var það nokkuð sem þú þrjóskaðist lengi við, þó meira af skyldurækni eftir að þið pabbi selduð sumarbústaðinn. Síðustu 10 árin hafa reynst þér sérlega erfið, pabbi greindist með Alzheimersjúkdóminn og heilsu hans hrakað hratt upp frá því. Að því kom að þú treystir þér ekki til að annast lengur um pabba. En það var ekki auðhlaup- ið að fá vistun fyrir hann á hjúkr- unarheimili, hann fékk inni á Sunnuhlíð tiltölulega fljótt. Síðar þurftir þú að leggjast sjálf inn á aðrar sjúkrastofnanir vegna eigin heilsubrests meðan þú beiðst eftir að pláss losnaði fyrir þig í Sunnuhlíð. Allan þann tíma og æ síðan í Sunnuhlíð varstu rúmföst. Sjón og heyrn hrakaði stöðugt og voru nánast alveg horfnar þegar þú lést. Missir þessarar skynjunar varð til þess að þú einangraðist frá öðru fólki og lokaðist smám saman inni í eigin vitundarheimi, þaðan sem þú áttir ekki afturkvæmt. Elsku mamma! Ég minnist æðruleysisins sem þú sýndir ávallt í veikindum þínum. Já- kvæðnin var þinn styrkur í lífinu, allt þangað til yfir lauk. Aldrei heyrði ég þig barma þér eða hall- mæla æðri máttarvöldum út af örlögum þínum. Ég kveð þig nú, með ósk um guðsblessun þér til handa og velfarnað á vegferð þinni inn í eilífðina. Ég veit að þú hefur tekið stefnuna á ljósið skæra sem mun vísa þér leiðina í faðm Guðs þar sem pabbi bíður þín. Þar náum við svo saman aft- ur öll þrjú fyrr en varir. Þangað til minnist ég ykkar og alls þess góða sem ég á ykkur að þakka og gleðst jafn- framt í allri sorginni yfir því að þið eruð nú laus undan þjáningu og einangrun hinnar jarðnesku efnisskeljar. Sú besta gjöf er gafst þú mér var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. Við erum ljóstýrur Lofnar er lýsa upp höf jafnt sem lönd. Uns við að endingu, að hennar bendingu, eyðumst á eilífðar strönd. Þinn elskandi Magnús. Sigurjóna Soffía Þorsteinsdóttir ✝ Finnur StefánGuðmundsson fæddist í Reykjavík 19. mars 1935. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 31. mars 2019. Móðir Finns var Torfhildur Guðrún Helgadóttir, f. 18.12. 1897 í Elínar- höfða á Akranesi, d. 5.3. 1971. Faðir Guðmundur Jónas Helgason, f. 28.12. 1899 á Görðum í Útskála- kirkjusókn, d. 23.5. 1989 í Reykjavík. Systkini Finns eru Guðríður Lilja, f. 5.8. 1924, látin. Drengur, f. 11.2. 1926, látinn. Helga Halldóra, f. 20.1. 1927, lát- in. Helgi Ingvar, f. 11.6. 1929. Gísli, f 2.7. 193, látinn. Stúlka, f. 30.7. 1932. Jónas Gunnar, f. Ólafsvöllum á Skeiðum. Strax eftir skólagöngu var hann í vinnumennsku á ýmsum bæjum þar til hann flutti til Reykjavíkur ásamt fjölskyldunni. Árið 1956 hóf hann nám í Bændaskólanum á Hvanneyri og útskrifaðist það- an sem búfræðingur 1958. Að því loknu réðst hann að Hvítár- völlum þar sem hans aðalstarf var laxveiðar, að vitja um kvölds og morgna á veiðitímabilinu, þar bjó hann í fjögur ár. Árið 1969 hóf hann búskap í Galtarholti í Skilmannahreppi ásamt bróður sínum Sigurþóri og konu hans Kristínu. Finnur reisti sér hús á Hagamel í sömu sveit og flutti þangað 1980. Finnur flutti 1985 að Bekansstöðum og bjó þar til æviloka. Finnur vann við að reisa Kísilmálmverksmiðju Elkem á Grundartanga og var síðan starfsmaður í verksmiðjunni þar til hann hætti störfum vegna aldurs. Útför Finns fer fram frá Akraneskirkju í dag, 11. apríl 2019, klukkan 13. 14.11. 1933, látinn. Sigurþór, f. 12.6. 1936. Sverrir, f. 27.10. 1937. Guð- mundur Tómas, f. 4.2. 1940. Finnur kvæntist Önnu Margréti Þór- oddsdóttur, f. 31. ágúst 1938, d. 20. júlí 2018, 17. maí 1991. Börn Margrétar af fyrra hjónabandi eru. 1) Jón Valgeir Viggósson, f. 1960. 2) Anna María Viggósdótt- ir, f. 1963. Börn hennar eru a) Sæ- þór Jóhansson, f. 1988, b) Sal- ómon Tandri Idun, f. 1998, c) Angela Jennefer Idun, f. 2000. 3) Valgerður Viggósdóttir. Finnur ólst upp í Reykjavík til 11 ára aldurs en þá flutti hann með fjölskyldu sinni að Minni- Ég kynntist honum Finni þegar hann var að byggja sér hús í Melahverfi. Ég var þá í byggingareftirliti á svæðinu. Hann var þá ein- hleypur og bjó í Galtarholti í Skilmannahreppi með bróður sínum, mágkonu og börnum þeirra. Hann vann í Járnblendi- verksmiðjunni í mörg ár frá því að hún var sett í gang. Finnur hafði áhuga á búskap og skóg- rækt. Hann hafði áður lært til búskapar á Hvanneyri. Hann gekk í Skógræktarfélag Skil- mannahrepps og þar kynntist hann konu sinni, Margréti frá Bekansstöðum, systur minni, sem var einnig í því félagi. Þau fóru svo að rugla saman reytum og Finnur flutti að Bekansstöð- um og seldi sitt hús á Hagamel. Eins og áður er um getið hafði hann áhuga á búskap og tók þátt í heyskap og öðrum bú- verkum með Margréti og börn- um hennar. Margrét var þá tekin við bú- skap á jörðinni ásamt börnum sínum. Meðal annars fóru þeir Jón Valgeir að gera tilraunir með kornrækt í nokkur ár eins og fleiri bændur á svæðinu. Gekk það nokkuð vel og var kornið notað sem fóður, aðallega fyrir kýr. Finnur var félagslynd- ur og tóku þau hjónin þátt í fé- lagsskap í sinni sveit og einnig hjá „Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni“. Þau hjónin ferðuðust nokkuð um Ís- land. Finnur var handlaginn maður og hafði gaman af að smíða. Hann var þægilegur í viðkynn- ingu og ljúfur maður. Kæri mágur, ég óska þér góðrar ferðar yfir móðuna miklu, og sendi aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Bjarni O. V. Finnur Stefán Guðmundsson Það eru forrétt- indi að alast upp í stórum systkina- hóp. Þessi forréttindi fékk mamma en það eru líklega einu forréttindin sem hún upplifði sína ævi. Að alast upp með systkinum sem var jafnt skipt, fimm bræð- ur og fimm systur, hefur mikið að segja í uppeldinu. Að missa maka sinn aðeins 34 ára árið 1968 og vera með sex ung börn hefur svo sannarlega verið erfitt. Svo í framhaldi að missa heilsuna og þurfa að láta nýfætt barn frá sér þar sem móðurinni var ekki hugað líf var enn einn skellur. Sem betur fer átti mamma góða að eins og ömmu og afa á Svarthamri og svo Ásta Minney Guðmundsdóttir ✝ Ásta MinneyGuðmunds- dóttir fæddist 20. desember 1934. Hún lést 31. mars 2019. Útför Ástu Minn- eyjar fór fram 5. apríl 2019. systkini sín. Þótt við bræður höfum ekki alist upp á heimili mömmu var passað vel upp á að það færi ekki framhjá hvorki okk- ur né öðrum að mamma væri mamma okkar. Eins talaði mamma alltaf um Kristján bróður, sem hún varð að láta frá sér vegna veikinda sinna nýfæddan 1972, en við systkinin og Krist- ján vorum svo heppin að hann eignaðist góða foreldra sem héldu alltaf sambandi við mömmu. Í dag er ekki langt á milli Svarthamars og Súðavíkur, en þegar ég var að alast upp á Svarthamri þóttu það tíðindi ef farið var út í Súðavík eins og sagt er fyrir vestan. Það var helst að sumri sem maður fékk að fara með í kaupfélagið og þá var komið við hjá mömmu. En öll jól meðan ég var á Svart- hamri kom mamma ásamt öllu sínu heimilisfólki til að vera bæði á aðfangadag og jóladag. Þetta þótt mér alltaf vænt um og sérstaklega skemmtilegur tími. Til að drýgja heimilistekjur, þegar mamma bjó í Súðavík með systur mínar, tók hún að sér að vera með fæði og gistingu fyrir menn sem komu til Súðavíkur og voru á bátum þar. Enn í dag heyri ég hlý orð um mömmu frá þessum tíma. Ég veit að henni þótti sér- staklega vænt um að vel tækist til og að strákunum, eins og hún kallaði þá, vegnaði vel í lífinu. Margir þeirra héldu sambandi við mömmu lengi vel. Mamma var ekki mikið fyrir að sýna tilfinningar sínar, en aldrei mun ég gleyma geðshrær- ingu og gleðitárum hennar þeg- ar við Guðmundur bróðir skírðum okkar fyrstu börn sam- an á Svarthamri. Það vildi svo til að að börnin fengu alnöfn bæði mömmu og pabba. Mamma var sérstaklega ánægð með þetta og það var alltaf gaman að gleðja hana. Núna er mamma komin til pabba, ömmu, afa, Georgs, Vikt- oríu og allra hinna hinum megin. Ég veit að þau taka vel á móti mömmu og henni líður betur núna. Elsku mamma, hvíldu í friði. Pétur Júlíus. ✝ Sigurður Mar-inó Sigurðsson fæddist í Hnífsdal 23. mars 1931. Hann lést á Hrafn- istu Nesvöllum 8. mars 2019. Foreldrar hans voru Sigurður Guð- mundur Sigurðsson skipstjóri á Ísafirði, f. 19.2. 1902, d. 21.5. 1969, og Guð- munda Jensína Bæringsdóttir, f. 22.10. 1904, d. 26.12. 1994. Nói, eins og hann var alltaf kallaður, ólst upp fyrstu árin í Hnífsdal, síðan á Ísafirði. Systk- inin eru: Hermann Bæring, f. 12.7. 1926, lést í hörmulegu sjó- slysi í Jökulfjörðum 18.12. 1986, ásamt syni sínum og frænda rúnu, og ólust þær upp hjá ömmu sinni og afa, og bættust þá við barnahópinn. Nói átti soninn Jón Benoný með Grétu Jónsdóttur úr Súða- vík. Giftist um sextugt Jóhönnu Jensdóttur frá Drangsnesi og bjuggu þau saman í um 10 ár en skildu þá. Nói hóf sjómannsferil sinn 14 ára með föður sínum á Guð- mundi, bát sem hann átti lengi og gerði út, og hófu bræður hans líka sinn sjómannsferil með honum. Nói var með vél- stjóra- og skipstjóraréttindi og var bæði vélstjóri og stýrimaður á ýmsum bátum og skipum, líka skipstjóri, og náði sér líka í járn- iðnaðarmannsréttindi. Var yfir 20 ár til sjós, líka var hann á tog- urum, m.a. á Sólborgu frá Ísa- firði og Hafnarfjarðartogurum, lengst á Röðli. Var við hafn- argerðina í Straumsvík í um tvö ár, og svo í álverinu hátt í þrjá- tíu ár, þar sem hann lauk starfs- ferlinum um sjötugt. Útför Nóa fór fram í kyrrþey. hans. Arnór Lúð- vík, f. 4.10. 1927, d. 14.9. 1993. Jóna Sigríður, fædd 12.2. 1929, dó úr lungnabólgu tæp- lega ársgömul. Þá Sigurður Marinó, Nói, sem bar nöfn afa síns Sigurðar Ólafssonar bónda í Bæjum á Snæ- fjallaströnd og ömmu sinnar Maríu Rebekku Ólafsdóttur. Þá Kristinn, f. 3.9. 1934, dó voveiflega 19 ára, varð úti á fjöllum. Baldur, f. 1.11. 1935. Guðrún Helga, f. 8.7. 1938, d. 5.3. 2016. Kristín, f. 9.3. 1942. Guðrún átti lengi við geðræn veikindi að stríða, hún eignaðist tvær dætur, Ragnheiði og Krist- Mig langar að minnast míns kæra bróður með nokkrum fá- tæklegum orðum. Við vorum miklir vinir og félagar í gegnum lífið, auk þess að vera bræður. Vorum saman til sjós, í útgerð lengi með bræðrum okkar, og svo í um 30 ár saman í álverinu í Straumsvík. Eftir að starfsferlin- um lauk stunduðum við saman göngutúra í nokkur ár, um Vog- ana og nágrenni, og síðan í sund- laugina á eftir, og vorum alltaf með göngustafi þá, og vorum kallaðir stafakarlarnir. Svo var endað í tesopa og spjalli hjá hon- um í Álfagerði, húsi eldri borg- ara, sem hann bjó í um nokkur ár, uns hann fékk hjartaáfall og var í einar þrjár vikur á gjörgæslu, en náði sér á strik sæmilega aftur, þó að hann biði þess ekki bætur. Hann hafði alla tíð verið hraustur og varla misdægurt um sína daga fram að því. Nói var myndarlegur maður, meðalmaður á hæð, mikill kvennaljómi. Glaðsinna, spilaði á gítarinn sinn og var oft þá sungið, og haft gaman saman, og á harm- ónikku lék hann einnig ljómandi vel, og þá var líka sungið með á góðri stund. Ég vil að lokum þakka mínum kæra bróður fyrir allar samverustundirnar í gegn- um lífið, bæði í leik og starfi. Hvíl þú í friði, elsku bróðir, þess óska og biðja Baldur og ástvinir. Baldur Sigurðsson. Sigurður Marinó Sigurðsson – Nói Elsku Didda, þú varst á mínum yngri árum mamma mín nr. 2 – er mínir foreldrar skruppu af bæ þá gisti ég hjá ykkur Víði. Við Stella vorum jafn gamlar og miklar vinkonur. Einhvern veginn er það fast í minningunni að við vorum alltaf Karen Júlía Magnúsdóttir ✝ Karen JúlíaMagnúsdóttir fæddist 4. apríl 1931. Hún lést 19. mars 2019. Útför Karenar fór fram 29. mars 2019. saman, hvort sem var í tjaldútilegu á Laugarvatni og foreldrarnir á sjó- skíðum eða í Skála- fellinu á veturna að renna okkur niður brekkurnar – alltaf líf og fjör og mikið hlegið og sungið. „Það er skamm- góður vermir að missa piss í skóna …“ Er ég eignaðist mín börn mál- aðir þú postulínsskó sem eru vel geymdir. Þú varst alltaf svo góð við mig, mín kæra Didda, og veit ég að móðir mín, Jóna Gróa, sem ég sakna alla daga, tekur vel á móti þér hvar sem hún er. Takk fyrir allt og allt. Gráttu ekki yfir góðum liðnum tíma. Njóttu þess heldur að ylja þér við minningarnar, gleðjast yfir þeim og þakka fyrir þær með tár í augum, en hlýju í hjarta og bros á vör. Því brosið færir birtu bjarta, og minningarnar geyma fegurð og yl þakklætis í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Samúðarkveðjur til allra. Helga Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.