Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Vor í lofti Fólk hefur dregið fram hjólfáka sína þótt enn blási nokkuð og kul sé í lofti. En vorið kemur brátt. Eggert Komdu sæl, Katrín. Tilefni þess að ég kýs að skrifa þér þennan bréfstúf er aðild ríkisstjórnar þinnar að framkomnum þingmálum um innleiðingu á orkupakka Evrópusambandsins nr. 3 í íslenskan rétt. Ég vildi helst ekki trúa því að þú gerðist formælandi og ábyrg fyrir þeim þingmálum sem ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins hafa mælt fyrir á Alþingi. Þegar úrslit síð- ustu alþingiskosninga lágu fyrir haustið 2017 taldi ég stjórnarmyndun þriggja flokka und- ir þinni forystu vænlegasta kostinn eftir upplausnarástand í íslenskum stjórnmálum árin á undan. Með ánægju hef ég fylgst með forystu þinni og málstökum á ýmsum sviðum þar til nú að þér bregst bogalistin með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir framtíð íbúa lands okkar og náttúru þess. Tilefni þessa bréfs er af minni hálfu að vara þig og lesendur við þeirri stefnu sem ríkisstjórn þín nú hefur tekið varðandi orkuna sem náttúruauðlind og samspil henn- ar við þjóðarhag og umhverfi okkar. Lesið í pólitíska landslagið Þótt 20 ár séu liðin frá því ég sat á Al- þingi hef ég eftir bestu getu reynt að fylgj- ast með stjórnmálum hérlendis og á alþjóða- vettvangi. Ég batt miklar vonir við Vinstri- hreyfinguna –grænt framboð eftir að hún var stofnuð, allar götur þar til flokkurinn gerðist ábekingur að umsókn um inngöngu í Evrópusambandið, – samhliða varnarbaráttu vegna efnahagshrunsins 2008. Ástæður hrunsins má að drjúgum hluta rekja til EES-samningsins og þess andvaraleysis sem honum fylgdi. Eftir aldamótin spyrnti VG við fótum gegn orkupökkum 1 og 2 og voru þeir þó tiltölulega meinlausir miðað við það fullveldisafsal sem nú blasir við með alvar- legum afleiðingum fyrir náttúruvernd og af- komu almennings, raunar löngu áð- ur en úrslit ráðast um lagningu sæstrengs. Hjá samstarfsflokkum VG í ríkisstjórn hefur verið mikil andstaða gegn innleiðingu orku- pakka 3, ekki síst innan Sjálfstæð- isflokksins, þvert á þau viðhorf sem ráðherrar flokksins nú endur- spegla. Í því sambandi vil ég benda þér á vandaða umfjöllun Tómasar Inga Olrich í Morgunblaðinu 28. mars sl. Það sætir furðu að VG sem flokkur hefur á sama tíma þagað þunnu hljóði um þessi mál og þingmenn flokksins virðast loka augunum fyrir því hættuspili sem hér blasir við. Á sama tíma er þeim þingmönnum sem þó andæfa óhæfunni gefið langt nef eins og gerst hefur á Alþingi og í fjölmiðlum síðustu daga. Náttúruvernd og „smávirkjanir“ Einkafyrirtæki í raforkuiðnaði eins og HS Orka og Arctic Hydro eru þegar byrjuð að kemba landið í leit að virkjanakostum undir 10 megawatta afli þar sem hægt er að kom- ast hjá reglum Rammaáætlunar um um- hverfismat og aðra gagnrýna málsmeðferð. Ekki hefur staðið á Orkustofnun að veita þeim rannsóknarleyfi og sum sveitarfélög eru fljót að eygja hagnaðarvon og laga skipulag sitt að kröfum þeirra. Dregist hefur úr hömlu að breyta lögum og færa mörkin niður í 1 MW eða minna því að umhverfis- áhrif slíkra framkvæmda geta jafnast á við margfalt stærri virkjanir. Nýjasta dæmi um slíkt er áformuð 9,9 MW Geitdalsárvirkjun inn af Skriðdal eystra sem Náttúruverndarsamtök Austurlands vöruðu sterklega við á fundi í síðustu viku. Ásókn þessara fyrirtækja mun magnast í kjölfarið á innleiðslu orkupakka 3 og þrýst- ingur á tengingu við útlönd með sæstreng er þegar í gangi í samvinnu við erlend fyrir- tæki. Það er óhæfa að leggja slíka steina í götu náttúruunnenda og dugmikils umhverf- isráðherra og áhrifanna er fljótt að gæta um land allt, bæði hjá landeigendum og sveitar- félögum sem renna á peningalyktina. Öllum má vera ljóst að áhrifin af orkupakka 3 á raforkuverð og væntingar ýmissa í orkuiðn- aði um tengingu yfir hafið munu ýta upp raforkuverði til almennings og margfalda það ef af lagningu sæstrengs verður. „Undanþágur“ sem ekki halda vatni Langt hefur verið gengið af hálfu ráð- herra ríkisstjórnarinnar um boðaðar undan- þágur frá orkupakka 3 Íslandi til handa frá reglum ESB-réttar. Þannig voru lögmenn- irnir Stefán Már og Friðrik Hirst bornir fyr- ir staðhæfingum sem ekki er að finna í álits- gerð þeirra 19. mars sl. Svo langt hefur verið gengið að segja „Um er að ræða orku- pakka á íslenskum forsendum“ (Frétta- tilkynning ráðuneyta 22. mars sl.). Minna mátti ekki gagn gera! Ég hef komið á fram- færi við þig og þingflokk VG áliti norska sérfræðingsins Arne Byrkjeflot frá 29. mars sl., en hann er ráðgjafi samtakanna Nei til EU um ESB-rétt. Norðmenn hafa þegar reynslu af haldleysi ýmissa meintra undan- þága frá ESB-rétti úr umræðu síðustu miss- era um orkupakka 3. Þannig segir Arne m.a. að hvorki sé hald í þeim ásetningi að ætla að innleiða lagaákvæði um ACER (Samstarfs- nefnd eftirlitsaðila á orkumarkaði) með ís- lenskri sértúlkun, né heldur að lögfesta orkupakkann með fyrirvörum, sem eigi að standast eftir að hann hefur verið sam- þykktur. Samþykki ákvæðanna um ACER feli í sér að þrýst verði á tengingu Íslands við útlönd með sæstreng og að fram- kvæmdastjórn ESB geti brugðist við höfnun af Íslands hálfu með vísun til dómstóls. Um það hvort innleiðingin standist stjórnarskrá Íslands er hann sömu skoðunar og Stefán Már og Friðrik Hirst að úr slíkum vafa verði að skera áður en til greina komi að taka af- stöðu til orkupakkans. Sameiginlega yfirlýs- ingu Guðlaugs Þórs og Canete orkumála- stjóra ESB segir hann ekki hafa neitt réttarfarslegt gildi, og munu flestir um það sammála. Orkumálin burt úr EES-samhengi Ég fæ ekki skilið hvers vegna þú, Katrín, tekur þátt í þessu leikriti með orkupakka 3. Pólitískan stuðning gegn innleiðslu hans er að finna í báðum samstarfsflokkum VG í rík- isstjórninni og með einarðri afstöðu þinni og þingflokks VG hefði mátt knýja fram höfnun á samþykkt orkupakka 3 af Íslands hálfu, sem er ótvíræður réttur okkar samkvæmt EES-samningnum. Með því myndi málið færast yfir á vettvang Sameiginlegu EES- nefndarinnar þar sem Ísland getur látið reyna á varanlega undanþágu á orkusviðinu. Þar væri um að ræða mikilvægustu ákvörð- un af Íslands hálfu frá því Alþingi sam- þykkti aðildina að EES, hliðstæða því og að við höldum yfirráðum yfir sjávarauðlindum okkar. Enn er ekki um seinan fyrir þig að snúa við blaðinu, en vísa ætti málinu ella í þjóðaratkvæði. Nú þegar ég skrifa þér þessar línur minn- ist ég opins bréfs til Steingríms Her- mannssonar sem ég ritaði honum sem for- sætisráðherra í aðdraganda EES-samningsins (Tíminn 1. febrúar 1991). Steingrímur svaraði mér með heilsíðugrein viku síðar í sama blaði undir fyrirsögninni „Evrópskt efnahagssvæði: Ótti á misskiln- ingi byggður.“ Síðan liðu tvö ár uns samn- ingurinn var endanlega borinn undir Alþingi 12. janúar 1993. Meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn samningnum voru sjö fram- sóknarmenn og í þeim hópi var sami Stein- grímur, þá orðinn óbreyttur þingmaður. Ég vona að þú þurfir ekki að verða „fyrrver- andi“ til að átta þig á þeim óheillagjörningi sem hér um ræðir, þ.e. orkupakka 3. Með góðum kveðjum Eftir Hjörleif Guttormsson »Einkafyrirtæki í raforku- iðnaði eins og HS Orka og Arctic Hydro eru þegar byrjuð að kemba landið í leit að virkjanakostum. Hjörleifur Guttormsson Svo bregðast krosstré ... Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra Höfundur er náttúrufræðingur. „Mamma, á ég ekki bara að skella mér í lögfræðina í haust?“ spurði ég hæstarétt- ardómarann og heiðurs- doktorinn hana móður mína sumarið 1988 þegar ég var nýútskrifuð úr Mennta- skólanum í Reykjavík. „Nei veistu það, Hansa mín, ég held að það henti þér ekkert sérlega vel,“ svaraði mamma um hæl. Ég leiði alltaf hugann að þessum orðum mömmu um þetta leyti árs og verður hugsað til þeirra ung- menna sem nú standa frammi fyrir því að velja nám í framhaldsskóla eða há- skóla. Samkvæmt könnun frá árinu 2016 kemur fram að 33-68% framhalds- skólanema líkaði betur verkleg fög en bókleg fög í grunnskóla, eftir námssviði. Þrátt fyrir það völdu aðeins um 15% ný- nema starfsnámssérhæfingu í fram- haldsskóla. Við hljótum því að spyrja: Eru kannski fjölmargir framhaldsskóla- nemar á rangri hillu? Af hverju ræður hjartað ekki för í námsvali? Ítrekað hefur komið fram að einn stærsti áhrifaþáttur í námsvali ung- menna er raddir foreldra. Skoðanir þeirra eru þó því miður oft byggðar á ranghugmyndum og upplýsingaskorti um virði náms og starfa. Starfsnám lok- ar engum leiðum en það er einfalt að taka stúdentspróf með blöndu bóklegra og verklegra faga á sviði iðnaðar, lista eða annarra starfsnámsgreina í fram- haldsskóla. Starfsnámið kemur sér einn- ig vel sem grunnur í tækninámi í há- skóla, t.d. verkfræði, standi hugur til þess. Ungmenni með starfsnám geta farið fyrr út á vinnumarkaðinn og í raun benda nýleg gögn til þess að tækifæri starfsmennt- aðra til tekjuöflunar yfir starfsævina geti verið meiri en þeirra sem hafa hefðbundinn bóknáms- grunn eingöngu. Ég vil hins vegar leyfa mér að nefna aðra ástæðu sem er jafnvel enn mikil- vægari. Það sem tvítugi nýstúdentinn vissi nefni- lega ekki fyrir 30 árum, en mamma vissi bless- unarlega, er mikilvægi þess að láta hjartað ráða för í námsvali. Ég hvet alla foreldra nemenda í 10. bekk grunnskóla til að vera víðsýna og skoða þá möguleika sem felast í starfs- námi í framhaldsskóla. Starfsgreinarnar hafa þróast mikið frá frumstæðu hand- verki fyrri tíma og spanna breitt litróf, allt frá tölvustýrðum verkefnum málm- og véltækni til kökugerðar, tækni- brellna, tölvuleikjagerðar og teikni- myndagerðar. „Finndu starf sem þú elskar og þú munt aldrei vinna dag í þínu lífi,“ á Konfúsíus að hafa sagt. Í mínum huga eru það mikil sannindi. Hjartað ráði för í námsvali Eftir Jóhönn Vigdísi Arnardóttur Jóhanna Vigdís Arnardóttir » Það sem tvítugi ný- stúdentinn vissi nefni- lega ekki fyrir 30 árum, en mamma vissi blessunar- lega, er mikilvægi þess að láta hjartað ráða för í námsvali. Höfundur er verkefnastjóri í mennta- málum hjá Samtökum iðnaðarins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.