Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 63

Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 63
AFTURELDING Ívar Benediktsson iben@mbl.is Afturelding leikur í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næsta keppnistímabili. Fyrir tímabilið í haust voru þeir ekki margir sem veðjuðu á að Afturelding, sem rak lestina í Grill 66-deildinni fyrir ári, myndi standa uppi sem sigurvegari og það nokkuð öruggur. Afturelding lauk keppni með fimm stiga forskot á ÍR sem varð í öðru sæti eftir að hafa unnið 17 leiki, gert eitt jafntefli og tapað tveimur leikjum. „Árangurinn var framar vonum,“ segir Haraldur Þorvarðarson sem tók við þjálfun kvennaliðs Aftureld- ingar sumarið 2017 og var þar af leið- andi með liðið á hinum enda töfl- unnar fyrir ári. „Ungu stelpurnar sem voru í liðinu í fyrra öðluðst mik- ilvæga reynslu sem þær bjuggu að í vetur auk þess sem við fengum góðan liðstyrk sem nýttist afar vel,“ segir Haraldur og nefnir m.a. Þóru Maríu Sigurjónsdóttur sem kom úr Gróttu og var markahæsti leikmaður liðsins. Kristín Arndís Ólafsdóttir kom úr Val. Hún lék reyndar upp yngri flokka Aftureldingar. Einnig bættist Ástrós Bender markvörður við en hún hafði verið í námi í Danmörku. Þegar nokkuð var liðið á tímabilið kom Japaninn Kiyo Inage frá Val en hún flutti hingað til lands með manni sínum Ryuto Inage sem leikur með karlaliði Vals. Haraldur segir að þrátt fyrir ágæta byrjun hafi hann ekki áttað sig almennilega á því fyrr en eftir að Aft- urelding lék hnífjafnan leik við úr- valsdeildarlið KA/Þórs í bikar- keppninni í byrjun nóvember að enn meira var spunnið í liðið en hann taldi. „Upp úr leiknum við KA/Þór fór boltinn að rúlla og vatt bara upp á sig og við lékum sextán síðustu leiki okkar án þess að tapa,“ segir Har- aldur. Auk öflugs og samhents hóps utan vallar sem innan segir Haraldur að lykilatriði fyrir árangrinum hafi vafa- laust verið varnarleikurinn. Hann hafi snemma lagt áherslu á að Aftur- eldingarliðið næði tökum á 5/1-vörn, ekki ósvipaðri þeirri sem ÍBV og ís- lenska landsliðið leika. „Á endanum var það örugglega varnarleikurinn sem skilaði okkur þessum árangri. Vörnin fullkomnaðist síðan með komu Inage í hópinn. Vörnin var okk- ar aðalsmerki ásamt markvörslu, sem sést meðal annars á að Aftureld- ingarliðið fékk fæst mörk á sig af lið- um deildarinnar,“ segir Haraldur. Umgjörð eins og hjá körlunum Umgjörðin í kringum meistara- flokkslið kvenna hefur tekið stakka- skiptum síðan Haraldur réð sig til starfa hjá Aftureldingu. Eftir síðasta tímabil varð bylting í þeim efnum. „Eftir tímabilið í fyrra var boðað til opins fundar þar sem óskað var eftir að áhugasamir um vöxt og viðgang kvennahandknattleiks hjá Aftureld- ingu mættu. Alls komu um 60 manns, sem skilaði sér í öflugri stjórn og meistaraflokksráði auk þess sem um- gjörðin í kringum liðið og leiki var færð til samræmis við það sem gerð- ist hjá meistaraflokki karla. Fyrir vikið hefur allt verið til fyrirmyndar á þessu keppnistímabili. Enginn vafi leikur á að þetta hefur haft mjög já- kvæð áhrif á leikmenn liðsins sem hafa fundið að staðið sé við bakið á þeim. Árangur í vetur er uppskera af vinnu mjög margra, ekki bara leik- manna og þjálfara,“ sagði Haraldur, sem lítur björtum augum fram á næsta keppnistímabil. „Við höldum ótrauð áfram. Næsta skref er að styrkja liðið enn frekar fyrir átökin í Olís-deildinni. Sú vinna er hafin. Ég hef fullan stuðning stjórnar og meistaraflokksráðs í þeim efnum. Markmiðið verður að treysta stöðu Aftureldingar sem liðs í efstu deild kvenna. Það er allt hægt. Við ætlum ekki að fara upp til þess eins að falla strax aftur,“ segir Har- aldur Þorvarðarson, þjálfari nýliða úrvalsdeildar kvenna á næsta keppn- istímabili, Aftureldingar. Við höldum ótrauð áfram  Afturelding lék 17 síðustu leiki sína á Íslandsmótinu án taps og vann deildina örugglega  Rak lestina fyrir ári  Bylting varð í umgjörð liðsins eftir einn fund Ljósmynd/Raggi Óla Deildarmeistarar. Efri röð f.v.: Haraldur Þorvarðarson þjálfari, Fanney Björk Guðmundsdóttir, Árni B. Eyjólfsson aðstþj., Andrea Ósk Þorkelsdóttir, Eva Dís Sigurðardóttir, Nína Líf Gísladóttir, Drífa Garðarsdóttir, Rakel Dóra Sigurðardóttir, Kristín A. Ólafsdóttir, Ósk Hauksdóttir, Ástrós Bender Mikaelsdóttir og Sara Lind Stefánsdóttir. Neðri röð f.v.: Kiyo Inage, Ragnhildur Hjartardóttir, Úlfhildur Tinna Lárusdóttir, Katrín H. Davíðsdóttir, Þóra G. Arnarsdóttir, Þóra M. Sigurjónsdóttir, Brynja Rögn F. Ragnarsdóttir, Íris Kr. Smith, Selma R. Sigurbjörnsdóttir liðsstj. og Margrét Ársælsdóttir sjúkraþjálfari. ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Sveinn Jóhannsson, 19 ára gamall handknattleiksmaður úr ÍR, er bú- inn að semja við danska úrvals- deildarfélagið SønderjyskE til þriggja ára. Þar með verða tveir Ís- lendingar í herbúðum liðsins en fyrir er Arnar Birkir Hálfdánsson. Sveinn, sem er línumaður, hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og var valinn í 28 manna æf- ingahóp A-landsliðsins fyrir HM í janúar. Hann er uppalinn í Fjölni en gekk í raðir ÍR-inga fyrir tímabilið og skoraði 37 mörk í 17 leikjum ÍR- inga í Olísdeildinni. gummih@mbl.is Sveinn samdi við SönderjyskE Morgunblaðið/Árni Sæberg Danmörk Sveinn Jóhannsson er bú- inn að semja við SönderjyskE. Arnór Sigurðsson var valinn besti leikmaðurinn í 22. umferð rúss- nesku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu. Skagamaðurinn ungi skor- aði bæði mörk CSKA í 2:0-útisigri á Spartak í viðureign Moskvuliðanna um síðustu helgi og hefur þar með skorað 3 mörk í þeim 14 leikjum sem hann hefur komið við sögu í deildinni á tímabilinu. Arnór hlaut 21.431 atkvæði í kosningu rúss- nesku úrvalsdeildarinnar á leik- manni umferðarinnar eða 55,41% atkvæða þeirra sem tóku þátt í kosningunni. Lið hans er í þriðja sæti. gummih@mbl.is Arnór bestur í Rússlandi AFP CSKA Arnór Sigurðsson hefur stað- ið sig mjög vel með Moskvuliðinu. „Það þarf varla að spila þetta Íslandsmót!“ Viðbrögð á borð við þessi mátti heyra eftir að verst geymda leyndarmál vetrarins var opinberað í fyrradag. Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður í fótbolta er kominn heim eftir sex ár erlendis og búinn að semja við Íslands- meistara Vals. Til hvorki meira né minna en fjögurra ára. Það er ár og dagur síðan ís- lenskt lið var með í sínum röðum tvo fastamenn úr landsliðinu. Það flokkast líklega undir „sturlaða staðreynd“ að tveir úr byrjunarliði Íslands á HM í Rúss- landi skuli nú leika með Hlíðar- endaliðinu. Valsmenn eru stórtækir um þessar mundir. Náðu í Helenu í körfuboltanum, nú í Hannes í fótboltanum og segja einfaldlega við aðra: Til að vinna titla þurfið þið að vinna okkur. Og fyrst Hannes er til um- ræðu þá er gaman að geta þess að hagyrðingurinn og fyrrverandi knattspyrnudómarinn Bragi V. Bergmann er búinn að gefa út nýja bók með limrum sem heitir: „Limrur fyrir land og þjóð. Þar kemur Hannes við sögu en Bragi var í Moskvu þegar Ís- land mætti Argentínu og upplifði þar stærstu stund Íslands á HM. Líklega í fótboltasögunni. Úr því varð að sjálfsögðu limra sem hljóðar þannig: Hannes Þór Halldórsson er hetja sem lofa ber. Á línunni þegir, að lokum hann segir: „Messi, því miður.“ – Og ver! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hin fullkomnaþrenna Meltingarensím tryggja góða meltingu og geta komið í veg fyrir ýmiskonar meltingarvandamál og kvilla því tengdu. Vel samsett boost, einu sinni á dag, eykur orkuna, kemur meira jafnvægi á blóðsykurinn. Candéa Byggir upp og kemur jafnvægi á þarmaflóruna. Öflugt fyrir ónæmiskerfði og vinnur á candéa sveppnum. Betri melting Aukin orka Öflugra ónæmiskerfi Meltingin og þarmaflóran er grunnur að góðri heilsu Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.