Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Blúshátíðin byrjaði upphaflega af
því að Dymbilvika var leiðinlegasta
vika ársins. Með blúshátíðinni höfum
við umbreytt orku í gleði sem endar
á skírdegi,“ segir Halldór Bragason,
einn af forsvarsmönnum Blúshátíðar
í Reykjavík. Halldór segir að hver
einasta borg með sjálfsvirðingu haldi
blúshátíð. En tilgangur þeirra sé að
stuðla að friði og kynna blús sem
tónlist og menningu sem stuðli að
jafnrétti milli manna og dragi úr
kynþáttafordómum.
Blúsdagur til heiðurs vorinu
„Blúsinn er móðurhjarta dægur-
tónlistar. Takturinn í blúsi kallast
shuffle sem er eins og hjartsláttur
móður, en það er það fyrsta sem
barn í móðurkviði heyrir. Þeir sem
spila blús verða að spila með hjart-
anum og þeir sem opna hjarta sitt
njóta þess betur að hlusta á blús,“
segir Halldór sem bætir við hátíðin
sem haldin er í 16. sinn byrji á laug-
ardaginn með Blúsdeginum til heið-
urs vorinu. Skrúðganga leggi af stað
frá styttu Leifs Eiríkssonar niður
Skólavörðustíg. Fremstir í flokki fari
ökuklúbburinn Krúser og á eftir
þeim Lúðrasveitin Svanur. Á leiðinni
megi búast við blúsjammi.
„Hátíðin verður sett á Skólavörðu-
stígnum fyrir framan Ostabúðina
þar sem tilkynnt verður um val á
heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavík-
ur 2019 og kveikt upp í grillinu við
óma lifandi blústónlistar,“ segir
Halldór sem bendir á að samkvæmt
vana verði blústónleikar á Borgar-
bókasafninu kl. 16. Þar muni hann
spila ásamt Þorleifi Gauki munn-
hörpuleikara. Það komi svo í ljós
hverjir aðrir stígi á stokk enda hafi
þessir tónleikar alltaf verið músík-
ölsk óvissuferð.
„Blúsfélag Reykjavíkur sem
stendur að hátíðinni hefur átt gæfu-
ríkt samstarf við Borgarbókasafnið,
RÚV, Reykjavíkurborg, Skólavörðu-
stígs-samtökin, Hilton Reykjavík
Nordica, tónlistarmenn, ótal marga
sjálfboðaliða og aðra,“ segir Halldór
en Blúshátíðin sjálf hefst á fyrsta
kvöldi af þremur, þriðjudagskvöldið
16. apríl þegar nýkrýnt Blúsaðasta
band Músíktilrauna 2019, Stefán
Þormar, hefji hátíðina með látum.
Halldór segir að það sanni og sýni að
blúsinn lifi góðu lífi hjá unga fólkinu.
Ferðalag handan stjarnanna
„Davíð Þór Jónsson, Guðmundur
Pétursson og Þorleifur Gaukur Dav-
íðsson flytja blúsbræðinginn Fanta-
sy Overture fyrir hlé. Þeir segja
sjálfir að enginn megi missa af ferða-
lagi sem verði handan stjarnanna,“
segir Halldór og bætir við að gestir
hátíðarinnar eigi von á góðu þegar
Emil Arvidsson, leiðtogi hljómsveit-
arinnar Emil & The Ecstatics taki
við eftir hlé ásamt vini sínum Erik
Qvick, Þorgrími Jónssyni og Vigni
Stefánssyni. Aðalnúmer miðviku-
dagsins, hin lifandi goðsögn Joe Lou-
is Walker, muni stíga á svið með
Emil og félögum og taka við kyndl-
inum.
„Það er mikill fengur að fá
Grammy og Blues Music Award
verðlaunaþegann Joe Louis Walker
loksins til landsins. Walker sem er
meðal virtustu blústónlistarmanna
samtímans og eftirsóttur á blúshá-
tíðum um allan heim mun spila með
strákunum í Blue Ice Band. Á undan
Walker spila Strákarnir hans Sæv-
ars,“ segir Halldór sem bætir við að
á lokakvöldinu á skírdag haldi Vinir
Dóra upp á 30 ára starfsafmæli með
sannkallaðri blúsveislu. Halldór
ásamt Guðmundi Péturssyni, Jóni
Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni
bjóði fjölda gesta á svið. Halldór seg-
ir að partýið verði væntanlega seint
toppað. Útvarpað verður í beint á
Rás 2. en Vinir Dóra komu fyrst
fram á tónleikum sem sendir voru út
á Rás 2 fyrir 30 árum.
„Hver veit nema þetta verði í síð-
asta sinn sem Vinir Dóra spila á
blúshátíð,“ segir Halldór en með
bandinu koma fram m.a. Andrea
Gylfadóttir, Davíð Þór Jónsson, Þor-
leif Gaukur Davíðsson, Rubin Pol-
lock og Pétur Tyrfingsson. Uncle
John jr. er fyrstur á svið á skírdags-
kvöld og á eftir honum spilar GGblús
með Guðmundi Jónssyni og Guð-
mundi Gunnlaugssyni.
Halldór segir að allt geti gerst í
klúbbi Blúshátíðar eftir stór-
tónleikana. Hægt er að kaupa blús-
miða á alla viðburði hátíðarinnar eða
á stök kvöld á midi.is eða við inn-
ganginn. Allar upplýsingar er að
finna á www.blues.is
Morgunblaðið/Kristinn
Stemning Halldór Bragason djammar í skrúðgöngu Blúsdagsins 2018.
Blúshátíð 2019 hefst á laugardaginn og lýkur ekki fyrr en á fimmtudag.
Goðsögn Grammy og Blues Music Award verðlaunþeginn Joe Louis Walker
spilar á Blúshátíð þriðjudags- og miðvikudagskvöld á Hilton Nordica.
Blús móðurhjarta dægurtónlistar
Joe Louis Walker á Blúshátíð í Reykjavík 30 ára starfsafmæli Vina Dóra Músíkölsk óvissuferð
Rætur nefnist sýning á verkum
Sonju Margrétar Ólafsdóttur sem
opnuð verður í Skoti Ljósmynda-
safns Reykjavíkur í dag kl. 16.
„Sjálfsmynd okkar er byggð á þeim
rótum sem við skjótum í upphafi lífs-
ferils okkar. Rætur veita plöntum
festu í jarðveginum, sjá þeim fyrir
næringu og tryggja að jurtin fjúki
ekki burt. Við eldumst og þroskumst
í takt við tímann og árstíðir sem
koma og fara. Landslag og staðir
hafa mótandi áhrif á sjálfsmynd
okkar og eru þannig partur af sjálf-
inu,“ skrifa Sonja um sýninguna í til-
kynningu. Hennar rætur liggi í
Hrunamannahreppi og Rætur fjalli
um æskuslóðir hennar þar, umhverf-
ið, landslagið og fjölskyldu hennar.
„Ég er af fjórðu kynslóð kvenna sem
ólust upp í hreppnum og eiga það
sameiginlegt að hafa stigið sín
fyrstu skref í sama landslaginu,“
skrifar Sonja. Hún útskrifaðist í jan-
úar sl. frá Ljósmyndaskólanum en
áður stundaði hún nám við Háskóla
Íslands og útskrifaðist þaðan með
B.A.-gráðu í listfræði árið 2014.
Rætur Sonju Margrétar í Skotinu
Æskuslóðir Ein af ljósmyndum Sonju.
Dómnefnd al-
þjóðlegu Man
Booker bók-
menntaverð-
launanna hefur
komist að þeirri
niðurstöðu að
bestu þýddu
skáldsögur árs-
ins 2018 séu
flestar eftir kon-
ur. Verðlaunin eru veitt árlega fyr-
ir bestu þýddu skáldsöguna sem
kom út árið á undan á Bretlandi eða
Írlandi og hafa sex bækur nú verið
valdar á stuttlista tilnefndra en á
langa listanum voru þær 13. Til-
kynnt verður um verðlaunahafa
eftir sex vikur. Svo vill til að fimm
bækur af sex voru skrifaðar af kon-
um og allar sex voru þýddar af kon-
um. Bækurnar voru skrifaðar á
fimm tungumálum, þ.e. arabísku,
frönsku, þýsku, pólsku og spænsku
og eru frá fimm löndum og þremur
heimsálfum. Olga Tokarczuk hlaut
verðlaunin í fyrra fyrir skáldsög-
una Flights og er aftur tilnefnd í ár,
fyrir Drive Your Plow Over the
Bones of the Dead.
Fimm bækur af sex skrifaðar af konum
Olga Tokarczuk
Varahlutir í allar
Cummins vélar
Fljót og áreiðanleg þjónusta
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík