Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskilti
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Seint á síðasta ári sendu þeir félag-
arnir Pjetur Stefánsson og Sig-
urður Bjóla frá sér breiðskífuna
Plasteyjan og næstkomandi laugar-
dag, alþjóðlega plötubúðadaginn,
gefa þeir út smáskífu með tveimur
lögum af plötunni sem fáanleg verð-
ur í Smekkleysubúðinni á Skóla-
vörðustíg. Sú smáskífa er aðeins
gefin út í fimmtán eintökum og um-
slagið handskreytt af Pjetri á þann
hátt að umslögin fimmtán mynda
saman eins stóra mynd.
Rjóminn af ákveðinni kynslóð
Á Plasteyjunni fengu þeir félagar
til liðs við sig einvalalið; meðal
hljóðfæraleikara eru Ásgeir Ósk-
arsson, Björgvin Gíslason, Har-
aldur Þorsteinsson og Sigurgeir
Sigmundsson, svo dæmi séu tekin,
og Ragnhildur Gísladóttir syngur
með í þremur lögum.
Þegar ég nefni það við þá að þrátt
fyrir gestafjöld falli allt svo vel sam-
an á skífunni að því sé líkast að þræ-
læfð hljómsveit sé að spila svara
Pjetur því til að ekki sé að undra:
„Ef lífsverkið er skoðað þá höfum
við Sigurður alltaf unnið saman. Ég
hef aldrei gert neitt nema hann sé
nálægt eða einhver af þessum
strákum sem eru með á þessari
plötu.
Þetta er ákveðin kynslóð, rjóminn
af ákveðinni kynslóð þar sem vin-
skapurinn hefur orðið yfirsterkari
fígúruganginum, ef það má orða það
þannig, það eru allir að lúta lögmál-
inu.“
„Svo þarf líka voða lítið að út-
skýra fyrir þessum drengjum,“
bætir Sigurður við, „maður leyfir
þeim að heyra lag og þeir koma
strax með eitthvað sem þeir vilja
leggja til og oftast er það svo notað.
En ekki alltaf.“
„Við getum verið ákaflega þakk-
látir fyrir þetta, því það undir-
strikar hvað tónlistin er í eðli sínu
göfug, hún er svo gefandi,“ segir
Pjetur. „Án andans erum við bara
hylki og það er andinn sem er svo
góður í þessum hóp. Þessir vinir
okkar sem búa þessa plötu með okk-
ur eru bara svo miklir andans
menn.“
„Þetta liggur við að vera bræðra-
lag, klan,“ segir Sigurður og Pjetur
tekur undir það: „Það er ágætt að
orða það þannig, en þetta er líka það
að eiga sér rætur á einhverjum stað
og það eru margskonar afbrigði af
því.
Íslendingar skilja voða vel sveita-
afbrigðið en við erum hinsvegar
staddir í tónlistarafbrigðinu, menn-
ingarlegum afkima þar sem menn
geta deilt með sér ákveðinni hug-
myndafræði sem þeir tileinkuðu sér
þegar þeir voru ungir menn. Það er
mjög dýrmætt að eiga samtíma-
menn í listum.“
Rosahvellur í rokksögunni
— Þið njótið þess að hafa rokk-
söguna alla undir, að sjá samhengið
í henni og þróunina.
„Þú kemur þar inn á skemmti-
legan punkt,“ segir Pjetur. „Þegar
við Sigurður fórum að gera þessa
plötu þá var ég búinn að skrifa
sjónvarpshandrit og hugleiðingar
um stöðu hljómsveitarinnar Tóna í
rokksögunni. Þar var rosahvellur í
rokksögunni, ég man ég sá Tóna
þegar ég var lítill strákur og skynj-
aði eittvað rosalega töff, þetta var
öðruvísi heldur en til dæmis að sjá
Hljóma. Ég fór að kanna málið og
komst að því að Tónar voru hljóm-
sveitin sem Hljómar spiluðu í pásu
hjá þegar þeir komu fyrst til
Reykjavíkur. Þetta vitum við og
þetta vissum við sem fórum í þessa
plötu, enda má segja það að að
mörgu leyti, út frá tónlistar-
sögulegu sjónarmiði, sé hún ákveð-
inn vegvísir inn í fortíðina og inn í
framtíðina líka. Hún er á svipuðum
stað og þegar Laxness skrifaði
Gerplu.“
— Þytur sögunnar heyrist, en
þetta er þó nútímaleg plata.
„Þetta er nákvæmlega það sem
Laxness var að gera með Gerplu,“
heldur Pétur áfram, „hann tók epík-
ina, við tökum tónlistarformið, hann
tók sagnaarfinn, við tökum tónlist-
arsagnaarfinn. Tónlistarsagnaarf-
urinn er töluvert sterkur í Íslend-
ingum, en okkur yfirsést oft
mikilvægi tónlistararfsins og sam-
tengingin og jarðsambandið við
hann er textagerðin.“
Sprottið af vinskap
Eins og nefnt er spannar samstarf
þeirra Pjeturs og Sigurður áratugi.
Líkt og margt sem þeir hafa brallað
saman sprettur Plasteyjan upp af
vinskap, eins og þeir rekja söguna:
„Við ákváðum að það væri kominn
tími til að gera plötu,“ segir Sig-
urður, „við höfðum lítið hist í svolítið
langan tíma og okkur fannst það
leiðinlegt. Okkur fannst því vera lag
að fara að hittast reglulega og gá
hvað gerðist. Úr varð að við hittumst
vikulega í einhver ár og platan varð
bara til.“ „Ég fékk reyndar hjarta-
áfall í millitíðinni,“ skýtur Pjetur til
að skýra af hverju vinnan tók sinn
tíma, en Sigurður heldur áfram:
„Það voru engar sérstakar pælingar
á bak við þetta, platan varð bara til.“
„Það er ljóst að Sigurður er af-
bragðs tónskáld,“ segir Pjetur, og
Sigurður svarar að bragði: „Pjetur
er afbragðs tónskáld líka.“ „Sigurður
er hæfileikaríkasti maður sem ég hef
kynnst,“ heldur Pétur áfram, „það er
bara þannig. Þessi plata er, eins og
góður maður benti mér á, gamlir
hippar að rétta úr sér, en það er líka
ákveðinn grundvöllur til að kynna
þessa plötu fyrir nýrri kynslóð. Ég
er stoltastur yfir því vað platan er
heilsteypt út frá faglegum grunni.
Við stöndum með sjálfum okkur og
það er enginn afsláttur, alveg út í
masteringuna, alveg út í það þegar
maður bankar uppá hjá Ása og biður
hann um að dreifa plötunni.“
„Ég tek undir það,“ segir Sig-
urður. „Ein af sterkustu stoðum
plötunnar er hvað við erum einlægir
og gáfum aldrei neinn afslátt af því.“
„Við þurftum að slípa hvor annan
rosalega til,“ segir Pjetur, en Sig-
urður heldur áfram: „Við gerðum ná-
kvæmlega það sem okkur langaði að
gera. Við erum ekki að gefa þetta út
til þess að verða frægir eða ríkir, við
erum búnir að því, orðnir frægir og
orðnir ríkir, þannig að við gerðum
bara það sem okkur langaði virkilega
til að gera og það er svo gaman. Við
vorum ekki að reyna að gera neitt,
platan bara kom.“
Tónlistin er gefandi og göfug
Smáskífa af Plasteyjunni í boði í takmörkuðu upplagi á alþjóðlegum plötubúðardegi Pjetur Stef-
ánsson og Sigurður Bjóla segja plötuna sprottna af vinskap og hún sé vegvísir inn í fortíð og framtíð
Morgunblaðið/Eggert
Vinskapur Pjetur Stefánsson og Sigurður Bjóla ákváðu að tími væri til kominn að gera plötu saman.
Enska leikkonan Emma Corrin hef-
ur verið ráðin í hlutverk Díönu
prinsessu af Wales í fjórðu þáttaröð
hinna vinsælu þátta The Crown þar
sem rakin er saga bresku konungs-
fjölskyldunnar á síðustu öld. Dag-
blaðið The Guardian greinir frá því
að leikkonan hafi hrifið viðstadda
upp úr skónum í leikprufum.
Streymisveitan Netflix sýnir þætt-
ina og hefur staðfest ráðningu
Corrin og greint frá því að tökur á
þáttaröðinni hefjist á þessu ári. Þá
er haft eftir Corrin að hún sé yfir
sig spennt yfir því að leika prinsess-
una og telji það mikinn heiður.
Corrin er svo til óþekkt leikkona og
á mjög stuttan feril að baki.
Emma Corrin leikur Díönu prinsessu
Á uppleið Emma Corrin hefur tekið að
sér hlutverk Díönu prinsessu í The Crown.
Streymisveitan Netflix greindi frá
því í fyrradag að hún myndi fresta
sýningum á nýrri kvikmynd, Other-
hood, sem leikkonan Felicity Huff-
man fer með eitt af aðalhlutverk-
unum í, fáeinum klukkustundum
eftir að Huffman játaði sök í há-
skólamálinu sem fjölmiðlar hafa
fjallað um á undanförnum vikum.
Málið snýst um að Huffman og fleiri
þekktir og auðugir einstaklingar í
Bandaríkjunum greiddu óprúttnum
náunga fyrir að falsa einkunnir
barna þeirra og greiða þeim þannig
leið inn í virta háskóla. Frumsýna
átti Otherhood 26. apríl en ekki
liggur nú fyrir hvenær myndin
verður aðgengileg á streymisveit-
unni. Huffman
var handtekin
12. mars sl. fyrir
aðild sína að há-
skólamálinu en
henni er gert að
sök að hafa
greitt 15.000
dollara fyrir
hærri einkunnir
dóttur sinnar í
samræmdum prófum, svokölluðum
SAT. Otherhood er ekki eina mynd-
in sem Huffman leikur í fyrir Net-
flix því hún leikur einnig í þáttaröð-
inni When They See Us. Enn
stendur til að hefja sýningar á
henni 31. maí.
Netflix frestar vegna brots Huffman
Felicity Huffman