Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 76

Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 76
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hótel Kattholt Kattaeigendum hefur staðið gistiþjónusta til boða frá því Kattholt var opnað og nýtur hún mikilla vinsælda, ekki síst á þeim tímum árs er flestir bregða sér af bæ. Um páskana bíða hótelgesta fádæma hátíðahöld. Snorri Másson snorrim@mbl.is Fjöldinn allur af kattaeigendum leitar á náðir Kattholts fyrir pössun um páskana og nú ber svo við að uppbókað er á Hótel Kattholti í Ár- bænum sem oftar þegar hátíð fer að höndum. Nú var uppbókað í kisu- pössun um svipað leyti og venju- lega. Og nokkrir eru á biðlista, sem vonast er til að geta komið fyrir þegar þar að kemur. „Þetta er mest akkúrat núna, þegar fólk er á ferðalögum,“ segir Halldóra Snorradóttir, rekstrar- stjóri Kattholts. Hún segir að fólk verði að bóka með mánaðarfyrir- vara til þess að ná plássi yfir há- annatímann, aðsóknin sé mikil yfir páska, sumar og jól. „Best er að bóka gistingu um leið og fólk er bú- ið að ganga frá flugfarinu,“ segir Halldóra og bætir því við að í ár hafi nokkuð verið um breytingar á dagsetningum hjá gestum, því eig- endur þeirra þurftu að breyta flug- miðum sínum í kjölfar falls WOW air. Kettirnir mismunandi týpur Ekki stendur til að stækka Hótel Kattholt enda framboð alla jafna í takt við eftirspurn árið um kring, fyrir utan þessa tíma. Sömuleiðis segir Halldóra að gott sé að halda fjöldanum innan ákveðinna marka, svo dýrunum líði áfram vel, sem sé aðalmarkmiðið. Þá sé hægt að leita til annarra hótela, t.d. í Garðabæ og á Suðurnesjum. Flestir kettirnir sem rata inn á hótelið nú um páskana eru fasta- gestir en einnig er nokkuð um ný- græðinga. Halldóra segir að mælt sé með því að kettirnir séu að ein- hverju leyti vandir við veruna á hót- elinu og að fyrstu skiptin þeirra sé dvölin skemmri frekar en lengri. Hættulaust sé hins vegar að senda ketti í gistingu, jafnvel í mánuð, ef þeir eru vanir gestir. Kettirnir fara að koma inn um miðja næstu viku, miðvikudaginn fyrir skírdag. Þeir eru flestir í gist- ingu yfir helgi. Sumir kettir eru ein- rænni en aðrir og fá meira næði en hinir sem eru hressir og kátir og til í að vera í kringum aðra. „Sumar kisurnar vilja meira stuð en hinar og það er voða mismunandi hvað hentar þeim,“ segir Halldóra. Að hennar sögn verður páska- dagskráin hin hátíðlegasta; soðinn verður þorskur og þeir sem mega fá blautmat og nammi. Og stemningin verður eftir því á þessu einstaka hóteli, sem er eins og Halldóra klykkir út með „eina hótel á landinu þar sem gerð er krafa um að gest- irnir séu bæði teknir úr sambandi og bólusettir áður en þeir koma“. Valinn köttur í hverju rúmi á Hótel Kattholti  Iðulega uppbókað á stórhátíðum  Bókunum breytt vegna WOW ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 SÓFADÖGUM LÝKUR 15. APRÍL 20-50% AF ÖLLUM SÓFUM HÆGINDASTÓLUM OG SVEFNSÓFUM Kristín Arngrímsdóttir myndlistar- maður heldur í dag kl. 17-18.30 ör- námskeið í andlitsteikningu í Borg- arbókasafninu í Árbæ. Farið verður yfir skýringarmynd sem sýnir hlut- föll í andliti og mismunandi höfuð- form, hlutföllin verða skoðuð og síðan æfð teikning í samræmi við það. Kristín er með teiknikennara- próf og hefur starfað að myndlist og skrifað og myndskreytt barna- bækur. Kennir grunnatriði í andlitsteikningu FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Einu ári eftir að Afturelding hafnaði í botnsæti 1. deildar kvenna í hand- knattleik stendur félagið uppi sem sigurvegari í deildinni og spilar á meðal þeirra bestu næsta vetur. „Markmiðið verður að treysta stöðu Aftureldingar í efstu deild kvenna. Það er allt hægt. Við ætlum ekki að fara upp til þess eins að falla strax aftur,“ segir Haraldur Þorvarðar- son, þjálfari liðsins. »63 Fóru af botninum og á toppinn á einu ári ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Sigurjón Sighvatsson kvikmynda- framleiðandi hefur tryggt sér rétt- inn á því að kvikmynda bók Ásdísar Höllu Bragadóttur, Tvísögu, sem kom út árið 2016. Sigurjón hefur framleitt tugi kvikmynda og sjón- varpsþátta og segir í tilkynningu um bók Ásdísar að sannleikurinn sé ævinlega lygilegri en nokkur skáld- skapur og að bók Ásdísar sé líka einstök fyrir ein- lægni hennar og hversu opinská hún sé. Í bók- inni fjallar Ás- dís um flókin og erfið fjöl- skyldumál og samband sitt við móður sína. Sigurjón tryggir sér Tvísögu Ásdísar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.