Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 4

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 4
Fjölskyldan í sínu fínasta pússi á brúðkaupsdegi Önnu og Jónasar. Anna og Jónas eru ein- staklega fallegt par. Þau kynntust óvænt þegar hann heimsótti Ísland og gisti hjá henni á Airbnb. Þá hafði Anna verið einhleyp í 20 ár. A nna kynntist eiginmanni sínum þann 5. maí árið 2017. Hún var ekki beint að leita sér að manni, enda hafði hún verið lengi ein, en hún var tilbúin að hitta hinn eina rétta – og hafði látið veröldina vita af því. „Ég er mjög lífsglöð í eðli mínu og já- kvæð og ég er trúuð. Ég sat heima hjá mér á þessum tíma og Jónas eiginmaður minn sat á Norður-Spáni að plana ferð til Amst- erdam að hitta vini sína. Ég hugsaði með mér allt í einu: Hvað með þennan mann sem Guð ætlar mér? Hvar skyldi hann vera. Ég man að ég kallaði svona út í loftið heima hjá mér: Eiginmaður hvar ertu? – Er ekki tími til að þú farir að koma?“ Á sama tíma sat Jónas að panta flug til Amsterdam en ákveður skyndilega að breyta ferðinni og fara til Íslands. Hann hafði dreymt landið þegar hann var ungur maður og hafði lofað sér að koma til Íslands áður en langt liði. „Jónas hefur greinilega fengið skilaboðin mín því hann pantar flug og síðan gistingu hjá mér í gegnum Airbnb. Hann sagði mér seinna að hann hefði gert athugun á netinu á íbúðinni og mér sem leigjenda, því hann hélt að þetta væri of gott til að vera satt. Ég gerði það einnig og leist í fyrstu ekki á að hann hafði engin meðmæli með sér á forritinu.“ Var þetta ást við fyrstu sýn? „Nei alls ekki, en við náðum strax mjög vel saman sem vinir. Hann hafði planað að ferðast um landið þessa viku sem hann ætl- aði að dvelja hér, en það varð lítið um ferðalög því við enduðum á að vera saman alla vikuna.“ Anna segir að þeir sem þekkja til hennar telji atburðarásina mjög áhugaverða og Kynntist eiginmanninum á airbnb Anna Sigurbjörg Þórisdóttir starfar í verslun og sem hárgreiðslukona. Hún er ein af glæsileg- ustu konum landsins að margra mati, algjörlega tímalaus og virðist ekki eldast með árunum. Anna var búin að vera 20 ár ein áður en hún kynntist eiginmanni sínum, honum Jónasi, á Airbnb. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is  SJÁ SÍÐU 6 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.