Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Sérhæfum okkur í hreinsun á viðkvæmum fatnaði „Það var auðveldara fyrir okkur að halda brúðkaup á Íslandi heldur en að fá 130 gesti til Noregs. Það að vera með viðburðinn í náttúrulegu umhverfi var táknrænt fyr- ir okkur, þar sem við erum mikið fyrir náttúruna, blóm, tré og allt sem því fylgir að gera rómantískt náttúrubrúð- kaup.“ Brúðkaup verður aldrei fullkomið Heiðdís og Aron hafa verið saman frá því þau voru tán- ingar og eru fjölskyldur þeirra mjög samrýmdar. Þegar Heiðdís lýsir undirbúningnum þá er ljóst að brúðkaup er stórframleiðsla þar sem hvert einasta atriði verður að vera vel skipulagt. „Ég er sammála því en hins vegar má aldrei missa sjónar á því sem er aðalatriðið og það er athöfnin sjálf og að vera í hjónabandi. Það að vera hjón í dag, að hafa manneskju sér við hlið sem mun vera til staðar fyrir þig sama hvað kemur upp á í lífinu er ólýsanleg tilfinning og eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um. Allt annað er aukaatriði. Ég þurfti að hafa æðruleysi fyrir þeim atrið- um sem eftir stóðu á planinu og er það kannski stóri lær- dómurinn sem maður tekur út úr þessu öllu. Brúðkaups- dagurinn fer aldrei 100% eftir áætlun sama hversu mikið maður skipuleggur hann. En dagurinn verður fullkominn engu að síður.“ Grilluðu 20 lambalæri Heiðdís og Aron vildu bjóða upp á grilluð lambalæri og voru 20 læri grilluð á brúðkaupsdaginn ofan í gestina. „Um leið og við tilkynntum fjölskyldunni um daginn, þá fór af stað atburðarás þar sem okkar nánustu byrjuðu að bjóðast til að aðstoða okkur. Systir pabba sem dæmi vann í blómabúð og hún aðstoðaði við skreytingar. Pabbi smíð- aði bekki og borð fyrir pallinn úr vörubrettum. Sumir gerðu salöt, aðrir kartöflur og segja má að veislan hafi verið þannig að hver og einn sem að henni komu voru að gera réttinn sem þeir voru bestir í. Ég er sem dæmi mik- ið fyrir að baka. Ég bakaði brúðarkökuna sem var góm- sæt súkkulaðikaka með berjum og rjóma. Aron smíðaði tvö stór tunnugrill sem við notuðum til að grilla á. Sumir úr fjölskyldunni söfnuðu vínflöskum sem við notuðum undir blómavasa, við vorum með krukkur undir for- drykkina og allskonar sniðuga hluti sem gerði veisluna að einmitt þessari skemmtilegu samvinnu okkar allra.“ Heiðdís segir að með því að gera hlutina svona hafi þau sparað heilmikinn pening. „Með því að hafa mest allt heimagert, komumst við upp með að nota helmingi minni pening en áætlað var í sjálft brúðkaupið. Með þessu átt- um við pening sem við erum að nýta okkur í húsakaup. Það hefðum við ekki getað gert nema að sníða okkur stakk eftir vexti þegar kom að brúðkaupinu.“ H eiðdís er búsett í Noregi þar sem hún stundar nám í leikskólafræðum. Heiðdís giftist æskuástinni sinni, Aroni Ásbirni Sigurðarsyni, í fyrra. Nánar tiltekið þann 18.08. 2018. Heiðdís veit fátt skemmtilegra en að tala um brúðkaup og undirbúa brúðkaup. Um þessar mundir er hún á leið- inni til Tromsø að aðstoða vinkonu sína við undirbúning brúðkaups sem haldið verður í september. Hún kemur einnig að undirbúningi hjá annarri vin- konu sinni á næsta ári. Að mörgu að huga fyrir brúðkaup Kannski eru brúðkaup að mati Heiðdísar samvinnu- verkefni? ,,Já, það má segja það. Eftir að hafa farið í gegnum þá reynslu að gifta mig sjálf, fékk ég þennan gífurlega áhuga á brúðkaupum. Veislan sjálf og stóri dagurinn er eitt og dagurinn okkar var æðislegur. Undirbúningurinn var ekki síður áhugavert ferli og var ég í um það bil eitt ár að vinna að mínu brúðkaupi. Þau giftu sig í Mosfellsdal, veislan var á Stokkseyri og allt sem boðið var upp á í veislunni var ýmist heimagert eða búið til af vinum og fjölskyldunni. Gleymdi töskunni með skarti og skóm Heiðdís segir að brúðkaupsdagurinn hafi gengið vel en undirbúningurinn sé mikil vinna. „Við vorum í þrjár vik- ur á landinu fyrir athöfnina að undirbúa okkur og lær- dómurinn var talsverður, meðal annars um það sem get- ur farið úrskeiðis sama hvað maður planar. Við vorum með allt okkar dót í töskum og sem dæmi þá gleymdum við einni töskunni okkar, sem gerði það að verkum að mamma mín þurfti að versla meðal annars nýtt krullu- járn og nærföt fyrir mig klukkan fjögur, nóttina fyrir brúðkaupið. En það var allt í lagi, dagurinn var full- komlega ófullkominn og maðurinn minn minnti mig á að muna stóru myndina. Við vorum að játast hvort öðru í hjónaband með þeim sem okkur þykir vænst um.“ „Best af öllu að þið verðið hjón“ Heiðdís Hrönn Dal veit fátt skemmtilegra en að undirbúa brúðkaup. Hún segir brúðkaupsdaginn einstakan, að undirbúningurinn eigi að vera skemmtilegur og síðan þurfi alltaf að gera ráð fyrir að eitthvað fari úrskeiðis. Þess vegna sé best að setja athyglina á aðalatriðið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Heiðdís Hrönn og Aron Ásbjörn kynntust þegar þau voru unglingar og giftu sig eftir 10 ára samband. · Gefðu þér góðan tíma í að undirbúa brúðkaupið · Gerðu ráð fyrir að dagurinn verði ófullkomlega fullkominn · Biddu um aðstoð · Skrifaðu áætlunina þína niður í brúðkaupsbók · Finndu hugmyndir og límdu í bókina · Settu niður tímaramma fyrir allt á brúðkaups- daginn · Gerðu símaskrá með númerum hjá þeim sem koma að brúðkaupsdeginum · Mundu að anda · Mundu að brosa · Mundu að þetta er þinn dagur · Forðastu að gera ráð fyrir því að allt verði full- komið · Forðastu að gestir séu með símann uppi í kirkj- unni · Forðist að eyða öllum peningunum ykkar í brúð- kaupið Að lokum segir Heiðdís að brúðhjón þurfi að hafa það hugfast að nokkrum árum eftir brúð- kaupið muni enginn muna eftir servíettunum, hvort öll glösin voru samstæð eða stólarnir hvítir eða svartir. „Ekki festast í litlu hlutunum, það ert bara þú sem tekur eftir þeim. Það sem skiptir mestu máli er að þið segið bæði já! Njóttu dagsins og mundu að anda, þetta reddast allt og best af öllu – þið verðið hjón.“ Ráðleggingar Heiðdísar og Arons

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.