Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
Sérhæfum
okkur í hreinsun
á viðkvæmum
fatnaði
„Það var auðveldara fyrir okkur að halda brúðkaup á
Íslandi heldur en að fá 130 gesti til Noregs. Það að vera
með viðburðinn í náttúrulegu umhverfi var táknrænt fyr-
ir okkur, þar sem við erum mikið fyrir náttúruna, blóm,
tré og allt sem því fylgir að gera rómantískt náttúrubrúð-
kaup.“
Brúðkaup verður aldrei fullkomið
Heiðdís og Aron hafa verið saman frá því þau voru tán-
ingar og eru fjölskyldur þeirra mjög samrýmdar.
Þegar Heiðdís lýsir undirbúningnum þá er ljóst að
brúðkaup er stórframleiðsla þar sem hvert einasta atriði
verður að vera vel skipulagt.
„Ég er sammála því en hins vegar má aldrei missa
sjónar á því sem er aðalatriðið og það er athöfnin sjálf og
að vera í hjónabandi. Það að vera hjón í dag, að hafa
manneskju sér við hlið sem mun vera til staðar fyrir þig
sama hvað kemur upp á í lífinu er ólýsanleg tilfinning og
eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um. Allt annað er
aukaatriði. Ég þurfti að hafa æðruleysi fyrir þeim atrið-
um sem eftir stóðu á planinu og er það kannski stóri lær-
dómurinn sem maður tekur út úr þessu öllu. Brúðkaups-
dagurinn fer aldrei 100% eftir áætlun sama hversu mikið
maður skipuleggur hann. En dagurinn verður fullkominn
engu að síður.“
Grilluðu 20 lambalæri
Heiðdís og Aron vildu bjóða upp á grilluð lambalæri og
voru 20 læri grilluð á brúðkaupsdaginn ofan í gestina.
„Um leið og við tilkynntum fjölskyldunni um daginn, þá
fór af stað atburðarás þar sem okkar nánustu byrjuðu að
bjóðast til að aðstoða okkur. Systir pabba sem dæmi vann
í blómabúð og hún aðstoðaði við skreytingar. Pabbi smíð-
aði bekki og borð fyrir pallinn úr vörubrettum. Sumir
gerðu salöt, aðrir kartöflur og segja má að veislan hafi
verið þannig að hver og einn sem að henni komu voru að
gera réttinn sem þeir voru bestir í. Ég er sem dæmi mik-
ið fyrir að baka. Ég bakaði brúðarkökuna sem var góm-
sæt súkkulaðikaka með berjum og rjóma. Aron smíðaði
tvö stór tunnugrill sem við notuðum til að grilla á. Sumir
úr fjölskyldunni söfnuðu vínflöskum sem við notuðum
undir blómavasa, við vorum með krukkur undir for-
drykkina og allskonar sniðuga hluti sem gerði veisluna að
einmitt þessari skemmtilegu samvinnu okkar allra.“
Heiðdís segir að með því að gera hlutina svona hafi þau
sparað heilmikinn pening. „Með því að hafa mest allt
heimagert, komumst við upp með að nota helmingi minni
pening en áætlað var í sjálft brúðkaupið. Með þessu átt-
um við pening sem við erum að nýta okkur í húsakaup.
Það hefðum við ekki getað gert nema að sníða okkur
stakk eftir vexti þegar kom að brúðkaupinu.“
H
eiðdís er búsett í Noregi þar sem hún
stundar nám í leikskólafræðum. Heiðdís
giftist æskuástinni sinni, Aroni Ásbirni
Sigurðarsyni, í fyrra. Nánar tiltekið þann
18.08. 2018.
Heiðdís veit fátt skemmtilegra en að tala um brúðkaup
og undirbúa brúðkaup. Um þessar mundir er hún á leið-
inni til Tromsø að aðstoða vinkonu sína við undirbúning
brúðkaups sem haldið verður í september.
Hún kemur einnig að undirbúningi hjá annarri vin-
konu sinni á næsta ári.
Að mörgu að huga fyrir brúðkaup
Kannski eru brúðkaup að mati Heiðdísar samvinnu-
verkefni?
,,Já, það má segja það. Eftir að hafa farið í gegnum þá
reynslu að gifta mig sjálf, fékk ég þennan gífurlega
áhuga á brúðkaupum. Veislan sjálf og stóri dagurinn er
eitt og dagurinn okkar var æðislegur. Undirbúningurinn
var ekki síður áhugavert ferli og var ég í um það bil eitt
ár að vinna að mínu brúðkaupi.
Þau giftu sig í Mosfellsdal, veislan var á Stokkseyri og
allt sem boðið var upp á í veislunni var ýmist heimagert
eða búið til af vinum og fjölskyldunni.
Gleymdi töskunni með skarti og skóm
Heiðdís segir að brúðkaupsdagurinn hafi gengið vel en
undirbúningurinn sé mikil vinna. „Við vorum í þrjár vik-
ur á landinu fyrir athöfnina að undirbúa okkur og lær-
dómurinn var talsverður, meðal annars um það sem get-
ur farið úrskeiðis sama hvað maður planar. Við vorum
með allt okkar dót í töskum og sem dæmi þá gleymdum
við einni töskunni okkar, sem gerði það að verkum að
mamma mín þurfti að versla meðal annars nýtt krullu-
járn og nærföt fyrir mig klukkan fjögur, nóttina fyrir
brúðkaupið. En það var allt í lagi, dagurinn var full-
komlega ófullkominn og maðurinn minn minnti mig á að
muna stóru myndina. Við vorum að játast hvort öðru í
hjónaband með þeim sem okkur þykir vænst um.“
„Best af
öllu að þið
verðið hjón“
Heiðdís Hrönn Dal veit fátt skemmtilegra en að undirbúa brúðkaup. Hún segir brúðkaupsdaginn einstakan, að undirbúningurinn eigi
að vera skemmtilegur og síðan þurfi alltaf að gera ráð fyrir að eitthvað fari úrskeiðis. Þess vegna sé best að setja athyglina á aðalatriðið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Heiðdís Hrönn og Aron
Ásbjörn kynntust þegar
þau voru unglingar og giftu
sig eftir 10 ára samband.
· Gefðu þér góðan tíma í að undirbúa brúðkaupið
· Gerðu ráð fyrir að dagurinn verði ófullkomlega
fullkominn
· Biddu um aðstoð
· Skrifaðu áætlunina þína niður í brúðkaupsbók
· Finndu hugmyndir og límdu í bókina
· Settu niður tímaramma fyrir allt á brúðkaups-
daginn
· Gerðu símaskrá með númerum hjá þeim sem
koma að brúðkaupsdeginum
· Mundu að anda
· Mundu að brosa
· Mundu að þetta er þinn dagur
· Forðastu að gera ráð fyrir því að allt verði full-
komið
· Forðastu að gestir séu með símann uppi í kirkj-
unni
· Forðist að eyða öllum peningunum ykkar í brúð-
kaupið
Að lokum segir Heiðdís að brúðhjón þurfi að
hafa það hugfast að nokkrum árum eftir brúð-
kaupið muni enginn muna eftir servíettunum,
hvort öll glösin voru samstæð eða stólarnir hvítir
eða svartir.
„Ekki festast í litlu hlutunum, það ert bara þú
sem tekur eftir þeim. Það sem skiptir mestu máli
er að þið segið bæði já! Njóttu dagsins og mundu
að anda, þetta reddast allt og best af öllu – þið
verðið hjón.“
Ráðleggingar
Heiðdísar og Arons