Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Brúðagjafalistar E va Sjöfn er klínískur sálfræðingur og verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík. Hún segir hjónalífið gott líf, þó að hamingjan sé hvorki minni né meiri eftir brúðkaupsdaginn. „Forsenda þess að gifta sig tel ég vera gleði sem að maður finnur með öðrum einstaklingi í hversdagsleik- anum,“ segir hún. Gaman en líka ákveðið álag „Við erum mikið fyrir að halda veislur og því ákváðum við ekki að hafa þetta einfalt og fámennt heldur buðum við mikið af fólki og vildum við gera sem mest sjálf. Við tókum nokkra mánuði í allskonar undirbúning, allt frá því að skreyta krukk- ur í að búa til fyllingu í brúðartertu - skoða sali og finna prest. Ég hefði aldrei viljað sleppa því að hafa stórt brúðkaup en nokkrum dögum fyrir stóra daginn var stundum mikið álag.“ Við giftum okkur í Garðakirkju en erum búsett í Kópavogi. Við fengum fallegan fornbíl að láni frá góðri vinkonu mömmu. Tegund bílsins er Thunderbird frá árinu 1963. Það var mjög skemmtileg upplifun að keyra um á fornbíl og ekki verra að fá að smella nokkrum myndum inni í honum og fyrir utan. Ef fólk hefur aðgang að fornbíl eða einhverjum öðruvísi bíl en þau eru vanalega á þá mæli ég með að grípa það tækifæri.“ Æðruleysi mikilvægt Þar sem Eva Sjöfn starfar sem sálfræðingur segir hún að jafnaðargeð, æðruleysi og hæfilegt kæruleysi sé nauðsynlegt á stóra deginum. „Ég get sagt frá skemmtilegum sögum um það sem getur farið úrskeiðis, en það fatta það vanalega eng- inn nema brúðhjónin sjálf. Sem dæmi vorum við með gasblöðrur sem áttu að fljóta uppi í lofti, en þegar við gengum inn veislusalinn lágu þær all- ar í gólfinu, þar sem við vorum ekki með smáatriðin á hreinu í blöðrumálunum. Eins enduðu dætur okkur á því að ganga inn kirkjugólfið berfættar því að við tókum vitlausa skó. Veislu- gestum datt ekki í hug að þetta ætti ekki að vera svona, þeim fannst þetta vera voða flott. Brúðkaup eiga að vera að mínu mati fullkomlega ófullkomin og maður ætti að reyna að forð- ast að hugsa of mikið út í smáu atriðin.“ Fjárfesta í góðri mynd Eva Sjöfn er ánægð að eiga fallega mynd frá brúðkaups- degi þeirra hjóna og segir að það sé án efa stórt atriði sem vert er að fjárfesta í. „Við vildum líka hafa matinn vel úti lát- inn, enda elskum við góðan mat. Ég mæli með slíku. Góð tón- list skiptir einnig máli. Við fengum frábæran plötusnúð sem er góður vinur okkar og framúrskarandi tónlistarfólk sem söng og spilaði í athöfinni. Þó að það sé hálfgerð klisja þá var þetta einn af bestu dögum lífs míns. Ég veit ekki hvað hægt er að biðja um meira en að hafa fólkið sitt, góðan mat, góða tónlist og vera umvafin ást og hamingju. Minningarnar lifa um einstakan fullkomlega ófullkominn brúðkaupsdag. Ég myndi ekki vilja hafa það neitt öðruvísi.“ Ljósmynd/Lárus Sigurðarson Gaman að vera á fornbíl Eva Sjöfn Helgadóttir sálfræðingur og Matthías Kjartansson verkfræðingur gengu í heilagt hjónaband með það að markmiði að gera fallegan dag einstakan. Þau eru á því að minningar lifi áfram með ljósmyndum. Brúðurin hafði aldrei komið inn í fornbíl fyrir brúðkaupsdaginn og segir það hafi verið óvænt ánægja á sjálfan daginn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Eva Sjöfn er ánægð með þá ákvörðun að fá lánaðan forn- bíl fyrir brúðkaupsdaginn, þar sem fallegar ljósmyndir verða til í gömlum bílum. Brúðarbíllinn var af gerðinni Thunderbird frá árinu 1963.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.