Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 20
V ið giftum okkur í Garðakirkju af því okkur fannst það rétti staðurinn fyrir viðburðinn. Vídalínskirkja kom einnig til greina, enda störfum við mikið í þeirri kirkju. Við hjónin er- um kórstjórar hjá barna- og unglingakórnum ásamt því að vera með gospelkór Jóns Vídal- íns. Eins erum við mikið beðin að syngja í þessum kirkjum, hvort heldur sem er í brúð- kaupum eða jarðarförum,“ segir hún. Með tvo presta í brúðkaupinu Jóhanna Guðrún á fallegar minningar úr brúðkaupinu sínu. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og eiginmaður hennar Bjarni Karlsson gáfu þau saman. „Jóna Hrönn er enginn venjulegur prestur að mínu mati, í raun má segja það um þau bæði. Ég fylgist með hvernig þau vinna dag og nótt og er virkilega heppin að sjá þessa hlið á lífinu. Allt það fallega sem gerist innan kirkjunnar, en einnig það erfiða, þegar fjölskylda kveður vini og ættingja – stundum langt fyrir aldur fram.“ Jóhanna Guðrún segir æðislegt að starfa með börnum og unglingar séu einstakir líka. „Það er gaman að sjá hversu fljótt persónu- leiki fólks kemur fram. Árangur barna í söng er mikill ef þau hafa áhuga og leggja sig fram. Það er bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa innan kirkjunnar. Mín verkefni eru kannski vel skilgreind og auðframkvæman- leg, en sumt af því sem fram fer innan kirkj- unnar er þannig að fólk þarf kærleika, skiln- ing og stuðning.“ Hvernig var tónlistin í ykkar brúðkaupi? „Við vorum með sannkallaða tónlistarveislu þar sem mikið af vinum okkar, fjölskyldu og kunningjum er í tónlistariðnaðinum. Davíð spilaði sjálfur á gítar þegar ég gekk inn kirkjugólfið. Hann spilaði ekki hinn hefð- bundna brúðarmars, heldur lagið „Cavatina“ úr kvikmyndinni „Deer Hunter“. Það var ótrúlega rómantískt og þar sem hann er frá- bær gítarleikari þá langaði mig að hann myndi spila lagið sjálfur.“ Gaman að velja lögin saman Hvað mælir þú með að fólk geri tengt tón- list í brúðkaupum? „Í kirkjunni sjálfri finnst mér að tónlistin eigi að vera persónuleg og ekki valin úr fyrir- framgefnum lögum, heldur eftir smekk og upplifun brúðhjónanna. Hvaða lag eiga þau saman? Hvaða lag fjallar um þau? Það finnst mér algjört lykilatriði og þannig vinn ég með brúðhjónum sjálf. Ég tók sem dæmi eitt sinn Brúðkaup sem minnti á tónlistarhátíð Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir giftist eiginmanni sínum, Davíð Sigurgeirssyni, hinn 21. september árið 2018. Brúðkaupið var sannkölluð tónlistarveisla þar sem hæfustu listamenn landsins, ásamt brúðhjónum, komu fram. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmyndir/Helgi Ómarsson Mögnuð brúðarterta úr Sætum syndum. Að eiga ljósmynd af fallegu augnablik- inum á brúðkaups- daginn er gulls ígildi.  SJÁ SÍÐU 22 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.