Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 34

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 L ára sótti menntun sína í köku- og eftirréttagerð í heimalandi sínu Bandaríkj- unum. Hún er einnig mennt- uð í næringarfræði og býr sem dæmi til ljúffengar vegan-kökur þar sem hún notast við allskonar holl hráefni í stað hins hefðbundna. Hún er dugleg að prófa sig áfram og er á því að kökugerð sé listgrein út af fyrir sig. Frá Bandaríkjunum til Íslands Hvað kom til að þú ert búsett á Ís- landi? „Ég hafði heimsótt Ísland oft áður en ég ákvað að flytjast hingað. Ég bjó í Fíladelfíu í Bandaríkjunum áður en ég ákvað að flytjast til Húsavíkur. Ég er núna búsett í Reykjavík og hef frá því í desember búið til mínar eigin kökur sem fólk getur pantað af heimasíðunni minni.“ Lára á íslenska eiginkonu, Anítu Ösp Gunnlaugsdóttur. Það er ýmislegt áhugavert og öðruvísi við Baunina, meðal ann- ars að þegar maður pantar köku, þá leggur maður inn pöntun í gegnum netið. Lára leigir út eld- hús af Matís og gerir stundum fjöldann allan af kökum vikulega – hins vegar eru sumar vikur rólegri en aðrar og þá ver hún tím- anum í vöruþróun og sköpun. Heldur upp á listrænt frelsi Uppáhaldspantanirnar hennar Láru eru skapandi pantanir þar sem myndir, tónlist eða kvikmyndir eru lagðar til grundvallar að hugmynd. Henni finnst best ef grunnupplýs- ingar liggja fyrir um hvað á að vera í kökunni, síðan kann hún að meta að vera treyst fyrir útliti kökunnar. Ástæðan fyrir því að Lára bjó til kökufyrirtækið Baunina segir hún vera einsleitni í íslenskum bakaríum. „Það sem kom mér á óvart þegar Listrænar vegan-brúðarkökur Þrátt fyrir að vera mikið fyrir liti er Lára á því að ljósar kökur séu klassískar í brúðkaupum. Þessi fallega græna kaka er fyrir 16 manns. Rómantísk brún brúðarkaka gerð af kökugerðarkonunni Láru. Lára mælir með svört- um lit í brúðarköku. Lára er ákaflega listræn og skemmtileg manneskja sem auðvelt er að vinna með. Lára Colatrella gerir án vafa eftirtektarverðustu kökurnar um þessar mundir. Hún rekur fyrirtækið Baunina, þar sem hægt er að festa kaup á öðruvísi brúðarkökum, meðal annars vegan-kökum í framandi stíl. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.