Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 35
ég hóf að starfa hér í bakaríi sjálf var
hversu mikið allt er eins hér á landi.
Ég fann fljótt þörfina fyrir að skapa
mitt eigið, eitthvað sérstakt. Ég
ákvað að búa til mitt eigið fyrirtæki,
því þar sem ég vann var mér ekki
treyst fyrir því að láta ljós mitt skína
sjálf. Í mínu eigin get ég fengið útrás
fyrir þetta listræna sem býr innra
með mér, ásamt því að prófa mig
áfram með óhefðbundið hráefni.
Skapað eitthvað alveg nýtt fyrir Ís-
lendinga.“
Kaka í stað kokteils
Hvernig getur kaka verið eins-
konar form listar og hvað er í tísku að
þínu mati tengt brúðarkökum í dag?
„Allt sem við gerum getur verið
list, ef við þorum að fara út fyrir það
sem er gert vanalega og framkvæma
það sem okkur langar. Ég er mikið
fyrir dökkar brúðarkökur um þessar
mundir. Mér finnst náttúra Íslands
falleg, dökk grænir litir, gráir og jafn-
vel svartir. Eins er ég mikið fyrir að
vinna með ólík þemu. Ég fæ mjög
mikið frjálsar hendur við það sem ég
geri í dag. En ef ég ætti að nefna
áhugaverð þemu myndi ég segja
þema í anda Austurlanda fjær – þá
væri það brún kaka með skrauti sem
minnir á skraut sem gert er með
henna-litum.
Eins fyndist mér fallegt að vera
með græna köku og nota þá náttúr-
una sem grunn. Hægt er að setja alls-
konar jurtir og fleira gómsætt í slíka
köku, þannig að hún virki eflandi fyr-
ir ekki einungis sálina heldur einnig
líkamann.“
Hún setur hvítt te, allskonar jurtir
og fleira áhugavert í slíkar kökur.
Þess má geta að vegan-kökurnar
hennar Láru eru ekki eins sætar og
margir hafa vanist þegar kemur að
eftirréttum. Kökurnar eru léttar og
þannig að manni líður vel eftir að hafa
borðað þær. Eins er Lára mikið fyrir
að prófa sig áfram þegar kemur að
kökum. Hún nefnir í þessu samhengi
sem dæmi köku í staðinn fyrir kok-
teil. „Já, við erum öll vön því að fá fal-
lega drykki eða kokteil í brúð-
kaupum, kannski sterkan drykk með
kaffi og þar fram eftir götunum.
Hvað ef kakan er drykkurinn?
Áfengið væri þá blandað í kökuna og
hún borin fram í stíl við drykkinn eða
í staðinn fyrir hann. Það er gömul
venja sem kannski hefur ekki verið
áberandi hér en má alltaf gera vin-
sæla aftur.“
Möguleikarnir endalausir
Lára er á því að klassískar hvítar
kökur séu alltaf vinsælar fyrir brúð-
kaup sem og svartar kökur ef því er
að skipta.
Þegar kemur að framtíðinni er
mikið óráðið ef marka má hversu opin
hún er fyrir hugmyndum. „Ég
heillast að áhugaverðum verkefnum
sem eru samvinna ólíkra listgreina
sem dæmi. Að vinna með fólki er
spennandi, þegar kemur að kökum
eru engin takmörk fyrir því hvað
hægt er að gera. Í raun er það mín
skoðun að brúðkaup og aðrar veislur
ættu að vera byggðar á ákveðinni
hugmynd og öll útfærsla eftir því. Ég
elska sem dæmi kvikmyndir eftir
Ingmar Bergman. Ég setti á sam-
félagsmiðla um daginn fallega ljós-
mynd úr einni slíkri kvikmynd þar
sem mikið var um grænan lit. Græna
brúðkaupstertan var gerð með þá
kvikmynd í huga. Síðan bætti ég við
gróðri og bleikum blómum þar sem
það kom til mín að það væri fallegt að
gera.“
Það verður áhugavert að fylgjast
með næstu skrefum þessa hæfi-
leikaríka bakara sem virðast allir
vegir færir enda möguleikarnir enda-
lausir þegar kemur að kökum eins og
hún segir sjálf.
Lára er á því að fallegar ljósmyndir geti verið góður grunnur að litaþema fyrir veislur. Hún fann þessa ljósmynd til að gefa dæmi um slíkt.
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 MORGUNBLAÐIÐ 35
Þinn eigin griðastaður fyrir líkama og sál
Hilton Reykjavik Spa – Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is, í síma 444 5090 og á hiltonreykjavikspa.is.
GJAFABRÉF HILTON REYKJAVÍK SPA
Gefðu vellíðan og dekur
Fullkomin gjöf fyrir þig og þau sem þú vilt gleðja