Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 40

Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 40
Maskarinn er auðvitað nauðsynlegur í veskið og mælum við með Sensai Lash Volumiser 38°C- maskaranum sem endist ótrúlega vel á augnhár- unum. Maskari Ilmvatn Það má margt laga með eyrnapinna en þó sér- staklega mask- araklessur, augn- línufarða sem lekur til og svona mætti lengi telja. Prófaðu þessa eyrnapinna úr bambus sem fást á mena.is og vertu umhverfisvæn í leiðinni. Eyrnapinnar Maður veit aldrei hvenær hungrið kemur upp og á anna- sömum degi er ekki hlaupið að því að setjast niður að borða. Vertu með orkustöng til taks eins og til dæmis Aduna Moringa-orkustöngina. Þetta er lífræn og glútenlaus prótínstöng sem inniheldur hvorki viðbættan sykur, hveiti né mjólkurafurðir og fæst í Heilsu- húsinu. Snickers hefur einnig hentað mér ágætlega í gegnum árin. Gættu þess að hárið hagi sér með því að vera með hár- lakk í veskinu. Moroccanoil Luminous Ha- irspray kemur í ferðastærð (75 ml) og er tilvalið í snyrtiveskið. Hárlakk Vertu með fínlegan augabrúna- blýant í veskinu með greiðu á öðrum endanum svo þú getir bætt á brún- irnar með nákvæmum hætti ef þess þarf. Anastasia Beverly Hills Brow Wiz stendur alltaf fyrir sínu. Augabrúna- blýantur Clarins Pore Perfecting Matifying Kit er án efa það mikilvægasta í snyrtiveskinu en gegnsætt púðrið tekur burt allan glans af húðinni og minnkar ásýnd svitahola. Eins fylgir með því sérstakur pappír sem þú legg- ur yfir húðina sem dregur í sig olíu. Matt púður Nauðsynlegt í snyrtiveskið Þegar kemur að einum stærsta degi ævinnar er gott að vera við öllu búinn. Það er ekki nóg að hafa snyrtivörur í veskinu, ýmsar hvers- dagslegar vörur koma einnig að gagni. Lilja Ósk Sigurðardóttir|snyrtipenninn@gmail.com Í byrjun dags ertu förðuð með tilteknum farða og hyljara. Það er svolítið vesen að ætla að bæta á farðann yfir daginn en auðveldara að bæta smá hyljara á þau svæði sem þurfa aðra umferð yfir daginn. YSL Touche Éclat High Cover Radiant Concealer er frábær hyljari með ná- kvæmum bursta svo auðvelt er að laga förð- unina á skotstundu. Farði eða hyljari Þegar maður dansar fram eftir kvöldi eða er í vafasömum skóm er gott að hafa plástur til taks ef hæl- særi eða blöðrur skjóta upp koll- inum. Plástur Það er fátt verra en að fá hausverk eða aðra verki þegar maður á langan dag fram und- an. Íbúfen eða annað sambærilegt lausa- sölulyf er gott að hafa til taks. Verkjalyf Orkustöng Hvort sem það þarf að þurrka tárin eða bleyta upp í ein- hverju þarf að hafa einhvers konar þurrkur í veskinu. Blaut- eða bréfþurrkur Á degi þar sem maður brosir yfirleitt allan hringinn er gott að geta hreinsað burt pirrandi mat sem kann að hafa fest á milli tannanna í veislunni. Þannig geturðu haldið áfram að brosa eftir veislumatinn af öryggi. Tannþráður Það er nauðsynlegt að hafa varalit í veskinu og vara- salva en það má einfalda lífið með því að vera ein- faldlega með nærandi mjúkan varalit. Prófaðu nýju Chanel Rouge Coco Flash-varalitina sem búa yfir björtum lit og nær- andi olíum. Varalitur Bættu góðum ilmi á þig yfir daginn. Oft má fá ferðastærðir af ilmvatns- glösum sem eru hentugri í veskið, en Byredo framleiðir gjarnan ferða- stærðir af vinsælum ilmvötnum sín- um. Prófaðu til dæmis Blanche frá Byredo sem fæst í Madison Ilmhúsi. Hvort sem þú þarft að laga hárið eða opna dyr er alltaf gott að hafa hárspennur nálægt. Hárspennur Delux útgáfa Mikið úrval af gjafavöru fyrir dömur og herra · Töskur · Hanskar · Seðlaveski · Ferðatöskur · Tölvutöskur · Belti · Skart & skrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta ® Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is Léttu ferðatöskurnar - Þýsk gæðavara® Ferðalag framundan? Sterk hjól Góð hólf inní Stækkanleg 71 x 52 x 30/34 3,9 kg áður 69.900.- nú 59.400.- Traust í 85 ár 15% afsláttur Tilvalin brúðargjöf Á brúðkaupsdeginum veit maður aldrei hve- nær tárin byrja að streyma, af hamingju auðvitað (vonandi). Það er sniðugt að vera með augnd- ropa í veskinu sem taka roða og ert- ingu burt svo enginn sé nú með rauð augu í myndatökunni. Cleye- augndropar 40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.