Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 42

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 42
Byrjaðu að huga að grundvallaratriðum eins og næringu. WelleCo er fyrirtæki í eigu ofurfyrirsætunnar Elle Macpherson og framleiðir næringarduftið The Super Elixir, formúla sem upprunalega var sérstaklega hönnuð af dr. Simone Laubscher fyrir Elle sjálfa og inniheldur öll þau vítamín sem þú þarft. Krukkan af þessu töfradufti er hrikalega dýr en ég hef séð gífur- legan mun á húðinni eftir að ég fór að drekka glas af því á dag. Svo er það orkugefandi og vatnsleysandi en The Super Elixir er vegan, án GMO, glúten-, mjólkur- og sojalaust og enginn unn- inn sykur. Þú getur lesið allt um málið og pantað vörurnar á wel- leco.com og senda þeir til Íslands. Ekki gleyma líkamanum þegar húðumhirða er annars vegar. Þurrburstun er frábær leið til að auka blóðflæði húðarinnar sem og að nota hefðbundinn líkamsskrúbb í sturtunni. Einn af mínum uppáhaldsskrúbbum er Lavera Smoothing Body Scrub en hann inniheldur m.a. lífrænt kaffi og grænt te sem vinna gegn appelsínuhúð. Eftir sturtu er gott að nota stinn- andi líkamskrem, eins og til dæmis Sensai Cellular Perform- ance Body Firming Emulsion, í þeirri von að fá afturenda í anda Jennifer Lopez. 42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Fyrirtækjaþjónusta Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Almennur þvottur Hreinsun og pressun Dúkaþvottur og dúkaleiga Fjölbreytt þjónusta í 65 ár Sumir halda að ástin ein og sér láti húðina ljóma. Daginn fyrir brúðkaupið áttarðu þig á því að það er ekki raunin og streitan sem hefur fylgt undirbúningnum hefur tekið sinn toll. Ef þú vilt koma húð þinni og hári í sitt besta ástand er mikilvægt að byrja með góðum fyrirvara. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com Byrjaðu á að hreinsa húðina og bera á hana serum og rakakrem. Slepptu sólarvörninni þar sem hún getur endurkastað flassi myndavélanna. Að lokum skaltu muna að slaka á, allt mun fara vel. Í versta falli er það pítsa og bjór á línuna. Brúðkaupsdagurinn Húð og hár upp á sitt besta Ætlar þú að vera gordjöss á brúðkaups- daginn? Thinkstock Áður en þú ferð að hamast með misjafnar húðvörur er gott að panta tíma hjá húðlækni til að meta hvað húð þín þarf. Á þessum tímapunkti byrja margir að nota retinól en það er A-vítamín sem er að taka yfir húðumhirðuheiminn sökum þess hve mjög það dregur úr hrukkum og ójöfn- um húðarinnar. Þetta er þó sterkt efni og margir byrja að nota væga prósentu á borð við 0,2-0,3% einu sinni í viku á meðan húðin venst því. Húðlæknirinn gæti þó ávísað þér sterkara retinól-kremi. Níu mánuðir til stefnu SkinCeuticals Retinol 0,3% Refining Night Cream (Húðlæknastöðin). Tólf mánuðir til stefnu WelleCo The Super Elixir. Lavera Smooth- ing Body Scrub. Sensai Cellular Performance Body Firming Emulsion. Lancôme Visionnaire Skin Sol- utions 0,2% Retinol.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.