Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 43
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 MORGUNBLAÐIÐ 43
Nú ættirðu að koma þér upp einfaldri húð-
umhirðurútínu sem þú getur fylgt eftir kvölds og
morgna, jafnvel þegar þú nennir því ekki. Á
kvöldin er nauðsynlegt að þvo húðina eftir amst-
ur dagsins og fylgja því eftir með serumi eða ret-
inóli, rakakremi og augnkremi. Á morgnana
nægir oft að skola húðina með vatni og fylgja eftir
með serumi sem byggt er á andoxunarefnum,
rakakremi, augnkremi og sólarvörn. And-
oxunarefni leika algjört lykilhlutverk í að hægja á öldrun húðarinnar
og súperstjarnan í þeim flokki er C-vítamín. Það dregur úr ójöfnum í
húðinni og eykur ljóma hennar. Ef þú ert ekki á C-vítamín-vagninum
þá er ekki seinna vænna að stökkva á hann. Ég mæli með Paula’s
Choice C15 Super Booster en það má nota það eitt og sér á morgn-
ana eða bæta því út í rakakremið. Formúlan er full af andoxunar-
efnum á borð við E-vítamín og ferulic-sýru auk rakagefandi hýal-
úrónsýru.
Hárið er mikilvægur hluti af heildarmyndinni svo vertu
búin að ákveða hvernig hárlit þú vilt hafa og klipp-
ingu. Það hefur ekki reynst vel að prófa eitthvað nýtt
korter í brúðkaup. Notaðu mildar og næringarríkar
hárvörur en OI-línan frá Davines hefur verið mjög vin-
sæl til að viðhalda fallegu hári. Einu sinni í viku er gott
að nota hármaska og Kevin.Murphy Hydrate-
Me.Masque er frábær kostur til að djúpnæra hárið.
Tveir mánuðir til stefnu
Einn mánuður til stefnu
Nú skal gefa í og því tilvalið að splæsa í Bioeffect
30 Day Treatment. Ótrúlegur árangur hefur sést
eftir þennan mánaðarkúr af extra-sterkum EGF-
dropum og þeir fylla húðina einnig af raka með
hýalúrónsýru. Þegar húðin fær nægan raka er hún
sléttari og fínar línur grynnka.
Stundum er það afslappandi að fá sér eitt vínglas í
lok vikunnar en núna þarftu að leggja flöskuna á hill-
una. Áfengi hefur gífurlega neikvæð áhrif á húðina;
þurrkar hana, háræðar springa frekar og þú getur
gleymt ljómanum. Sjálf drekk ég gjarnan vatn úr vín-
glasi til hátíðarbrigða. Núna er líka sniðugt að kíkja
til tannlæknis og hreinsa tennurnar og íhuga tann-
hvíttun ef það á við. Bókaðu aftur tíma hjá tannlækni
um tveimur vikum fyrir brúðkaupið fyrir aðra tann-
hreinsun.
Þrír mánuðir til stefnu
Davines OI
Shampoo, Condi-
tioner og All In
One Milk.
Kevin.Murphy
Hydrate-
Me.Masque.
Tveir dagar til stefnu
Ef þú ætlar að vinna með brúnkusprey eða
-krem skaltu klára það núna og sömuleiðis
kíkja í nagla- og fótsnyrtingu.
Paula’s Choice
C15 Super
Booster (Fotia).
Aveda Botanical
Kinetics All-
Sensitive Lotion.
NeoStrata
Sheer Physi-
cal Protection
SPF 50.
Sex mánuðir til stefnu
Sepai Basic Wash
Mild Cleanser
(Madison Ilmhús).
Bioeffect
EGF Eye
Serum.
Bioeffect
30 Day
Treat-
ment.
HEILDARLAUSNIR
FYRIR BRU-DKAUP
00 VEISLUR"
SALIR, VEITINGAR OG
SVITUR UM ALLT LAND
Nanari upplysingar: islandshotel.is/fundir I B6kanir: fundir@islandshotel.is
FO\\HOTEL
HOTEL
REYKJAVIK
CENTRUM
J ·-!:,� '. •·I.". ·�. (�·I_,